Síða 1 af 1
BFGoodrich dekk.....
Posted: 05.júl 2013, 21:06
frá Garpur
Ég er að velta fyrir mér kaupum á slíkum dekkjum 35" en á erfitt með að velja á milli AT og MT, finnst reyndar MT munnstrið helvíti spennandi þó svo að ég viti að AT dekkin séu mun vænlegri kostur sem keyrsludekk. Hvað segja menn sem hafa reynslu af þessum dekkjum?
Kv
Almar
Re: BFGoodrich dekk.....
Posted: 05.júl 2013, 21:41
frá ivar
Ég er ánægður með bæði munstrin en valdi síðast MT í 37".
Var á flestan hátt sáttur með þau þá fáu km sem ég keyrði þau nema þau stóðust ekki væntingar í hálku. ATH, þau voru hvorki míkroskorin né á nöglum.
Re: BFGoodrich dekk.....
Posted: 05.júl 2013, 22:25
frá Navigatoramadeus
er með mikróskorin AT BF Goodrich og ég er mjög sáttur við þau, gott grip í hálku og hljóðlát.
annars ein pæling með BF Goodrich á Íslandi, hef stundum verið að skoða aldursmerkingar á þeim og það er stundum engin aldursmerking, er það eitthvað í dæminu það sé verið að flytja inn gömul dekk eða "óæðri" en mér finnst ekki eðlilegt að það sé nóg eftir af munstrinu en komnar langar sprungur í hliðum og fjölmargar litlar sprungur í banann ?
Re: BFGoodrich dekk.....
Posted: 05.júl 2013, 22:44
frá smaris
Get hiklaust mælt með AT.
Keypti mér svoleiðis 33" síðasta haust og það var eins og ég hefði eignast nýjan bíl þegar þau voru komin undir.
Þau eru hljóðlát, mjúk og grípa vel í snjónum. Svo virðast þau einnig slitna hægt.
Kv. Smári
Re: BFGoodrich dekk.....
Posted: 05.júl 2013, 23:00
frá Victor
Sammála með að þau eru að springa á bananum
Re: BFGoodrich dekk.....
Posted: 06.júl 2013, 10:07
frá Tjakkur
35" BFG MT fyrir 15" felgu er ekkert annað e dauðagildra og eiga til að springa á hliðum í þjóðvegaakstri. Þar er ég að tala um nær ný dekk sem einungis hafði verið ekið óverulega í snjó á lágum þrýstingu undir léttum bíl.
Aldrei að kaupa þessar vítisvélar ef þú ætlar að hleypa úr.
Re: BFGoodrich dekk.....
Posted: 06.júl 2013, 14:24
frá Geir-H
Hef keyrt mikið á AT mæli hiklaust með þeim
Re: BFGoodrich dekk.....
Posted: 06.júl 2013, 22:05
frá Freyr
MT er frekar málið. AT eru of fínmunstruð fyrir minn smekk. Hef átt hvoru tveggja sjálfur og einnig faðir minn og félagarnir...
Re: BFGoodrich dekk.....
Posted: 08.júl 2013, 01:22
frá Stebbi
35" BFG AT þola engan vegin úrhleypingu, ef þú ert eitthvað að spá í að hleypa úr af og til þá skaltu gleyma þeim strax. Þau vírslitna við felgukanntinn ef þau eru keyrð úrhleypt.