Síða 1 af 1

v6 2.9 ford vill ekki fara í lag

Posted: 20.aug 2013, 00:31
frá BergZ
Vantar eithver sem er klára á v6 2.9 ford ranger vélinni eða getur bent mér á að tala við eithver.
Hann hefur sem sagt ekki gengið almenilega síðan ég eignaðist hann var eithvað bensín vesen sagði fyri eigandi en svo stóð hann í 7 ár.
Er búin að skifta um eiginlega alt sem tengist bensíni í bílnum. Og var að skifta um spísa en þá versnaði hann bara.
Er rosalega mikið bensín í olíuni
Eftir að ég skifti um spísan þá kom eithvað bank hljóð í loftsíu boksið og kjæfir sig bara.

Ef eithver getur hjálpað mér þá væri það flott.

Er búin að reyna alt fara með hann á verkstæði hérna en eingin fattar hvað er að

Re: vill ekki fara í lag

Posted: 20.aug 2013, 02:57
frá Stjáni
athugaðu þennan vacum pung ég lennti einusinni í að hann gaf sig í svona ford motor hjá mér og þá dældi hann alltof miklu bensíni inná sig og olíjan mettaðist af bensíni



https://www.google.is/search?q=2.9+v6+f ... 0QXdsoCADA

Re: vill ekki fara í lag

Posted: 20.aug 2013, 07:37
frá sukkaturbo
Sæll hef verið með nokkra svona mótora í sukkunni minni Ofur foxinum. Ég mundi byrja á að þjöppumæla hana ef það er ekki búið.Ef þjöppun er mjög mismunandi þá beinist grunur að ventlum og hedd gæti verið sprungið mjög þekkt í þessum vélum. Ég gafst upp á 2,9 og fór í 2,8 og blöndung og gat ég þá fiktað í öllu draslinu að vild og einfalt að gera við. Ég er ekki hlyntur tölvuvélum en það er bara ég. kveðja guðni