2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

User avatar

Höfundur þráðar
Óskar - Einfari
Innlegg: 690
Skráður: 01.feb 2010, 08:29
Fullt nafn: Óskar Andri Víðisson
Bíltegund: Toyota
Staðsetning: Vatnsenda, Kópavogur
Hafa samband:

2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Óskar - Einfari » 21.maí 2013, 13:06

Sælir

Það er kominn tími á pústið í einfara. Hann er með 2,5" púst í dag. Spurningin er hvort það sé einhver ávinningur fyrir mig að láta smíða undir hann 3" púst umfram 2,5". Vélin sem er í honum er 1KD-FTV sem er sú sama og í LC120/LC150 þannig að þeir sem hafa átt LC120 með 2,5" eða 3" pústi geta miðlað af reynslu sinni líka.

Kv.
Óskar Andri


Toyota Hilux 2007 3.0 D-4D sjálfskiptur 38" breyttur

https://www.instagram.com/oskar.andri/


villi58
Innlegg: 2137
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá villi58 » 21.maí 2013, 16:12

Menn hafa farið offarir í þessum pústmálum, svona lítil vél á auðvelt með að riðja afgasinu út um 2,5" púst og dugar fyrir mun stærri mótora.


sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá sukkaturbo » 21.maí 2013, 16:24

Sælir mikið er ég sammála Villa. En ég segi bara orginal pústið kanski fækka um einn kút. Mundi vilja sjá mælingu í dinotest bekk fyrir og eftir sverun á pústi. Held að það mundi koma einhverjum á óvart sú niðurstaða. Sverun pústs ein og sér finnst mér ekki eiga að geta skilað mikklu. Einhvern tíman var gerð mæling á 2,8 disel turbo patrol kringum 90 árgerð og varð niðurstaðan eitthvað sem kom mönnum verulega á óvart. kveðja Guðni


villi58
Innlegg: 2137
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá villi58 » 21.maí 2013, 16:32

Það er mikklu eðlilegra að vera með 3" púst ef þú ert með 5 eða 6 lítra vél, það fer ekkert meira afturúr en það sem fer inn á mótor. Það er bara verið að stæla amerísku bílana með extra stórar vélar og ég tek ekki þátt í svona bulli, held að sé betra að eyða peningunum í eitthvað þarflegra.

User avatar

íbbi
Innlegg: 1468
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá íbbi » 21.maí 2013, 18:29

það er ekkert óeðlilegt við að setja 3" við 3.0l turbo mótor
1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra


villi58
Innlegg: 2137
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá villi58 » 21.maí 2013, 19:07

Jú það er fræðilega óeðlilegt vegna þarfar fyrir svona vél, hefur ekkert út úr því en kanski gaman fyrir suma að geta sagt öllum hvað pústið sé svert. Notið frekar peningana og smíðið pústkerfi úr góðu efni sem endist margfallt t.d. á við orginal
Kerfi. Minn er stærri en þinn, ég held að eitthvað sé til í því. Kveðja!

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Kiddi » 21.maí 2013, 19:36

Eins og góðum nörda sæmir þá bara varð ég að henda upp smá reikningum í kringum þetta, við skulum vona að það hafi aðallega verið útaf áhuga en kannski eru þetta líka einhver fráhvarseinkenni svona þegar skólinn er loksins búinn að ég hreinlega "þurfi" að reikna eitthvað. Jæja, nóg um það.
Ég á upp í hillu bókina "Maximum Boost" sem er frekar áhugaverð bók (á mannamáli) um allskonar Turbo pælingar. Einhverstaðar þar stendur að æskilegt viðmið á pústþvermáli sé að hraði loftsins verði ekki meiri en sem nemur 250 fetum á sekúndu. Þetta verður nú alltaf einhver nálgun, en ég held mér hafi tekist að reikna þetta nokkuð rétt.
Ég set inn hér reikninga fyrir þessa vél, miðað við 2.25", 2.5" og 3" púst. Geri ráð fyrir að túrbínan sé að skaffa einhver 16 pund (fann það á Google, veit ekki hversu áreiðanlegt það er!). Menn sem eru mér fróðari mega endilega benda mér á ef þetta er bölvað bull og vitleysa.

