Síða 1 af 1

Bílbeltaskylda ?

Posted: 09.jún 2013, 20:08
frá Aparass
Er ekki skylda að vera í belti eða allavega vera í bílsæti hérna á íslandi ?
Held að þetta gefi túristum solldið ranga mynd af hvað má hér og hvað má ekki.
Image

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 09.jún 2013, 20:20
frá HaffiTopp
Ef aðstæður kalla á að hafa beltin ekki spennt, svo sem til að geta forðað sér úr bílnum á skjótann hátt má losa þau af sér.
Svo má losa beltin þegar menn eru að bakka og þurfa að lýta útum afturrúðuna.

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 09.jún 2013, 20:22
frá Aparass
Ég má semsagt hanga upp á þaki....

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 10.jún 2013, 00:26
frá Stebbi
Aparass wrote:Ég má semsagt hanga upp á þaki....


Öruggasti staðurinn á Jimny ef þú ætlar yfir eitthvað dýpra en poll.

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 10.jún 2013, 03:12
frá Atttto
Bara setja svona inn á facebook síðu lögreglunar, þá hljóta þeir að gera athugasemdir við viðkomandi aðila.

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 10.jún 2013, 12:11
frá -Hjalti-
Atttto wrote:Bara setja svona inn á facebook síðu lögreglunar, þá hljóta þeir að gera athugasemdir við viðkomandi aðila.



Það er engin bílbeltaskylda þegar ekið er yfir ár.

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 10.jún 2013, 12:24
frá bjornod
Þetta snýr ekki að bílbeltanotkun enda er grein um leiki í umferðarlögum:

6. gr. Eigi má stökkva af eða upp í ökutæki á ferð eða vera utan á ökutæki á ferð.
Eigi má draga vagn, sleða eða þess háttar aftan í ökutæki, sbr. þó 62. gr. Eigi má hanga í ökutæki á ferð eða draga með ökutæki á vegi þann, sem er á skíðum, hjólaskíðum, skautum eða svipuðum tækjum.
Eigi má vera að leik á vegi, þannig að til óþæginda verði fyrir umferð.

Sektin við þessu er 5.000 kr ;)

http://us.is/Apps/WebObjects/US.woa/swd ... im,+nr.pdf

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 10.jún 2013, 12:27
frá bjornod
-Hjalti- wrote:
Atttto wrote:Bara setja svona inn á facebook síðu lögreglunar, þá hljóta þeir að gera athugasemdir við viðkomandi aðila.



Hér er reglugerð:

http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/We ... 2/348-2007

og undanþágur eru:

5. gr.
Undanþága frá notkun öryggisbeltis:

Ekki er skylt að nota öryggisbelti í ökutæki í eftirfarandi tilvikum:
Þegar ekið er aftur á bak eða við akstur á bifreiðastæði, við bensínstöð, viðgerðarverkstæði og við sambærilegar aðstæður.
Við erfiðar eða hættulegar aðstæður utan þéttbýlis, svo sem í mikilli ófærð eða þar sem hætta er á skriðuföllum eða snjóflóðum.
Í lögreglubifreiðum við flutning handtekinna manna eða annarra, sem hætta kann að stafa af, svo og við sérstaka öryggisgæslu.
Í leigubílaakstri við flutning farþega í atvinnuskyni.
Þegar ekið er í atvinnuskyni þar sem hraði er jafnan lítill og fara þarf úr og í ökutæki með stuttu millibili.
Þegar heilsufars- eða læknisfræðilegar ástæður valda því að ökumaður eða farþegi ökutækis er undanþeginn notkun öryggisbeltis á grundvelli læknisvottorðs. Læknisvottorði skal framvísað sé þess óskað.

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 10.jún 2013, 15:01
frá StefánDal
Erum við nokkuð að ESB-a á okkur hérna strákar?

Eigum við ekki að gera ráð fyrir því að allflestir túristar séu ekki alveg tómir í hausnum og kunni að nota belti?
Slökum aðeins á :)

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 10.jún 2013, 15:05
frá bjornod
Aðal málið er að á myndinni er Jimny en ekki Grand Vitara!

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 10.jún 2013, 18:33
frá JóiE
En svona í smá alvöru, þá er nú ekki verið að sýna góða mynd akstri á Íslandi.. þetta er nú ekki það sem við viljum láta útlendinga halda að sé í lagi að gera. Og hvað þá að hafa mynd af Jimny og auglýsa Grand Vitara..

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 10.jún 2013, 18:56
frá StefánDal
bjornod wrote:Aðal málið er að á myndinni er Jimny en ekki Grand Vitara!


Það er rétt. Þarna er verið að gera lítið úr Jimny.

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 10.jún 2013, 21:33
frá Aparass
Ég var nú solldið að grínast með beltin en þetta gefur samt solldið ranga mynd af hvað má og hvað má ekki á fjallvegum á íslandi. Ég man að það var mikið hneikslast á því þegar liðið hékk upp á þaki á tékknesku rútunni sem keyrði utan vegar og endaði síðan út í vatni.

Re: Bílbeltaskylda ?

Posted: 11.jún 2013, 23:05
frá Atttto
-Hjalti- wrote:
Atttto wrote:Bara setja svona inn á facebook síðu lögreglunar, þá hljóta þeir að gera athugasemdir við viðkomandi aðila.



Það er engin bílbeltaskylda þegar ekið er yfir ár.


burt séð frá bílbeltaskyldunni þá situr maðurinn á toppnum á bílnum ég leyfi mér að efast um að það sé löglegt

en mikið rétt þá er mikið lagt að jimny þarna, súkka er ekki bara súkka.