Síða 1 af 1

Izuzu Trooper - Reynsla

Posted: 07.sep 2010, 00:55
frá Magnús Þór
Jæja,,,mann langar líka ða heyra reynslusögur af trooper,,er það rétt að vélarnar hafa verið að fara á 100þ km fresti ?
Magnús

Ps, ef þetta er fyrir ykkur hérna í Almennt þá er í lagi mín vegna að færa þetta eitthvað annað.

Re: Izuzu Trooper - Reynsla

Posted: 07.sep 2010, 07:53
frá jeepcj7
Er með einn á 35" ekinn um 200.000 með óhreyfðan mótor fyrir utan að einhverntimann var skipt um spíssa af umboði nýlega er búið að skipta um kúplingu með kasthjóli og alles og svo var skipt um bremsudiska fyrir ekki svo löngu annað er ékki búið að gera svo ég viti til.Alveg sómabíll sem vinnur alveg þokkalega allavega miðað við að vera keyrður á grút.:)
Ps.Svo notar hann frekar lítið af grút í þokkabót er að fara með svona 11-13 lítra hef ekki náð meiri eyðslu jafnvel með stóra kerru í drætti.

Re: Izuzu Trooper - Reynsla

Posted: 09.sep 2010, 19:53
frá Stebbi
Í snjóakstri eru þeir frekar framþungir miðað við hina skáeygðu frændur sína, en það er ekkert sem má ekki læra á. Svo er að vísu ferlega vont að fá í þetta hluti til breytinga eins og læsingar og lægri hlutföll.

Re: Izuzu Trooper - Reynsla

Posted: 09.sep 2010, 22:20
frá halendingurinn
ég fékk loftlása í minn bæði að framann og að aftan og lækkaði millikassann í honum.

Re: Izuzu Trooper - Reynsla

Posted: 10.sep 2010, 09:04
frá Sævar Örn
isuzu trooper eru rosa góðir
komast nánast aaaaalt
það er rosa svaaaalt
....................


söng ekki einhver íslensk poppsveit þetta á balli, minnir það