Síða 1 af 1

Ath stolinn bíll ( Fundinn)

Posted: 15.júl 2013, 13:50
frá pfp
Toyota Avensis 2004 station með bílnúmerið ZP 814 var stolið í Hafnarfirði sunnudaginn 14 júlí.

Image
Image

Re: Ath stolinn bíll

Posted: 15.júl 2013, 14:10
frá kjartanbj
er þetta ekki silfraður bíll?

Re: Ath stolinn bíll

Posted: 15.júl 2013, 14:36
frá pfp
jú er silfur sanseraður átti þetta að vera.

Re: Ath stolinn bíll

Posted: 15.júl 2013, 18:29
frá íbbi
er þetta sami litur?

ég spyr vegna þess að þið segið silfur, en á myndunum finnst mér hann virka drappaður einhvernveginn eins og þeir eru svo margir.

Re: Ath stolinn bíll

Posted: 15.júl 2013, 20:57
frá Dannyp
Image

Svona er hann á litinn, þetta kallast víst silfurlitað.

Re: Ath stolinn bíll

Posted: 17.júl 2013, 12:13
frá pfp
Bíllinn fannst á rúntinum á Akureyri. Þökkum aðstoðina

Re: Ath stolinn bíll

Posted: 17.júl 2013, 13:02
frá Polarbear
bara svona fyrir forvitnissakir... þegar verið er að stela svona nýlegum bílum með tölvukubbalæsingum... voru lyklarnir í honum þegar honum var stolið?

Re: Ath stolinn bíll

Posted: 17.júl 2013, 13:31
frá pfp
Það kom par að skoða bílinn sem var til sölu, fékk að reynsluaka honum og skiluðu honum ekki.

Re: Ath stolinn bíll

Posted: 17.júl 2013, 18:22
frá steindór
Er ekki kominn tími til að bílasalar hætti að rétta bara lyklana ufir borðið, (gjörið þið svo vel) og láni ekki bíla til prufukeyrslu án þess að það sé maður frá bílasölunni með!.

Re: Ath stolinn bíll

Posted: 17.júl 2013, 22:08
frá silli525
steindór wrote:Er ekki kominn tími til að bílasalar hætti að rétta bara lyklana ufir borðið, (gjörið þið svo vel) og láni ekki bíla til prufukeyrslu án þess að það sé maður frá bílasölunni með!.

Nákvæmlega, svo virðast þessir bilasalar ekki bera ábyrgð á neinu ef eitthvað kemur fyrir bíllinn.

Re: Ath stolinn bíll ( Fundinn)

Posted: 17.júl 2013, 23:39
frá Startarinn
Ég fer nú ekki oft á sölurnar, er undanfarin skipti hef ég orðið að framvísa ökuskírteini áður en ég fæ lyklana, kannski er ég bara með ótraustvekjandi andlit

Re: Ath stolinn bíll ( Fundinn)

Posted: 18.júl 2013, 05:15
frá íbbi
hafandi verið bílasali af og til í gegnum árin þá er ég mjög hissa ef menn eru að leyfa fólki að bruna í burtu án þess að skilja eftir skilríki.

en í þessum bransa eins og öðrum koma upp ýmsar aðstæður sem er mis auðvelt að tækla. oft eru nokkrir bílar í prufuakstri í einu og ekki starfsmannafjöldi á söluni til að fara með í hverja ferð án þess að salan væri starfsmannalaus í tíma og ótíma. oft er líka annað fólk á söluni sem þarf líka að sinna.

vissulega reynir maður að vega og meta hvern einstakling fyrir sig og hleypir ekki manni á bíl sem að maður myndi ekki leyfa að prufa sinn eiginn bíl án eftirlits.
maður hefur reynt að tækla svona mál á þann hátt sem maður telur að síst geti orðið til þess að hlutur sem þessi geti skeð. og prufað hinur ýmsu aðferðir við það, t.d ef það er mikið að gera leyft aðilanum að fá lyklana, skoða bílinn, setja hann í gang og flr en ekki fara á honum, og þá getur maður fylgst með honum á sama tíma og maður er að afgreiða annan. ef aðilinn hefur svo áframhaldandi áhuga á bílnum biðja hann um að hinkra þangað til maður getur komið með. eða jafnvel fá eigandann á staðinn.
fólk getur svo sjálft verið gjörsamlega eins og svart og hvítt, á sama tíma og einhver myndi bilast yfir því að einhverjum hefði verið hleypt eftirlitslaust í reynsluakstur á bílnum hans, er alveg jafn margir sem yrðu ekki minna fúlir ef þeir vissu að maður hefði hindrað hugsanlegan kaupanda í að prufa bílinn og þar með eyðilagt husanlega sölu.

nú er ég ekki að réttlæta eitt eða neitt heldur eingöngu setja fram eitt sjónarmið með.

bílasölur eru tryggðar varðandi ýmsa hluti og tjón sem beinlínis má reka til mis eða vangjörða bílasalans sem er með leyfið eða undirmönnum hans sem starfa í skjóli hans réttinda (sölufulltrúar)
ég held að þetta komi nú aðalega til skjalana þegar að beint fjárhagslegt tjón hefur orðið af völdum pappíprsklúðurs eða hreinna svika að hans hálfu bílasalans eða undirmanns,

ég held að ég fari alveg rétt með að bílasalan hafi ekki lagalega bóta/ábyrgðaskyldu í máli sem þessu. og tek fram að ég byggi það ekki á neinn hátt á því hvað mér sjálfum finnst svo um það. það er allt önnur saga.

Re: Ath stolinn bíll ( Fundinn)

Posted: 18.júl 2013, 13:40
frá pfp
Bíllinn var ekki á bílasölu heldur auglýstur á bland og sýndur við heimahús.
Parið sem eru góðkunningjar lögreglunar vantaði að komast til Akureyrar og hefur gert þetta áður líka á bílasölum

Re: Ath stolinn bíll ( Fundinn)

Posted: 18.júl 2013, 18:59
frá íbbi
maður hefur verið varaður við þessum manni. það eru myndbirtingar í gangi á l2c