Sælir félagar
Nú eru sumir áfjáðir í að vera með dekk sem eru með munstur niður á hliðar til að verja dekk á mjög grýttum slóðum. Hvað segja menn um þetta og eru einhver dekk sem eru bara alhliða í þetta allt saman, þ.e. gott að keyra á þeim, endast vel og duga í bæði sumar og vetrarakstur.
btw er að tala um 35" og þar í kring
er sjálfur búinn að vera á DC fun country, General Grabber AT, bfgoodrich AT og MT og Durango dekkjum. Finnst General Grabber AT bestu keyrsludekkin en DC best í snjó
kv Tolli
Dekk og sumarakstur
Re: Dekk og sumarakstur
35" sumardekk myndi ég alltaf taka Toyo OpenCountry MT ef verð er ekki fyrirstaða. Hringlótt, hljóðlát með eindæmum og slitla lítið. Þunnir kubbar uppá hliðar gefa eh grjótvörn og ég hef ekki lent í vandræðum með sumarúrhleypingar undir 4,5T bílnum hjá mér.
Hinsvegar uppá besta verðið hugsa ég að dekkverk með BFG MT væri eh sem ég færi í.
Hinsvegar uppá besta verðið hugsa ég að dekkverk með BFG MT væri eh sem ég færi í.
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur