Síða 1 af 1
Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 11.aug 2013, 22:07
frá eyberg
Er að horfa á bíla í hlíðum á Úlvarsfelli og mér sýnist þeir vera á gönguleiðini, svo eru 3 aðrir á topinum!
Veit einhver hvað er um að vera?
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 11.aug 2013, 22:14
frá eyberg
Þetta er víst bíll sem festist í gær, og er verið að skoða þetta dæmi hjá lögregluni.
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 11.aug 2013, 22:27
frá brinks
Var einmitt að sjá þetta líka. Hvað í ósköpunum erum menn að spá að þvælast með bíl þarna :/
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 11.aug 2013, 22:51
frá Freyr
Þekki þetta tilvik ekkert en það liggur vegur alveg á toppinn svo þeir eru ekki að gera neitt af sér þar a.m.k. Hinsvegar ömurlegt ef menn fóru út af slóðunum og ollu með því skemmdum.
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 11.aug 2013, 22:58
frá brinks
Freyr wrote:Þekki þetta tilvik ekkert en það liggur vegur alveg á toppinn svo þeir eru ekki að gera neitt af sér þar a.m.k.
Þeir voru sem gönguleiðin er upp
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 11.aug 2013, 22:59
frá Freyr
Eru til myndir?
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 11.aug 2013, 23:14
frá eyberg
Freyr wrote:Eru til myndir?
Veit ekki an það voru 4 bílar þarna fyrir utað þennan sem var utan vega og slóða.
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 11.aug 2013, 23:21
frá Sævar Örn
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 11.aug 2013, 23:35
frá eyberg
Sævar Örn wrote:https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10151586042601662&set=gm.618060401561113&type=1&theater

Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 11.aug 2013, 23:44
frá Gulli J
Sýnist mestu spjöllinn þarna vera eftir göngufólk, Þess vegna ætti að vera löngu búið að hafa samband við Lögreglu.
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 12.aug 2013, 00:22
frá Hagalín
Það er búið að ná bílnum úr hlíðinni.
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 12.aug 2013, 08:03
frá ivar
Þar sem gönguleiðin er upp var vegur sem náði nánast upp á topp. Veit ekki hvort sá vegur er orðinn að göngustíg í dag en fyrir c.a. 5 árum var hægt að keyra hann eins og áður sagði rétt að toppnum.
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 12.aug 2013, 08:08
frá Gulli J
Það hefur verið vegur upp á topp í tugi ára. En svo er búið að ganga þarna svo mikið aðra leið að í fjarska lítur sú leið orðið út eins og vegaslóði líka.
Re: Hafið þið séð bílana í hlíðum á Úlfarsfelli?
Posted: 14.aug 2013, 13:07
frá Brjotur
En ef þessir bilar hefðu verið a veg eða göngusloðanum þa hefðu þeir ekki fest sig , þannig að þeir hafa verið a kolröngum stað