Síða 1 af 1

80 Cruser bensín

Posted: 29.jún 2013, 13:14
frá sukkaturbo
Sælir félagar var að pæla í bensín 80 Cruser eru þeir allir 6 cyl. Eru þeir ekki til hér V-8 bensín og þá spurning er mikil munur á disel og bensín í krafti og þægindum og eyðslu. Ég er með disel bíl 35 til 38" breittan sjálfskiptan og er með 12 til 15 í langkeyrslu og 20 og yfir innanbæjar hef séð 35 að vetri. Nú er kominn tími á að skipta um bíl og það væri gaman að prufa bensín bílinn og þá v-8 með öllu ef hann er til kveðja guðni

Re: 80 Cruser bensín

Posted: 29.jún 2013, 14:00
frá xenon
Lc 80 er bara 6 cyl bensín en svo kemur lc 100 V8 bensín og hann kann að eiða

Re: 80 Cruser bensín

Posted: 29.jún 2013, 14:55
frá sukkaturbo
Sæll okey takk fyrir það

Re: 80 Cruser bensín

Posted: 29.jún 2013, 16:39
frá Navigatoramadeus
var að vinna með einum sem átti LC80 með V6 og hann vildi ekki segja hvað hann eyddi, svo var ég einhverntíman á óbreyttum LC100 með V8 og eyðslumælirinn í bílnum sagði 22-24 l/100km innanbæjar í rólegheitaakstri að sumri svo það má búast við hressilegum tölum eftir breytingar og í einhverjum látum !

ég var að gera við LC120 með V6 (4,0 ltr) og eyðslumælirinn sagði 14,7/100km en eyðslumælar eru nú svosem ekki þekktir fyrir neina ofurnákvæmni enda einsog þessi kominn á 35" en flott ef stenst :)

Re: 80 Cruser bensín

Posted: 29.jún 2013, 20:20
frá smaris
Sæll Guðni.

Ég hef mikið ekið LC80 dísel og á sjálfur LC80 bensín þannig að ég hef talsverðan samanburð.
LC80 bensín kom bara með 6 sylindra línuvél.
Mér finnst báðir bílarnir mjög sambærilegir og kann ég mjög vel við báða, enginn stór munur á vinnslu en bensínbíllinn er samt mikið hljóðlátari. Ef ég ætti dísel bíl mundi aldrei skipta yfir í bensínbílinn vegna eyðslumuns, sem er verulegur.
Bíllinn minn er á 38" með 4.10 hlutföllum og er að eyða 20 lítrum á hundraði í langkeyrslu, sem er nú reyndar lægra en ég gerði ráð fyrir þegar ég keypti hann. En þegar komið er til fjalla finnst mér hann eyða 100% meira en dísellinn sem er allt of mikill munur.

Kv. Smári

Re: 80 Cruser bensín

Posted: 29.jún 2013, 21:12
frá sukkaturbo
Sæll Smári og takk fyrir þessar upplýsingar kveðja guðni