Síða 1 af 1
Viftuspaði í ´99 Patrol og vatnsdæla
Posted: 31.júl 2013, 17:28
frá bjargó
Á einhver viftuspaða í ´99 patrol og vatnsdælu?
Re: Viftuspaði í ´99 Patrol og vatnsdæla
Posted: 31.júl 2013, 23:15
frá siggisigþórs
talaðu við smáparta fossaleyni þeir eru að byrja að rífa svona bíl kveðja siggi
Re: Viftuspaði í ´99 Patrol og vatnsdæla
Posted: 31.júl 2013, 23:20
frá jeepson
Vatnsdælu kaupir þú nýja :)
Re: Viftuspaði í ´99 Patrol og vatnsdæla
Posted: 31.júl 2013, 23:29
frá bjargó
Já takk fyrir þetta ... var að vona að ég fengi þetta á betra verði en hjá umboðinu ... vatnsdælan kostar þar 35 þúsund. Það er bara svolítið dýrt að vera fátækur ;-)
Re: Viftuspaði í ´99 Patrol og vatnsdæla
Posted: 01.aug 2013, 18:45
frá jeepson
Já það má vel vera að það sé dýrt. En treystu mér það er en dýrara ef að notuð dæla svo dælir ekki nógu vel eða fer að leka. Kannaðu líka verðið á dæluni hjá AB, poulsen, bílanaust, stillingu og fálkanum. Það borgar sig oft að hringja á nokkra staði. Ég get tekið dæmi
Kúplingssett í patrol 2,8
Stilling: 65þús
Fálkinn: 50þús
Bílanaust: 48þús
Ab varahlutir: 42þús Ég fæ 15% AFSL hjá AB aðþví að ég er í 4x4. Þannig þú getur mínusað þessi 15% af þessum 42kr hjá AB. Ég hef ekki þorað að hringja í umboðið þar sem að ég reikna með að geta nánast keypt nýjan landcrúiser af flottustu gerð fyrir það sem ða þetta sett kostar hjá þeim.