Terrano ll 2.7 TD


Höfundur þráðar
ihþ
Innlegg: 98
Skráður: 19.jan 2012, 13:17
Fullt nafn: Ingólfur Þorleifsson
Bíltegund: Mitsubishi Montero

Terrano ll 2.7 TD

Postfrá ihþ » 14.aug 2013, 15:43

Góðan dag.

Var að kaupa Terrano 99 sem þarf að klappa aðeins. Því langar mig að spyrja ykkur sem vit hafið á þessum bílum um nokkra hluti. Hann fer ekki í framdrifið. Hvar fæ ég handvirkar lokur til að skipta út þessu sjálfvirka drasli. Er það málmsteypan Hella sem selur klossa til að hækka þá upp að aftan. Þarf að hjólastilla eftir að maður skrúfar þá upp framan ? Einnig væri gott ef einhver lumar á 33-35 tommu köntum sem hann vill losna við.



User avatar

eyberg
Innlegg: 444
Skráður: 16.júl 2011, 22:07
Fullt nafn: Elvar Eyberg Halldórsson
Bíltegund: Jeep WJ Grand Cherok

Re: Terrano ll 2.7 TD

Postfrá eyberg » 14.aug 2013, 16:14

Sæll

Já málmsteipan á klossa 1 til 2 tommur.
Já það er betra að hjólastilla eftir að það er búið að skrúa hann upp.

Veit ekki með lokunar en ég er en með auto á 1997 bíl keyrðan 255þ :-)
Jeep WJ Grand Cherokee 4.7 L HO
Elvar Eyberg Halldórsson
S:869 7454


stebbithordar
Innlegg: 3
Skráður: 21.mar 2016, 09:52
Fullt nafn: Stefán Þórðarson
Bíltegund: Terrano

Re: Terrano ll 2.7 TD

Postfrá stebbithordar » 10.okt 2016, 17:34

Ég er með Terrano II 1998. Bíllinn fer alltaf í gang en er rosalega þungur í kaldstarti, Þetta er díselbíll og er með tvo geyma. Er einhver sem veit hversvegna er hann svona þungur ístarti?


Axi
Innlegg: 51
Skráður: 03.okt 2012, 23:05
Fullt nafn: Steingrímur Árni Thorsteinson
Bíltegund: TJ Wrangler
Staðsetning: 108 Reykjavík

Re: Terrano ll 2.7 TD

Postfrá Axi » 11.okt 2016, 10:58

Ég þekki þetta með þunga startið. Það er startarinn sjálfur sem orsakar þetta þunga start þegar vélin er köld. Ef það er Kína startari í bílnum skaltu skipta honum strax út fyrir nýjan áður en hann eyðileggur geymana. (Ekki reyna að laga hann því það fæst ekki neitt í hann) Ég keypti nýjan í minn hjá Ljósboganum á. þeir eru með góða vöru á góðu verði. Ef það er original startari í bílnum mæli ég með PG þjónustunni.
Þekki líka þetta með sjálfvirku lokurnar. Ég keypti nýjar manual lokur hjá partasölunni sem er í gamla Vökuportinu uppi á Höfða. Fékk settið á 35 þús. minnir mig og hafa reynst mjög vel. en það eru nokkur ár síðan ég stóð í þessu. Svona lokur eins og þessar : http://www.ebay.co.uk/itm/fits-NISSAN-T ... SwD0lUfJ4~


birgiring
Innlegg: 179
Skráður: 03.feb 2010, 14:31
Fullt nafn: Birgir Þór Ingólfsson

Re: Terrano ll 2.7 TD

Postfrá birgiring » 11.okt 2016, 11:35

Hverjir eru með þessa Kínastartara og hvað kosta startarar í Ljósboganum ?


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 46 gestir