Costa Concordia


Höfundur þráðar
Aparass
Innlegg: 308
Skráður: 25.sep 2011, 21:29
Fullt nafn: Guðni Þór Scheving

Costa Concordia

Postfrá Aparass » 16.sep 2013, 18:02

Alveg magnað að sjá hvað það er mikið fyrirtæki að koma svona risa dalli á flot.
Þeir hafa bara einhvern tólf tíma glugga sem þeir verða að nota, annars eru þeir búnir að missa af tækifærinu sá ég á einhverri síðu.
Þetta er live útsending.
https://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=TsWuIkdIByo



User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Costa Concordia

Postfrá ellisnorra » 16.sep 2013, 20:57

Hefði ekki verið hægt sprengja hann bara í vota gröf? :) Nokkur hundurð tonn af góðu sprengiefni og málið dautt!
http://www.jeppafelgur.is/


Höfundur þráðar
Aparass
Innlegg: 308
Skráður: 25.sep 2011, 21:29
Fullt nafn: Guðni Þór Scheving

Re: Costa Concordia

Postfrá Aparass » 16.sep 2013, 21:11

Þarf líka ekki mikið til því dallurinn stendur á syllu og er við það að detta niður nokkur hundrað metra or so.


Höfundur þráðar
Aparass
Innlegg: 308
Skráður: 25.sep 2011, 21:29
Fullt nafn: Guðni Þór Scheving

Re: Costa Concordia

Postfrá Aparass » 16.sep 2013, 21:13

Nýr linkur því hinum var hætt að streema og er bara orðinn gamalt video.
þessi virkar, þarna eru þeir að verða búnir að rétta skipið af.
http://www.theguardian.com/world/video/ ... stream-hls


ivar
Innlegg: 687
Skráður: 13.aug 2010, 09:03
Fullt nafn: Ívar Örn Lárusson

Re: Costa Concordia

Postfrá ivar » 16.sep 2013, 21:13

Mér finnst eiginlega áhugaverðara af hverju dallurinn er ekki lagaður :)
50% stóð uppúr og er stálið örugglega í góðu lagi þar. Hitt er sennilega í lagi en þarf "aðeins" að pússa og mála og svo auðvita að innrétta allt uppá nýtt :)


Ingójp
Innlegg: 149
Skráður: 09.des 2010, 04:00
Fullt nafn: Ingólfur Pétursson

Re: Costa Concordia

Postfrá Ingójp » 16.sep 2013, 21:40

Ég er búinn að fylgjast spenntur með þessu. Magnað ef þetta heppnast eins og plönin hljóða uppá fyrir utan tímarammann.

Ég veit ekki hvort Ívar sé að grínast eða ekki en ég er að sjá þetta ansi víða. Þetta er eins ónýtt og þetta verður nema Elli kominst í fullt af C4 og skemmti sér aðeins.

User avatar

snöfli
Innlegg: 287
Skráður: 03.sep 2010, 19:21
Fullt nafn: Lárus Elíasson
Bíltegund: Patrol Y61

Re: Costa Concordia

Postfrá snöfli » 16.sep 2013, 21:41

Dallurinn er ekki lagður vegna þess að stáið er svo lítill hluti af verðmætinu í skipinu.

Mér skilst að kostnaðurinn við að rífa innaúr skipinu þrífa það og innrétta aftur, sé meiri heldur en að smíða nýtt skip frá grunni að frádregnu því sem fæst fyrir brotajárnið.

Þettar yrði trúlga heldur ekki mjög vinsælt skip ef það væri gert við það:(

l.

User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2490
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: Costa Concordia

Postfrá hobo » 16.sep 2013, 21:52

Ég skil ekki... eru einhverjir jeppar að vinna að björguninni eða...?

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Costa Concordia

Postfrá Stebbi » 16.sep 2013, 21:55

Já það er notaður patrol við að draga það á réttan kjöl, þess vegna tekur þetta svo langan tíma.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Costa Concordia

Postfrá ellisnorra » 17.sep 2013, 09:00

http://www.telegraph.co.uk/news/worldne ... -work.html

Þetta er nú soldið sniðugt hjá þeim, basic stuff en samt nokkrar vinnustundir og krónur á bakvið þetta :)
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Costa Concordia

Postfrá ellisnorra » 17.sep 2013, 10:31

http://www.heraldsun.com.au/technology/ ... 6720255881

Hérna er stutt video af því hvernig þetta var gert.
http://www.jeppafelgur.is/


peturin
Innlegg: 159
Skráður: 28.mar 2010, 10:52
Fullt nafn: Pétur Ingjaldsson

Re: Costa Concordia

Postfrá peturin » 17.sep 2013, 10:49

Ástæða þess að skipið er fjarlægt og ekki rifið á staðnum, þar sem það borgar sig ekki að gera við það þar sem eins og áður hefur komið fram að stálið er ódýrasti þáttur skips, búnaðurinn er dýrastur, er sá að skipið er á friðlýstu svæði sem er á minjaskrá sameinuðuþjóðana að mig minnir. Þarna eru víst risa stórar Bláskeljar sem eru einhverjir mannhæðar háir


Höfundur þráðar
Aparass
Innlegg: 308
Skráður: 25.sep 2011, 21:29
Fullt nafn: Guðni Þór Scheving

Re: Costa Concordia

Postfrá Aparass » 17.sep 2013, 15:03

Svakalega situr það djúpt hjá þeim þegar þeir draga það.
Image


villi58
Innlegg: 2134
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: Costa Concordia

Postfrá villi58 » 17.sep 2013, 15:21

Eru þeir nokkuð byrjaðir að draga ?


villi58
Innlegg: 2134
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: Costa Concordia

Postfrá villi58 » 17.sep 2013, 15:31

Samkvæmt fréttum þá verður skipið ekki dregið neitt fyrr en í vor 2014


Carlsen
Innlegg: 10
Skráður: 22.sep 2013, 19:04
Fullt nafn: Rögnvaldur Carlsen Eiríksson
Bíltegund: Patrol

Re: Costa Concordia

Postfrá Carlsen » 22.sep 2013, 20:06

Svo á líka eftir að setja tanka á stjórnborðsmegin og síðan er blásið lofti í og skipinu lift


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 68 gestir