Síða 1 af 1

Bremsudiska hlífar

Posted: 04.júl 2013, 11:56
frá Geiri
Veit einhver hér hvort það er skylda að vera með bremsudiska hlífar, fær maður skoðun ef þær vantar.

Re: Bremsudiska hlífar

Posted: 04.júl 2013, 13:07
frá Diesel
Það eru alls ekki allir bílar með hlífar original. Get ekki ímyndað mér að menn hafi eitthvað út á það að setja að þær vanti.

Re: Bremsudiska hlífar

Posted: 04.júl 2013, 13:14
frá villi58
Geiri wrote:Veit einhver hér hvort það er skilda að vera með bremsudiska hlífar, fær maður skoðun ef þær vantar.

Þetta snýst um fleira en að komast í gegnum skoðun, gera gagn líka.

Re: Bremsudiska hlífar

Posted: 04.júl 2013, 15:05
frá Geiri
villi58 wrote:
Geiri wrote:Veit einhver hér hvort það er skilda að vera með bremsudiska hlífar, fær maður skoðun ef þær vantar.

Þetta snýst um fleira en að komast í gegnum skoðun, gera gagn líka.


Geri mér fulla grein fyrir því spurningin er bara hvort þær séu skyldubúnaður,og hvort maður fái skoðunn án þeirra.

Re: Bremsudiska hlífar

Posted: 04.júl 2013, 16:21
frá jongud
Þessar hlífar koma held ég alltaf "original" að framan og þess vegna er hætta á að það séu gerðar athugasemdir ef þær vantar þar.
Á afturhásingum er algengara að þær séu ekki.

Re: Bremsudiska hlífar

Posted: 04.júl 2013, 17:11
frá ellisnorra
Ég veit ekkert fyrir víst, en þó þessar hlífar komi original þá er ekki sjálfgefið að þær þurfi að vera, frekar en ballancestangir eða fullt af allskonar útbúnaði sem við rífum úr bílunum okkar.
Hinsvegar er það alveg skýrt að allur búnaður sem er í bílnum skal vera í lagi. Ef hlífin er mikið skemmd eða mikið ryðguð þá gætiru fengið endurskoðun en efast um endurskoðunina ef hana vantar algjörlega.

Re: Bremsudiska hlífar

Posted: 04.júl 2013, 17:35
frá Óskar - Einfari
Ég fjarlægði þessar hlífar af afturhásingunni og fékk enga athugasemd. Hef ekki ennþá tímt að kaupa þær, kosta minnir mig 20 eða 25þ stykkið en þetta er á patrol afturhásingu.