Síða 1 af 1
dynotest
Posted: 06.maí 2013, 20:01
frá olei
Hverjir eru að bjóða upp dynómælingu á skerinu og hvað kostar mæling á bíl?
Re: dynotest
Posted: 06.maí 2013, 20:23
frá jeepson
Tækniþjónusta bifreiða er með bekk veit ég. En ég veit ekkert hvað þeir rukka fyrir test.
Re: dynotest
Posted: 06.maí 2013, 20:49
frá olei
jeepson wrote:Tækniþjónusta bifreiða er með bekk veit ég. En ég veit ekkert hvað þeir rukka fyrir test.
Veistu hvernig tæki þeir eru með, hvað það ræður við mikið afl og hvort að dekkjastærð skiptir máli?
Re: dynotest
Posted: 06.maí 2013, 21:47
frá jeepson
Hef ekki hugmynd. Éggæti nú reynt að grafa það upp hjá félaga mínum. Hann lét dyno testa wrangler á 31" fyrir 2 eða 3 árum síðan.
Re: dynotest
Posted: 07.maí 2013, 21:59
frá olei
Takk Gísli.
Er Tækiþjónusta bifreiða þeir einu á landinu sem eru með dyno?
Hvað með Borgarholtsskóla, var ekki einhver græja þar?
Re: dynotest
Posted: 07.maí 2013, 22:17
frá Sævar Örn
Bekkurinn í borgarholtsskóla hefur mjög sjaldan verið notaður og er sá eini sem er fyrir sídrifsbíla á landinu, ég hef einusinni vitað af honum í notkun og þá var það fyrir nemendur skólans tengdu náminu.
TB er með 2wd bekk en orðið á götunni er að hann sé ekki mjög nákvæmur.
Ég hef hinsvegar aldrei heyrt talað um að hver sem er geti farið og látið mæla heldur grunar mig að þetta sé aðallega gert í gegnum kunningsskap, fróðlegt væri að heyra frá þér hvernig þessu er háttað hjá þeim ef þú kemst að því. s. er 5550885
Re: dynotest
Posted: 07.maí 2013, 23:20
frá BragiGG
hef dynotestað bíl sem ég átti í borgarholtsskóla, þegar ég var nemandi þar.
síðan hef ég verið viðstaddur á bmw dynotest degi í TB og tölurnar úr þeim bekk voru mjög trúverðugar og stemmdu vel við hugsaleg wheel hp á þeim orginal bílum sem voru mældir...
Re: dynotest
Posted: 10.maí 2013, 21:35
frá Lindemann
Það hefur verið hægt að fá dynomælingu í TB þegar bekkurinn hefur verið í lagi.
Bekkurinn í Borgarholtsskóla hefur aðeins verið notaður við kennslu og þá fyrir bíla í eigu skólans eða nemenda.