Síða 1 af 1

vantar felgujárn

Posted: 01.jún 2013, 16:36
frá cameldýr
Hvar ætli sé helst að fá felgujárn á Íslandi?

Verður maður að smíða sér sjálfur, fá kannski teikningar frá Kúbu eða er til eitthvað "spray" sem ég veit ekki um, til að frussa dekkinu á felguna :)

Þessar spray og bætiefna, "og get pantað" verslanir eiga nú bara hreint ekki nokkurn skapaðan hlut af viti lengur.

spray kv. frá self. :)

Re: vantar felgujárn

Posted: 01.jún 2013, 16:46
frá hobo
Keypti mér fyrir tveimur árum, tvö stór felgujár í Verkfæralagernum Smáratorgi.
Man ekki verðið, það var ekki svo hátt. En passaðu þig á þessarri verslun, sumt þarna er á þvílíku okurverði.
T.d pílulykill á 2000 kr. Sama lykil sá ég á 300 kr á bensínstöð.

Re: vantar felgujárn

Posted: 01.jún 2013, 17:11
frá olei
Sá sæmileg felgujárn í Bauhaus um daginn. Þau voru á svipuðum slóðum og föstu lyklarnir, rétt norðan við tengurnar niður undir gólfi.

Sindri á líka felgujárn, einnig Bílanaust, Verkfærasalan Síðumúla 11 og vafalaust margir fleiri.

Re: vantar felgujárn

Posted: 01.jún 2013, 17:17
frá cameldýr
Best að athuga þar.
Að finna pílulykill var svona vesen og loftþrýstimæli fyrir minna en 10psi grrr. :)

Varðani okurverð, Wurth á netinu á felgujárn á 14.000kr og koma til með að eiga það áfram.

Re: vantar felgujárn

Posted: 01.jún 2013, 17:18
frá cameldýr
olei wrote:Sá sæmileg felgujárn í Bauhaus um daginn. Þau voru á svipuðum slóðum og föstu lyklarnir, rétt norðan við tengurnar niður undir gólfi.

Sindri á líka felgujárn, einnig Bílanaust, Verkfærasalan Síðumúla 11 og vafalaust margir fleiri.


Sindri á þau allavega ekki. Bílanaust/N1 eða hvað, þarf að panta þau,

Re: vantar felgujárn

Posted: 01.jún 2013, 18:16
frá olei
Ok, gætir tékkað á Jötunvélum fyrst að þú ert á Selfossi.

Re: vantar felgujárn

Posted: 02.jún 2013, 09:09
frá jongud
cameldýr wrote:Best að athuga þar.
Að finna pílulykill var svona vesen og loftþrýstimæli fyrir minna en 10psi grrr. :)


Ég gafst upp á að reyna að finna pílulykil og fékk mér pakka af "traktorsventlahettum" á næsta dekkjaverkstæði. Þetta eru ventlahettur með pílulyki ofaná.
það er bölvað að hafa þetta á dekkjaventlunum af því að maður getur fleiðrað sig illa ef maður rekur sig í þetta þannig að pakkinn var bara í hanskahólfinu og hetturnar notaðar í neyð og svo auðvitað sem pílulykar.
Image