Síða 1 af 1

Nissan Terrano 2000árg

Posted: 03.jún 2013, 23:55
frá Angi
Sælir Jeppakonur/jeppamenn :),

Ég er að skoða Nissan Terrano 2000árg disel breyttur á 33" beinskiptur.Hvað getið þið sagt mér um þessa bíla. Er há bilanatíðni í þeim ?
vitið þið til þess að digitalið í mælaborðinu sé að bila ?

Re: Nissan Terrano 2000árg

Posted: 04.jún 2013, 10:58
frá íbbi
þetta er fínir bílar. mjög seigt kramið í þeim, hafa reynst mér afar vel

helsti gallinn er ryð.
kíktu aftan á sílsana úr aftari hjólaskálini, þeir byrja þar og svo hverfur bakið af þeim, og stundum ryðgar boddyfestingin laus, ryðir heldur svo áfram frá sílsanum upp í hvalbakinn og það til að gata hann framan við lappirnar á manni
ef honum var breytt nýjum þá var oft skorið aðeins úr aftast í hjólaskálinni, það virðist ekki vel gengið frá þessu því að flestir með kanta sem ég hef skoðað eru orðnir maukrypgaðir undir köntunum,
ryðið þaðan fer í hurðastafinn sjálfan, sést vel að á mörgum eru hurðarnar byrjaðar að síga.
hef líka séð ryð í innra brettinu ofan við hjólið, og einnig í frambrettunum sjálfum, einnig undir afturstuðaranum að aftan, þar sem saumurinn á boddýinu er

framhjólastellið á þeim er aumt, sérstaklega ef þeir eru skrúfaðir upp að framan,
athugaðu ástand á millistöng(stýri) stýrisendum, og fóðringum og hvort bíllinn slýti framdekkjunum rétt.

það er ekki beint neitt að hjólalegum í þeim, en þar sem það er hægt að herða upp á þeim virðast menn oft gera það út í hið óendanlega, þessvegna eru ansi oft ónýtar hjólalegur í þeim þegar maður skoðar þá notaða.

varðandi mótorinn er það helst vantsdælan sem ég myndi athuga hvort sé ný/nýleg. ég hef þurft að skipta um þær í þeim svona bílum sem hafa verið í minni fjölskyldu.

við höfum lent í töluverðu veseni með ljósin, að framan er það dagljósabúnaðurinn sem hefur klikkað, lausnin var að taka hann úr. og að aftan þá eru vírarnir í ljósin óvarðir og kastið frá dekkjunum búið að skemma kápurnar, þetta lýsir sér þannig að afturljósin og mælaborðsljósin detta út,