Samkvæmt þessum útreikningum myndi ég segja að 2.5" púst væri alveg passlegt. Miðað við að þvermálið sé 2.5" alla leið þyrfti að fara í 25 psi boost til að ná þessum 250 fetum á sekúndu.
Viðhengi
Púst.png

User avatar

Höfundur þráðar
Óskar - Einfari
Innlegg: 690
Skráður: 01.feb 2010, 08:29
Fullt nafn: Óskar Andri Víðisson
Bíltegund: Toyota
Staðsetning: Vatnsenda, Kópavogur
Hafa samband:

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Óskar - Einfari » 21.maí 2013, 19:53

Ég þakka fyrir svörin. Þetta er allt í samræmi við það sem mig grunaði. Ég einmitt spurði af því að ég hafði takmarkaða trú á því að 3" væri að gera eitthvað annað en hávaða fyrir þennan bíl. Þeir snillingar sem ég hef fengið ráð hjá í dag vilja einmitt meina að ávinningurinn sé bara hávaði. Einn á erlendri hilux facebook síðu svaraði því að ég ætti að fá mér 3" púst því að það væri svo mikið flottara hljóð í því í diesel vélum en það er einmitt hljóðið sem ég þoli ekki og ef ég mætti vilja vildi ég helst að það kæmi fuglasöngur út úr pústinu!! :D

Nóg um það... það verður bara farin einfaldasta leiðin og sett nýtt 2,5" púst undir hann eins og er í honum nú þegar... ekkert bull :)

Já og því má kanski bæta við að vélin í einfara er alveg orginal þ.e.a.s. enginn tölvukubbur eða turbo fikt og þannig vil ég/mun ég hafa það áfram.
Toyota Hilux 2007 3.0 D-4D sjálfskiptur 38" breyttur

https://www.instagram.com/oskar.andri/

User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2493
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá hobo » 21.maí 2013, 21:54

Óskar - Einfari wrote: ...Einn á erlendri hilux facebook síðu svaraði því að ég ætti að fá mér 3" púst því að það væri svo mikið flottara hljóð í því í diesel vélum en það er einmitt hljóðið sem ég þoli ekki og ef ég mætti vilja vildi ég helst að það kæmi fuglasöngur út úr pústinu!! :D

...Já og því má kanski bæta við að vélin í einfara er alveg orginal þ.e.a.s. enginn tölvukubbur eða turbo fikt og þannig vil ég/mun ég hafa það áfram.


Við erum með alveg eins hugsun.
Ég er með hljóðkútslaust púst undir Trooper, 2,5" held ég, og mikið fer þetta hávaða og prumphljóð í mig. Örugglega glatað á ferðalögum.
Svo vil ég hafa vélarnar orginal, ekkert tjún.

User avatar

Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Freyr » 21.maí 2013, 22:48

Þú gætir líka farið í 3" fremsta hlutann (kanski að millikassabita) og 2,5" aftan við það. Hitinn á afgasinu er lang mestur fremst en um leið og gasið kólnar rýrnar það og grennra rör dugar. Af sömu ástæðu er best að hafa kút sem aftast, sami kútur skapar minni mótstöðu sé hann aftast en ef hann er undir miðjum bíl. Síðan legg ég til að þú setjir aftast í pústið t.d. gæsaflautu (kalkúnaflauta væri þó best!) og þrumir þannig fuglasöng út um rörið!

Kv. Freyr

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Startarinn » 21.maí 2013, 23:47

Einn félagi minn er að setja vél úr 120 crúiser í 90 cruiserinn sinn, hann talaði sérstaklega að það væri ekki óhætt að svera pústið við þessar vélar, það myndi rústa variable vane dótinu í túrbínunni.

Það voru engin skotheld rök fyrir afhverju þetta ylli þessu vandamáli en ein kenningin var að flapsarnir sem stýra loftflæðinu við afgashjólið færu að titra.

Ég vil taka fram að ég hef ekki hugmynd um hvaðan hann hafði þessar upplýsingar
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


villi58
Innlegg: 2137
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá villi58 » 22.maí 2013, 00:25

Maður hefur heyrt svona sögur eins og Startarinn er að tala um, það sem ég veit um svona mál og spurt aðra meira lærða heldur en ég, það eru nefnilega alltaf einhverjar ástæður fyrir flestu og ekki síst val á rörasverleika, hver millimeter í röri hefur alveg ótrúlega mikil áhrif á flæði. Flott hjá þér Kiddi þetta er örugglega ekki langt frá sanleikanum, góður reikningur.
Of sver rör er ekkert annað en háfaði og mjög þreytandi og engin aflaukning, mín skoðun.
Það eru orðin fjandi mörg ár síðan að margir framleiðendur bíla héldu fram að hæfileg mótstaða í röri væri betri fyrir vélarnar og er það mjög trúlegt. Kveðja! VR.

User avatar

íbbi
Innlegg: 1468
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá íbbi » 22.maí 2013, 01:39

mótstaða er N/A vélum nauðsynleg.

