Síða 1 af 1

Relay vandamál

Posted: 22.jún 2013, 16:24
frá Tollinn
Getur einhver útskýrt fyrir mér þessa mynd og hvort það er hægt að nota þetta rely fyrir kastara, er ekkert mjög tæknivæddur þegar kemur að bílarafmagni, hehe

kv Tolli

Re: Relay vandamál

Posted: 22.jún 2013, 16:49
frá villi58
Nei þetta er frá Taiwan. Vantar betri upplýsingar hvernig það virkar.

Re: Relay vandamál

Posted: 22.jún 2013, 17:01
frá Aparass
já það er ekkert vandamál að nota þetta fyrir kastara.
Oftast eru tveir pólarnir í þessu koparlitaðir, það eru pólarnir sem bera strauminn á milli, semsagt póll 30 og 87 á standard rely.
Hinir tveir eru þá ræsing á relyinu og nánast alltaf silvurlitaðir, semsagt 85 og 86, þeir tengjast í jörð og í rofann í mælaborðinu, þarft síðan auðvitað að leggja plús að rofanum í borðinu.

Re: Relay vandamál

Posted: 22.jún 2013, 17:19
frá villi58
Aparass wrote:já það er ekkert vandamál að nota þetta fyrir kastara.
Oftast eru tveir pólarnir í þessu koparlitaðir, það eru pólarnir sem bera strauminn á milli, semsagt póll 30 og 87 á standard rely.
Hinir tveir eru þá ræsing á relyinu og nánast alltaf silvurlitaðir, semsagt 85 og 86, þeir tengjast í jörð og í rofann í mælaborðinu, þarft síðan auðvitað að leggja plús að rofanum í borðinu.

Þarf hann ekki að vita hvað þetta er mörg amper áður en hann fer að tengja, örugglega eitthvað lítið og ræfilslegt relay, ekki ólíkt þurkurealy eða fyrir lítinn notenda.

Re: Relay vandamál

Posted: 22.jún 2013, 18:09
frá olei
Það sést á efri teikningunni að spólan er í pinnunum vinstra megin (ígildi 85 og 86) - straumur frá rofa og jörð. Og rofinn er í pinnunum hægra megin - kraftur frá rafgeymi fer í annan, (gegnum öryggi ef við erum í góðu skapi) og hinsvegar lögnin í kastarana.

Google segir að þetta sé 30A relay sem dugar þá fyrir ríflega 300W

Re: Relay vandamál

Posted: 23.jún 2013, 14:29
frá Tollinn
Takk fyrir góð svör

kv Tolli

Re: Relay vandamál

Posted: 24.jún 2013, 09:05
frá Tollinn
Þetta eru eitthvað skrítin relay, ef ég merki pinnana

1 - 2
3 - 4

Eins og myndin sýnir, þá leiðir milli 2 og 3, þ.e. sá sem ætti að fara á jörð nr. 3 og sá sem ætti að fara annað hvort á plúsinn eða notandann, er þetta ekki eitthvað skrítið?

kv Tolli

Re: Relay vandamál

Posted: 24.jún 2013, 09:35
frá Aparass
Ég veit nú ekkert hvaða pólar eru númer hvað en pólarnir hægra megin tengjast í ljóskastarann og kraft, hinir tveir vinstra megin tengjast í jörð og í rofann hjá þér.

Re: Relay vandamál

Posted: 24.jún 2013, 13:16
frá Tollinn
Já, en efri póllinn sem er hægra megin á myndinni leiðir í neðri pólinn vinstra megin, er það ekki skrítið?

Re: Relay vandamál

Posted: 25.jún 2013, 00:57
frá Aparass
Uhh, nei hann gerir það ekki.

Re: Relay vandamál

Posted: 25.jún 2013, 13:11
frá Tollinn
Nei hann gerir það ekki á myndinni en ég mældi þau relay sem ég á og það leiðir á milli þessarra tveggja póla sem ég talaði um hér að ofan. En sennilegast borgar sig fyrir mig að vera ekkert að spá í þetta og nota bara venjuleg relay, ég á bara nokkur svona og var að spá í að nota þetta.

kv Tolli

Re: Relay vandamál

Posted: 25.jún 2013, 20:08
frá olei
Hvað er þessi leiðni í OHM-um (ómum). Skrýtið að skrifa þetta..
Er leiðni milli fleiri pinna og hversu mikil ?

Við hér á Jeppaspjallinu gefumst ekki upp fyrir 4 pinna relay bardagalaust!

Re: Relay vandamál

Posted: 25.jún 2013, 20:11
frá hobo
Ég var að spá í að nota svona reley um daginn. Opnaði það bara og þá gat maður séð vel hvert pólarnir lágu. 12v inn á spóluna, þá klikkaði í rofanum og leiðni komin á í gegn um rofann.

Re: Relay vandamál

Posted: 25.jún 2013, 20:38
frá villi58
Bara opna ef enginn veit neitt, ekkert mál að kítta það saman aftur. Bora læsingarpinnana úr eða hausana af og opna.
Ferð varla að gefast upp á einu ræfils relay, allt fyrir vísindin og svo fréttir þegar þú ert búinn. Ég á fullt af svona dóti þannig að það væri gott að vita hvernig þetta virkar.

Re: Relay vandamál

Posted: 25.jún 2013, 22:07
frá Tollinn
Búinn að opna þetta og mæla allt í drasl

Sé svo reyndar að það stendur dimmer relay á þessu

ef pinnarnir af myndinni eru skýrðir eins og þeir liggja

1 - 2
3 - 4

þá leiðir hreint milli 2 og 3, þ.e. fjölsviðsmælirinn vælir og vælir

mæld mótstaða milli 1 og 2 og milli 1 og 3 er 75,3 ohm

engin leiðni er á milli 4 og nokkurra annara pinna

Re: Relay vandamál

Posted: 25.jún 2013, 22:22
frá villi58
Eru tveir spaðarnir (tengin) breiðari ?, ef svo er þá er það krafturinn og mjórri stýringin (spólan).

Re: Relay vandamál

Posted: 25.jún 2013, 22:41
frá Tollinn
Allir spaðarnir eru eins fyrir utan þann sem er koparlitaður.

Þetta relay virðist virka þannig að þegar relayið fær straum skiptir það pinna 3, frá 2 yfir á 4.

Til að nota þetta Relay ætti ég því að geta sett pinna 3 á plúsinn á geyminum, tekið jörð í gegnum rofann og þannig tengt kastarana við pinna 4. Ef það er eitthvað sem ég vil síðan að hafi stöðugan straum en slokkni síðan á þegar ég nota kastarana, getur það tekið straum frá pinna 2, spurning hvaða furðulegi notandi það ætti að vera. En ef maður spáir í það, ætti relayið ekki að þurfa stírisstrauminn í gegnum rofann heldur bara jörð fyrir relayið þannig að það skipti á milli. Er ég kominn í ruglið núna eða ætti þetta ekki að ganga upp svona.

kv Tolli