Síða 1 af 1

Bremsudælur í Rexton 2009.

Posted: 04.jún 2013, 18:21
frá Jóhann
Sælt veri fólkið hér.

Nú langar mig að grafa í viskubrunnin, hvar gæti verið hægt að fá skiftidælur í Rexton II 2009? önnur dælan að aftan virðist ekki losa upp á spennuni eftir að stigið er á bremsuna, sleðarnir eru báðir liðugir þannig að það hlítur að vera stimpillinn.
kv jóhann

Re: Bremsudælur í Rexton 2009.

Posted: 04.jún 2013, 22:11
frá HaffiTopp
Þá er bara að skipta út stimplunum og gúmmíþéttingum.

Re: Bremsudælur í Rexton 2009.

Posted: 05.jún 2013, 18:18
frá Sævar Örn
Skiptidælur geta Mekonomen ábyggilega útvegað þér, eða þá Bílabúð Benna.

Svo má reyna hvort þessir helstu eigi ekki uppgerðarsett í dæluna fyrir þig, oft er nóg að hreinsa stimpilinn vel ef ekki eru komnir ryðpollar í hann.