það er hinsvegar allt annað mál þegar það kemur að turbo mótorum,

nú er ég ekki að véfengja að 3" sé óþarflega sver fyrir þennan hilux, eða það sem kiddi segir,

hef prufað ýmsar pústpælingar í gegnum tíðina, á N/A bílum hefur það verið meira maus, túrbó bílarnir hafa tekið þessu fagnandi,
1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra

User avatar

jongud
Innlegg: 2700
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá jongud » 22.maí 2013, 08:33

Freyr wrote:Þú gætir líka farið í 3" fremsta hlutann (kanski að millikassabita) og 2,5" aftan við það. Hitinn á afgasinu er lang mestur fremst en um leið og gasið kólnar rýrnar það og grennra rör dugar. Af sömu ástæðu er best að hafa kút sem aftast, sami kútur skapar minni mótstöðu sé hann aftast en ef hann er undir miðjum bíl. Síðan legg ég til að þú setjir aftast í pústið t.d. gæsaflautu (kalkúnaflauta væri þó best!) og þrumir þannig fuglasöng út um rörið!

Kv. Freyr


Stórt LIKE á þetta,
og Kiddi, ef þig vantar eitthvað fleira til að reikna, þá er þráður um OM352 vél hérna á spjallinu.
Það væri kannski áhugavert að fá að vita hvað á að setja stóra túrbínu við hana.

User avatar

íbbi
Innlegg: 1468
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá íbbi » 22.maí 2013, 08:57

tek einnig heilshugar undir svar freys
1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Kiddi » 22.maí 2013, 11:12

jongud wrote:
Freyr wrote:Þú gætir líka farið í 3" fremsta hlutann (kanski að millikassabita) og 2,5" aftan við það. Hitinn á afgasinu er lang mestur fremst en um leið og gasið kólnar rýrnar það og grennra rör dugar. Af sömu ástæðu er best að hafa kút sem aftast, sami kútur skapar minni mótstöðu sé hann aftast en ef hann er undir miðjum bíl. Síðan legg ég til að þú setjir aftast í pústið t.d. gæsaflautu (kalkúnaflauta væri þó best!) og þrumir þannig fuglasöng út um rörið!

Kv. Freyr


Stórt LIKE á þetta,
og Kiddi, ef þig vantar eitthvað fleira til að reikna, þá er þráður um OM352 vél hérna á spjallinu.
Það væri kannski áhugavert að fá að vita hvað á að setja stóra túrbínu við hana.


Úfff.... ég hef ekki sett mig nógu vel inn í þessa hluti til að átta mig á því :-)

User avatar

Höfundur þráðar
Óskar - Einfari
Innlegg: 690
Skráður: 01.feb 2010, 08:29
Fullt nafn: Óskar Andri Víðisson
Bíltegund: Toyota
Staðsetning: Vatnsenda, Kópavogur
Hafa samband:

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Óskar - Einfari » 22.maí 2013, 12:55

Freyr er sko alveg með þetta á hreinu... að vísu hefði ég frekar viljað lóusöng heldur en gæsagarg. Eins og er þá er sennilega einfaldast og ódýrast að smíða í hann 2,5" púst eins og er í honum núna þar sem að það þarf ekki að finna upp hjólið uppá nýtt... mátinn er til fyrir þetta púst!
Toyota Hilux 2007 3.0 D-4D sjálfskiptur 38" breyttur

https://www.instagram.com/oskar.andri/

User avatar

Hfsd037
Innlegg: 968
Skráður: 20.aug 2010, 08:26
Fullt nafn: Hlynur Freyr Sigurðsson
Bíltegund: Toyota Hilux 3.0

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Hfsd037 » 22.maí 2013, 14:58

Ég er með 2.5" púst með einn kút alveg í endann, þegar ég lét smíða kerfið fyrir mig þá bað ég smiðin um hafa kútinn þannig að það væri hægt að fjarlægja hann og láta snyrtilegt rör úr sama efni og pústið í staðinn.
Ég tek aftasta kútinn undan þegar ég er að fara í ferðir sem kalla á mikið álag því mér finnst vélin vinna svoldið meira án hljóðkútsins.

Ég er með 2.5" kerfi við mína 3 lítra vél og er bara sáttur
Toyota Hilux D/C '00 38" Í notkun
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur


Styrmir
Innlegg: 164
Skráður: 08.mar 2010, 16:48
Fullt nafn: Styrmir Frostason

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Styrmir » 22.maí 2013, 18:20

Fyrst við erum farinir að pæla í pústum hvað græðir maður á því að sverra upp pústið?


spámaður
Innlegg: 291
Skráður: 19.des 2010, 09:51
Fullt nafn: hlynur þór birgisson

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá spámaður » 22.maí 2013, 19:08

íbbi wrote:mótstaða er N/A vélum nauðsynleg.

