trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!


Höfundur þráðar
mikki
Innlegg: 195
Skráður: 28.okt 2012, 19:07
Fullt nafn: michal leszek kujoth

trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!

Postfrá mikki » 24.apr 2013, 22:00

er með trooper 3,0 turbo disel sem tók uppa þvi aðan þegar eg var að keyra að reykja svörtu sem sagt taka motor oliu i gegnum turbinu þannig eg drap a honum en setti siðan i gang eftir sma tima var eðlilegur i svona 5-10 min en svo bara do hann eins og það vantaði diseloliu en hun er til staðar og motorolian i goðu þegar eg starta geris bara ekkert nema snuningur i motor engin skritin hljoð eða neitt svoleiðis svo þegar eg starta og annar heldur fyrir öndunina sem kemur ur ventlalokinu myndast nokkur þrystingur það vantar bilinn sem fyrst öll ráð vel þegin er ekki i rvk svo það er soldið mal að koma bilnum þangað fyrir mig i tölvu




Elís H
Innlegg: 67
Skráður: 25.apr 2011, 15:28
Fullt nafn: Elís Björgvin Hreiðarsson

Re: trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!

Postfrá Elís H » 24.apr 2013, 22:13

kipptu önduninni af túrbínu að framan og ath. hvort túrbínan sé full af olíu, þá er öxull í sundur inní túrbínu.
ath, hvort smurolía sé örugglega í réttri hæð má ekki far uppí bognu hlutana á hvarðanum , það gæti verið komin hráolía smanvið. og tekið olíu gegnum öndunarslönguna í blokkini. semsagt of hátt borð. (þá eru spíssar farnir að leka hráolíu saman við smurolíu.)


Höfundur þráðar
mikki
Innlegg: 195
Skráður: 28.okt 2012, 19:07
Fullt nafn: michal leszek kujoth

Re: trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!

Postfrá mikki » 24.apr 2013, 22:46

ok tjekka a þessu takk fyrir þetta allavegana


Höfundur þráðar
mikki
Innlegg: 195
Skráður: 28.okt 2012, 19:07
Fullt nafn: michal leszek kujoth

Re: trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!

Postfrá mikki » 24.apr 2013, 23:37

það er helviti mikil olia a honum er komin yfir fyrsta bogna hlutann a kvarðanum eru þa ekki bara spissarnir farnir ??


Elís H
Innlegg: 67
Skráður: 25.apr 2011, 15:28
Fullt nafn: Elís Björgvin Hreiðarsson

Re: trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!

Postfrá Elís H » 25.apr 2013, 00:04

þeir eru hugsanlega farnir að leka, eða einhver þeirra , þarf ekki að vera nema einn, best að rífa þá úr og láta ingólf hjá BL prufa þá. þegar þetta er sett saman aftur skaltu biðja um nákvæma uppskrift , það borgar sig, trúðu mér. veit ekki um verð á nýjum , en ef þú færð notaða þá skaltu láta þrýstipufa og spóluprufa þá hjáBL.

User avatar

Tyrirun
Innlegg: 59
Skráður: 15.des 2012, 12:02
Fullt nafn: Valtýr Gunnlaugsson

Re: trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!

Postfrá Tyrirun » 25.apr 2013, 12:37

hefur BL ekki verið að kleima spíssana í troopernum, eilífðarábyrgð myndi tékka á því fyrst
Toyota lc 90 38"


Izan
Innlegg: 616
Skráður: 29.mar 2010, 10:56
Fullt nafn: Jón Garðar Helgason

Re: trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!

Postfrá Izan » 25.apr 2013, 12:44

Ef þetta er málið máttu alls ekki reyna að setja í gang þvi að þú getur lent í að geta ekki drepið á aftur og jafnvel að vélin fari á yfirsnúning.

Kv Jón Garðar


Grímur Gísla
Innlegg: 233
Skráður: 22.mar 2010, 20:52
Fullt nafn: Hallgrimur Hrafn Gíslason
Bíltegund: Mussó, VW , MMC
Staðsetning: Fellabær

Re: trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!

Postfrá Grímur Gísla » 25.apr 2013, 14:53

Þetta er viðurkend ábyrgð og umboðið á að laga þetta.


Höfundur þráðar
mikki
Innlegg: 195
Skráður: 28.okt 2012, 19:07
Fullt nafn: michal leszek kujoth

Re: trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!

Postfrá mikki » 25.apr 2013, 16:22

tekka a þvi þegar það opnar aftur takk fyrir fljót svör :D


fillinnpedo
Innlegg: 123
Skráður: 26.jan 2012, 13:51
Fullt nafn: Jón Borgarsson

Re: trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!

Postfrá fillinnpedo » 20.maí 2013, 23:48

Getið þið sagt mér meira um þetta claim dæmi með spíssana? Er þetta bara eitthvað sem menn halda eða vita menn til þess að þetta sé í ábyrgð?


Gunnar00
Innlegg: 222
Skráður: 29.mar 2012, 19:14
Fullt nafn: Gunnar Bjarki Hjörleifsson
Bíltegund: Land Cruiser 70

Re: trooper vandamal HJÁLP!!!!!!!!

Postfrá Gunnar00 » 21.maí 2013, 00:22

Ég á reyndar ekki trooper, en mér skilst á þessu að ef upp kemur vandamál í spíssum sér umboðið alfarið um það, þér að kostnaðar lausu.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 20 gestir