Síða 1 af 1
38" Arctic trucks dekkin
Posted: 28.maí 2013, 20:59
frá Caphawk
Sælir, eru menn ánægðir með 38" Arctic trucks dekkin ? Vita menn hvaða úrval er í 38x15.5r15 ?
Er á 94 Patrol
Re: 38"
Posted: 28.maí 2013, 21:02
frá Hagalín
Pabbi keyði út svona gang og var rosalega ánægður með þau. Eru allavega bestu 38" keyrsludekk sem ég hef keyrt à.
Re: 38"
Posted: 28.maí 2013, 21:05
frá Járni
Án þess að hafa átt svona hef ég eingöngu séð ágætis hluti með berum augum.
Re: 38"
Posted: 28.maí 2013, 23:10
frá grimur
Ansi viðkvæm fyrir sóðalega vondri hjólastillingu að framan, geta klárast á smá kafla ef það er ekki í lagi.
Annars heyrt lítið annað en gott af þeim, enda hönnuð af snillingi í jeppasportinu.
Blessuð sé minning Freysa. Mikið sakna ég hans.
kv
Grímur
Re: 38"
Posted: 28.maí 2013, 23:18
frá Valdi B
átti cherokee á svona dekkjum, óbalancerað og hann var alltaf mjög góður í akstri, gat ekki komist nær því að vera jafn góður og óbreyttur bíll!
Re: 38" Arctic trucks dekkin
Posted: 29.maí 2013, 09:06
frá smaris
Hef verið mjög ánægður með þau. Gott að keyra á þeim og virka vel í snjónum.
Re: 38" Arctic trucks dekkin
Posted: 29.maí 2013, 09:16
frá peturin
Er á AT 38 undir 80 cruiser búinn að vera þar í 3 ár og er ekkert að spara bíllinn, mér sýnist á dýft mynsturs að þau munni fúna af felgum áður en þau slitna niður að mörkum :)
Re: 38" Arctic trucks dekkin
Posted: 29.maí 2013, 10:31
frá kaldi
Ég held að menn séu almennt sammála um að þetta séu jafnbestu 38"dekkin á markaðnum. þau eru heldur dýrari en flest önnur dekk en þeim sundköllum er vel varið.
Re: 38" Arctic trucks dekkin
Posted: 29.maí 2013, 18:40
frá joisnaer
notaði þetta undir land roverinn hjá mér í vetur sem keyrsludekk. kann rosalega vel við þau, rosalega góð snjódekk og hreinsa sig mjög vel í slabbi og þannig leiðindum. einnig mjög góð í hálku