það er hinsvegar allt annað mál þegar það kemur að turbo mótorum,

nú er ég ekki að véfengja að 3" sé óþarflega sver fyrir þennan hilux, eða það sem kiddi segir,

hef prufað ýmsar pústpælingar í gegnum tíðina, á N/A bílum hefur það verið meira maus, túrbó bílarnir hafa tekið þessu fagnandi,


mótstaða er ekki nauðsynleg í N/A vélum.it is a myth:
Hlynur þór birgisson
'46 willys 460 bbf
Ford F250 35" 5.4L D'74
Mmc outlander turbo
Bmw 323 coupe
Ford ranger 4.0 35"

User avatar

Höfundur þráðar
Óskar - Einfari
Innlegg: 690
Skráður: 01.feb 2010, 08:29
Fullt nafn: Óskar Andri Víðisson
Bíltegund: Toyota
Staðsetning: Vatnsenda, Kópavogur
Hafa samband:

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Óskar - Einfari » 22.maí 2013, 20:03

Styrmir wrote:Fyrst við erum farinir að pæla í pústum hvað græðir maður á því að sverra upp pústið?


Hvort ætli sé auðveldara að anda um rör af kókómjólkurfernu eða garðslöngubút af sömu lengd og rörið af kókómjólkurfernunni?
Toyota Hilux 2007 3.0 D-4D sjálfskiptur 38" breyttur

https://www.instagram.com/oskar.andri/


jonogm
Innlegg: 104
Skráður: 11.jún 2010, 14:03
Fullt nafn: Jón Ögmundsson
Staðsetning: Reykjavík

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá jonogm » 22.maí 2013, 20:21

Maður hefur séð 3" púst sem eru mjög illa smíðuð. Beygjur sem nánast eru samfallnar og þrengja mjög að.


Þorri
Innlegg: 322
Skráður: 02.feb 2010, 12:55
Fullt nafn: Þorvarður Lárusson
Bíltegund: Musso cherokee ofl

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Þorri » 22.maí 2013, 20:52

ef þú smíðar pústið úr 2,5" og notar alvöru suðubeygjur þá er þetta alveg nógu svert. Ef þetta er hinsvegar beygt í þeim vélum sem púst verkstæðin hafa þá þrengjast allar beygjur talsvert mikið þannig að 3" pústið er komið niður í 2,5" og 2,5 pústið niður í 2". Ég geri ráð fyrir því að útreikningurinn hjá Kidda hafi verið miðaður við að beygjurnar hafi verið jafn sverar rörinu.


Navigatoramadeus
Innlegg: 276
Skráður: 04.nóv 2012, 19:39
Fullt nafn: Jón Ingi Þorgrímsson
Bíltegund: Cruiser
Staðsetning: Álftanes

Re: 2,5 eða 3 tommu púst fyrir 1KD-FTV

Postfrá Navigatoramadeus » 14.júl 2013, 20:01

Kiddi wrote:Eins og góðum nörda sæmir þá bara varð ég að henda upp smá reikningum í kringum þetta, við skulum vona að það hafi aðallega verið útaf áhuga en kannski eru þetta líka einhver fráhvarseinkenni svona þegar skólinn er loksins búinn að ég hreinlega "þurfi" að reikna eitthvað. Jæja, nóg um það.
Ég á upp í hillu bókina "Maximum Boost" sem er frekar áhugaverð bók (á mannamáli) um allskonar Turbo pælingar. Einhverstaðar þar stendur að æskilegt viðmið á pústþvermáli sé að hraði loftsins verði ekki meiri en sem nemur 250 fetum á sekúndu. Þetta verður nú alltaf einhver nálgun, en ég held mér hafi tekist að reikna þetta nokkuð rétt.
Ég set inn hér reikninga fyrir þessa vél, miðað við 2.25", 2.5" og 3" púst. Geri ráð fyrir að túrbínan sé að skaffa einhver 16 pund (fann það á Google, veit ekki hversu áreiðanlegt það er!). Menn sem eru mér fróðari mega endilega benda mér á ef þetta er bölvað bull og vitleysa.

Samkvæmt þessum útreikningum myndi ég segja að 2.5" púst væri alveg passlegt. Miðað við að þvermálið sé 2.5" alla leið þyrfti að fara í 25 psi boost til að ná þessum 250 fetum á sekúndu.


sælir,

var að rekast á þennan ágætisþráð, skemmtilegar pælingar og reikningar,
mig langar að spyrja hvort vanti ekki í dæmið útþenslu afgassins ?

þeas; þessi reikningur stemmir mv loftið á leið inn í vélina en svo hitnar
eldsneytisblandan, þenst út (forsenda þess að vinna er framkvæmd), tekur meira pláss
og straumhraðinn í púströrinu mv reikningana yrði talsvert meiri.

og svo annað; sett er inn nýtni 85%, er það rúmtaksfyllingin ?


fann "Maximum Boost" á pdf; http://www.odiesgarage.com/Nova/Maximum_boost.pdf


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur