Síða 1 af 1

Míkróskurður á dekkjum.

Posted: 29.aug 2010, 20:30
frá Alpinus
Mig langar að láta míkróskera BFG MT dekk sem ég á.

Með hverjum mælið þið þegar kemur að verði og faglegum vinnubrögðum?

KKv
Hansi

Re: Míkróskurður á dekkjum.

Posted: 29.aug 2010, 22:29
frá Rauðhetta
Pitstop - Dugguvogi 10

Re: Míkróskurður á dekkjum.

Posted: 30.aug 2010, 00:17
frá KÁRIMAGG
Getum líka mícro skorið hjá BJB í hafnarfirði

Re: Míkróskurður á dekkjum.

Posted: 30.aug 2010, 01:34
frá Freyr
Rauðhetta wrote:Pitstop - Dugguvogi 10



Þekki svosem ekki til þeirra í Dugguvogi en ég hef tvisvar farið í Pitstopp í Hafnarfirði og var ósáttur í bæði skiptin. Hef hinsvegar fengið mjög góða þjónustu hjá N1 Réttarhálsi (áður Gúmmívinnustofan) og hjá Arctic Trucks. Hef einnig verið þokkalega sáttur með Sólningu á smiðjuveginum.

Freyr

Re: Míkróskurður á dekkjum.

Posted: 30.aug 2010, 07:36
frá Rauðhetta
Ég fer ekkert annað

og ég er mjög krítískur þegar kemur að þjónustu

og ég hef hringt á marga staði til að fá verð, þá eru þeir alltaf ódýastir í þeim tilfellum

KV
Kristján

Re: Míkróskurður á dekkjum.

Posted: 30.aug 2010, 10:51
frá Alpinus
Takk fyrir þetta. Ég fór einu sinni í Pitstop Dugguvogi til að láta ballansera og var ánægður með þjónustuna (hún skiptir oft sköpum hjá mér) og þeir voru ekki svo dýrir. Ætli ég fari ekki bara þangað. N1 virðist alltaf vera dýrari en allir hinir þó svo að þjónustan sé alveg sæmileg.
BJB eru örugglega ágætir en ég nenni ekki að keyra til Hafnarfj;)