Síða 1 af 1
350 jeppa eða fólksbíla skipting
Posted: 29.jún 2013, 08:08
frá biturk
hver er munurinn á þessu? er hægt að nota fólks ílaskiptinguna í jeppa eða er þetta allt annar hlutur?
Re: 350 jeppa eða fólksbíla skipting
Posted: 29.jún 2013, 22:43
frá ellisnorra
Alveg sama skiptingin, bara annar öxull afturúr henni og svo millistykki fyrir skiptingu.
Til að skipta um öxulinn þarf að rífa allt innanúr skiptingunni, því hann er alveg innstur í húsinu :)
Re: 350 jeppa eða fólksbíla skipting
Posted: 29.jún 2013, 22:45
frá jeepcj7
Eða bara halda öxlinum og smíða lengra millistykki.
Re: 350 jeppa eða fólksbíla skipting
Posted: 30.jún 2013, 17:14
frá biturk
Er vont eða dýrt að fá svona öxul? Og millistykkið passar á þannig
Re: 350 jeppa eða fólksbíla skipting
Posted: 30.jún 2013, 20:52
frá ellisnorra
Þessi öxull og millistykki er á öllum 4x4 skiptingum, þannig að það ætti nú að vera eitthvað framboð :) Millistykkin eru samt væntanlega mismunandi eftir millikössum. Best væri að fá steikta skiptingu með kassa ef þú átt skiptingu í lagi til að færa á milli og sameina.