Síða 1 af 1
Afmælissýning 4x4
Posted: 29.aug 2013, 21:01
frá Ýktur
Bílavalsnefnd Ferðaklúbbsins 4x4 er búin að sitja sveitt og með símaeyrun eldrauð og þrem númerum of stór við að finna bíla á afmælissýningu klúbbsins sem verður helgina 13. til 15. september. Núna erum við komnir með um 100 bíla staðfesta þannig að það er pláss fyrir nokkra í viðbót. Ef þið eigið hrikalega flottan jeppa og við erum ekki búnir að hafa samband við ykkur þá er tækifærið núna að benda okkur á hann. Eins ef þið vitið um smíðaverkefni sem hefur ekki verið áberandi á vefnum þá væri gaman að frétta af því. Þið getið annað hvort sett inn upplýsingar hér á þráðinn eða sent okkur línu:
Bjarni:
bjarni@heimsgir.orgKristján:
skuri@simnet.isTeddi:
theodor.kristjansson1304@gmail.comHér eru smá tölulegar upplýsingar um bílana sem við höfum staðfesta. Okkur langar mest að fá bíla af "jaðartegundum", trúlega komið nóg af Ford, Jeep og Toyota... Eins er þarna gróf dreifing á dekkjastærðum þannig að ef þið vitið t.d. um Suzuki á stærri dekkjum en 44" þá vantar svoleiðis :)

- jepp.jpeg (36.37 KiB) Viewed 8555 times
fh. Bílavalsnefndar
Bjarni G.
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 29.aug 2013, 21:19
frá Bskati
vantar alveg Lödu á þennan lista!
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 29.aug 2013, 21:40
frá Ýktur
Við erum með eina Lödu staðfesta undir "Gaz / Rússn." og erum að reyna að sannfæra einn Lödu eiganda í viðbót :) Þær mættu vera fleiri.
Bjarni G.
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 29.aug 2013, 22:29
frá Bskati
Ýktur wrote:Við erum með eina Lödu staðfesta undir "Gaz / Rússn." og erum að reyna að sannfæra einn Lödu eiganda í viðbót :) Þær mættu vera fleiri.
Bjarni G.
Það er gott að heyra!
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 29.aug 2013, 22:49
frá Dúddi
Hrollur, veit fyrir vist að það er ekki buið að hringja utaf honum.
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 08:41
frá Þorri
Hrollur er búinn að vera á mörgum sýningum undanfarin ár.
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 09:53
frá Dúddi
Hann var a syningunni 2001 og það er eina syninginn sem hann hefur farið á suður.
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 10:39
frá Ýktur
Við munum hafa samband við Hrollinn. Vorum að bíða eftir svari frá Austulandsdeild en það er eitthvað djúpt á því.
Bjarni G.
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 10:51
frá jongud
Man einhver hvaða árgerð Hrollurinn er? Mig rámar eitthvað í að hann eigi stórafmæli á næstunni
(Eða allavega einhver hluti af honum).
Það er gaman að segja frá því að í fyrstu ferðinni sem ég fór í á vegum F4x4 þá "kóaði" ég í Hrollinum.
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 12:21
frá Dúddi
Hann er 64 módelið. Það er lang best að hringja bara í Þóri sjálfan. 8942026
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 15:10
frá jongud
Dúddi wrote:Hann er 64 módelið. Það er lang best að hringja bara í Þóri sjálfan. 8942026
FLOTT,
Það er þá fimmtugsafmæli hjá Hrollinum á næsta ári, en þó líklegast á
þessu ári ef hann hefur verið seldur um haustið '63 sem 1964 módel (Bílaframleiðendur byrjuðu á þeim sið upp úr 1920).
En ef svo er þá er um að gera að koma honum á sýninguna og halda fimmtugsafmæli!
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 15:34
frá Luxarinn
Haha, alltaf slatti af Toyotu
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 16:07
frá Ýktur
Já það er alltaf offramboð á þessu Togoýta dóti. Þess vegna auglýsi ég eftir jaðartegundum :)
Bjarni G.
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 16:14
frá villi58
Hvað!!!!!!! bestu bílarnir.
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 17:21
frá fox
Það vantar isuzu pikka og trooper
Kv Þórir
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 17:28
frá hobo
fox wrote:Það vantar isuzu pikka og trooper
Kv Þórir
Ohh hvað ég er feginn að það eru fleiri en ég, sem tóku eftir því að það vantaði aðalmerkið :)
Mæli með þessum, bara öflugur.
viewtopic.php?f=9&t=9810&start=0&hilit
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 18:12
frá Ýktur
fox wrote:Það vantar isuzu pikka og trooper
Við erum með þennan Trooper undir "Aðrir" en þið megið alveg benda okkur á Isuzu pickup eða annan verklegan Trooper. Eins er bara einn Mitsubishi staðfestur þannig að þeir mættu vera fleiri.
Bjarni G.
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 30.aug 2013, 23:29
frá Bskati
Ýktur wrote:fox wrote:Það vantar isuzu pikka og trooper
Við erum með þennan Trooper undir "Aðrir" en þið megið alveg benda okkur á Isuzu pickup eða annan verklegan Trooper. Eins er bara einn Mitsubishi staðfestur þannig að þeir mættu vera fleiri.
Bjarni G.
Sigurður Magnússon á Syðri-Hvoli í Mýrdal á langflottasta Isuzu D-max í heimi. Eini 38 tommu bílinn af því boddýi held ég.
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 01.sep 2013, 10:16
frá Skúri
Baldur áttu einhverja mynd af honum eða einhver annar hérna á spjallinu ?
Svo vantar okkur fleiri Mitsubishi og einnig fleiri "jaðar" jeppa.
Ps. Hrollur verður með :-)
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 01.sep 2013, 13:21
frá Bskati
Skúri wrote:Baldur áttu einhverja mynd af honum eða einhver annar hérna á spjallinu ?
Svo vantar okkur fleiri Mitsubishi og einnig fleiri "jaðar" jeppa.
Ps. Hrollur verður með :-)

Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 01.sep 2013, 14:56
frá Skúri
Takk Baldur :-)
Veistu nokkuð númerið hjá honum ?
Re: Afmælissýning 4x4
Posted: 02.sep 2013, 14:21
frá Kárinn
Númerið hjá sigga á hvoli er 862 4382