Hvaða dekk þola úrhleypingu?

User avatar

Höfundur þráðar
snöfli
Innlegg: 287
Skráður: 03.sep 2010, 19:21
Fullt nafn: Lárus Elíasson
Bíltegund: Patrol Y61

Hvaða dekk þola úrhleypingu?

Postfrá snöfli » 13.júl 2013, 22:05

Hef verið að spekulera hvaða dekk er best að setja undir?

Mörg af skemmtilegustu dekkjunum hafa ekki reynst þola vel úrhelypingar s.s. sum IROK, MTZ, Parnelli...

Meðan mörg gömlu dekkin s.s. Ground Hawg, Mudder, 44"DC og AT405 virðast þola þetta betur.

Nú þarf helst stærra undir Patrol Y61 en 38" og því kemur spurningin til þeirra sem af því hafa reynslu hvaða dekk eru að þola þessar úthelypingar best? Hafa menn reynt t.d. 42" Good Year?

Gott ef menn deila því sem þeir hafa reynt.

mbk. l.




Kárinn
Innlegg: 180
Skráður: 08.apr 2010, 10:13
Fullt nafn: Kári Rafn Þorbergsson

Re: Hvaða dekk þola úrhleypingu?

Postfrá Kárinn » 14.júl 2013, 13:20

mín reynsla er að irok 42" sem er nilon þolir úrhleypinguna en 41" og neðar sem er radial þolir hana ekki.

supersvamper tsl 38" polir þetta fínt og slitna ekki hratt
44"dc og 44" supersvamper tsl þolir þetta líka mjög vel
46" MT einnig mjög vel


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur