nova


Höfundur þráðar
Andri M.
Innlegg: 133
Skráður: 02.feb 2010, 15:00
Fullt nafn: Andri Már Eyþórsson
Staðsetning: Reykjavík

nova

Postfrá Andri M. » 15.sep 2010, 16:40

hafa menn einhverja reynslu af nova ??

eg var og er hja vodafone og er ánægður þar vegna góðs og víðs dreifikerfis og þjónustu, en eftir að hafa farið niðri nova nuna í vikunni og rætt við sölumann var mer tilkynnt um það að eftir að 3g dreifikerfinu lyki, tæki við venjulegt dreifikerfi hja vodafone,

mer list rosalega vel á þetta, sérstaklega þar sem 85-90% af mínum vinum og félögum eru hja nova og því gæti þetta sparað manni vonandi einhverja þúsund kalla á manuði í símanotkun,

þannig að hvernig hefur nova verið að gera sig á ferðalögum um landið bæði hálendi sem og laglendi ??

allar reynslusögur vel þegnar




SverrirO
Innlegg: 74
Skráður: 01.feb 2010, 23:45
Fullt nafn: Sverrir Ormsson

Re: nova

Postfrá SverrirO » 15.sep 2010, 18:00

það er gott samband mest alla leið frá rvk til egilstaða hjá nova veit ekki með hálendi er ekki búinn að vera svo lengi með þessa þjónustu. Þeir hjá nova leigja víst aðgang að öllum sendum vodafone þannig að ég sé ekki að það sé neitt verra. En það er ekki frítt að hryngja nova í nova nema fyrstu 1000 minúturnar minnir mig en ég hef reyndar ekki klárað þær enþá, veit sam um nokkra sem hafa gert það og eru ekki ánægðir.

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: nova

Postfrá jeepson » 15.sep 2010, 18:23

Það góða við nova er að maður hringir frítt innan kerfis. (1000 mínútur). Mér hefur einusinni tekist að eyða þessum mínútum. maður er ekkert að borga meir fyrir að hringja í hin símafyrirtækin. Hinsvegar er dýrt að hringja frá hinum í nova. Ég er bæði hjá nova og tal. Og ég er mjög ánægður með þá báða. en svo hefur maður verið að pæla í þessu alterna dæmi líka. En ég mæli hiklaust með Nova.
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn


ási
Innlegg: 34
Skráður: 20.mar 2010, 23:51
Fullt nafn: Ásgrímur Þór Benjamínsson

Re: nova

Postfrá ási » 16.sep 2010, 11:23

Góðan daginn

Er mikill munur hjá hvað símafélagi þú ert miðað við að vera í góðu sambandi til fjalla og þjónustulega séð.

Tal
Siminn
nova
Vodafone

kv
ási


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur