Síða 1 af 1

2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 11.jún 2013, 21:42
frá -Hjalti-
við pabbi erum að setja 2.9 tdi mótor í benz 410 4x4 fjallatrukk. það er í honum 2.9 n/a mótor.
Hver er munurinn involsinu á móturunum sem komu orginal með turbo og svo þeim sem komu ekki með turbínu og Bílabúð Benna lét smíða turbo utaná?
er hægt að sjá utaná þeim hvor er hvað ?

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 11.jún 2013, 22:09
frá jeepcj7
Helsti munurinn er að á benna turbo er soggreinin tengd í risaplastdollu v.megin á vélinni en orginal turbo er með grein sem liggur yfir mótorinn að túrbínu þetta er svona augljóasti munurinn,veit aftur á móti ekki hve mikill innri munur er á þeim þjappa,stimpilkæling ofl.
Image
orginal turbo
Image
Ekki orginal turbo

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 11.jún 2013, 22:25
frá -Hjalti-
Þá erum við greinilega með orginal turbo mótor í höndunum. væri gaman að vita munin á involsinu á turbo og n/a mótornum. Hvort það borgaði sig að strípa musso motorinn og færa allt yfir á mótorinn sem er í bílnum.

Image

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 11.jún 2013, 23:18
frá dragonking
Það er "mikill" munur á þykkt á stimpilstöngum...veit ekki hvort það sé meira sem er sterkara í orginal turbo en ég myndi nota orginal turbo mótorinn..... geyma frekar n/a mótorinn...fékk að vita þetta einmitt þegar bróðir mömmu var að setja n/a motor í benz húsbíl í staðinn fyrir bensín mótor... hann var í turbo pælingum og fékk að vita þetta hjá fróðum mönnum...og hætti við að turbo væða :)

Eftir á turbo var frá STT og er með hringlaga loftsíu og box, held samt að það sé góð ending á mussó mótorunum sem þetta var bætt við, allavega hefur reynslan sýnt það.

kv.
Davíð Freyr

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 11.jún 2013, 23:22
frá logimar
Það er einhver munur á þessum vélum en ég er bara ekki viss um í hverju hann liggur. Hef heyrt að það séu aðrir stimplar í orginal turbo bílnum en sel það ekki dýrara en ég keypti það. Það eru tveir menn sem ég get ráðlagt þér að leyta upplýsinga hjá, það eru Tóti "Musso" í Musso varahlutum í Hafnarfirði og svo hins vegar Tóti, fyrrverandi verkstæðisformaður hjá Benna en hann er í dag að vinna í versluninni hjá Benna. L.M.

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 12.jún 2013, 01:13
frá Þorri
Orginal turboinn er með annað olíuverk og annan knastás smurkælingu á stimpla og sverari stangir. Ég man ekki hvort það er eitthvað fleira. Það er hægt að ná meira afli útúr orginal turbonum þar sem olíuverkið flæðir meira og knastásinn er opinn aðeins lengur. Ef það á að láta túrbínuna blása meira en orginal þá borgar sig að herða heddboltana 1/4 hring í viðbót við uppgefna herslu. Orginal garrett túrbínan getur blásið ca 26 psi (ég hef séð það á mæli hjá mér) ég mæli ekki með svoleiðis æfingum. Hjá mér er hún að blása 14-16 psi er með orginal garrett bínu á non turbo mótor olíuverkið er skrúfað upp eins og hægt er og afgashiti fer aldrei yfir 550 gráður. (mælirinn er í greininni fyrir framan túrbínu)

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 12.jún 2013, 08:25
frá jongud
Þorri wrote: ... en orginal þá borgar sig að herða heddboltana 1/4 hring í viðbót við uppgefna herslu....


Er ekki betra að verða sér frekar úti um góða blindbolta í heddið eins og ARP er að selja heldur en að hætta á að slíta originalboltana?

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 12.jún 2013, 08:59
frá ellisnorra
jongud wrote:
Þorri wrote: ... en orginal þá borgar sig að herða heddboltana 1/4 hring í viðbót við uppgefna herslu....


Er ekki betra að verða sér frekar úti um góða blindbolta í heddið eins og ARP er að selja heldur en að hætta á að slíta originalboltana?



Ekki myndi ég hætta á að herða heddbolta meira sem hafa ekki verið hreyfðir svo árum skipti, nema að skrúfa einn og einn úr, bursta hann og smyrja aftur, herða að uppgefnu og svo 1/4 hring meira. Það er þó riskí að mínu mati, en að herða þá án þess að kíkja á þá er bara rússnesk rúlletta að mínu viti.

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 12.jún 2013, 12:35
frá jeepcj7
Ef heddið er tekið á annað borð á víst að skipta heddboltunum út þannig að þeir eiga að vera nýjir þegar hersla á sér stað (eru alveg skítódýrir minnir mig) það getur vel verið að þeir þoli smá herslu til viðbótar er samt góður slatti fyrir.

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 12.jún 2013, 15:21
frá Þorri
Ég hefði kannski átt að taka það fram að ég herti boltana hjá mér 1/4 hring aukalega eftir heddpakkningarskipti og ég var með nýja benz bolta keypta hjá öskju. Þá var ég búinn að keyra ca 1500 km á nýju pakkningunni. Þessa 1500 km var ég með túrbínuna á 12 psi og eftir endurherslu fór ég með hana í 16 psi og er búinn að keyra 25000 km þannig.

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 12.jún 2013, 16:20
frá ellisnorra
Þorri wrote:Ég hefði kannski átt að taka það fram að ég herti boltana hjá mér 1/4 hring aukalega eftir heddpakkningarskipti og ég var með nýja benz bolta keypta hjá öskju. Þá var ég búinn að keyra ca 1500 km á nýju pakkningunni. Þessa 1500 km var ég með túrbínuna á 12 psi og eftir endurherslu fór ég með hana í 16 psi og er búinn að keyra 25000 km þannig.



Já þetta hefðiru átt að taka strax fram :) Þetta eru mun betri vinnubrögð heldur en mann grunaði í upphafi :)

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 12.jún 2013, 16:25
frá Þorri
Hálf kjánalegt að þurfa að taka það fram að maður vinnur ekki með endaþarminum.

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 12.jún 2013, 17:32
frá StefánDal
Þorri wrote:Hálf kjánalegt að þurfa að taka það fram að maður vinnur ekki með endaþarminum.


Já ekki datt mér í hug að þetta væri gert öðruvísi en þú lýsir því hér að ofan.


En hvað getið þið sagt mér um High Output týpuna? Var það eitthvað sem var gert hjá Benna? Mig minnir að ég hafi heyrt að olíuverkinu hafi verið flýtt?

Re: 2.9 TDI MUSSO , munurinn á orginal turbo og Benna turbo kit

Posted: 13.jún 2013, 04:02
frá Þorri
High output var búið til hjá benna. Ég heyrði að olíuverkin hefðu verið boruð út til að auka flæði og eitthvað meira. Veit ekki hvað er til í því en þeir vinna allavega fínt.