Síða 1 af 1
Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 12.apr 2013, 13:47
frá reynirh
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 12.apr 2013, 15:17
frá Dodge
Finnst hann reindar leiðinlega Land Rover legur..
Og þungur.. skráð "curb weight" 2.450 kg.
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 12.apr 2013, 15:49
frá lecter
ja þú meinar að landrover sé leiðinlega likur jeep skil þig vel
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 12.apr 2013, 18:35
frá Freyr
Þetta er helvíti stór bíll. 3,5 m hjólhaf og 5,5 m langur. 2,4 tonn er sennilega vel sloppið m.v. stærð. Til samanburðar er LC80 4,8 m með 2,85 m hjólhaf og hilux DC er 5,1 m með 3,1 m hjólhaf....
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 12.apr 2013, 21:15
frá jeepcj7
Hrikalega flottur væri fínn með hemi á 46"
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 12.apr 2013, 21:27
frá Stóri
mér finnst hann frekar vígalegur, bara pínu landróverlegt rassgatið á honum...
fínt á 46" með 6.4 hemi :)
en þetta hinsvegar virkar þannig að þú þarft að skaffa þeim bíl, hvort sem er beint úr umboði eða notaðan og þeir BREYTA honum í þetta ! og kostar tæpar 4 mills :)
stórglæsileg hugmynd annars.
Kristófer
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 12.apr 2013, 21:42
frá thor_man
Dodge wrote:Finnst hann reindar leiðinlega Land Rover legur..
Ég sé frekar einhver Hummer-áhrif, spurning hvort það sé til bóta...
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 12.apr 2013, 21:58
frá Doddi23
Geggjaður bíll, væri sko til í einn svona á 44-46 :)
Gaman að sjá að allt í myndbandinu þar sem þessir grái og apelsínuguli koma fyrir er tekið hér á landi en var kanski alveg óþarfi að vera með þennan utanvegar akstur í því :/
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 13.apr 2013, 09:35
frá joisnaer
ekkert að því að hafa þennann willys svoldið land rover legan, þá loksins fer þetta að verða flott ;)
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 13.apr 2013, 13:54
frá Kiddi
Freyr wrote:Þetta er helvíti stór bíll. 3,5 m hjólhaf og 5,5 m langur. 2,4 tonn er sennilega vel sloppið m.v. stærð. Til samanburðar er LC80 4,8 m með 2,85 m hjólhaf og hilux DC er 5,1 m með 3,1 m hjólhaf....
Síðan er þetta vigtin á 35" bílnum (DC350) sem er verið að vitna í, með spili og hlífðarplötum allstaðar og hvergi!
Það væri fróðlegt að sjá hver þyngdin á DC250 týpunni er hún er sjálfsagt eitthvað nær 2 tonnum.
Flott tæki en ég er sammála Þórð með að þá setur niður með að vera með þennan utanvegaakstur í myndböndunum.
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 13.apr 2013, 15:32
frá reyktour
þetta er fucking fullorðins
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 13.apr 2013, 16:44
frá nobrks
Sixpakkinn er líka flottur, þó hann sé ekki í framleiðslu:
https://www.google.com/search?q=jk+six+ ... 20&bih=504
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 13.apr 2013, 17:07
frá reynirh
Panta nokkra svona með dísel mótornum og fara í túristakstur eingaungu á jeep.
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 15.apr 2013, 10:14
frá reynirh
Maður er að verða Willys sjúkur og það er ekki gott.
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 15.apr 2013, 12:20
frá Dodge
jeepcj7 wrote:Hrikalega flottur væri fínn með hemi á 46"
Bara svolítið vandræðalegt ef 1500 hemi ram er léttari :)
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 15.apr 2013, 12:39
frá Kiddi
Dodge wrote:jeepcj7 wrote:Hrikalega flottur væri fínn með hemi á 46"
Bara svolítið vandræðalegt ef 1500 hemi ram er léttari :)
Hver er þyngdin á Ram 1500? og þarf ekki að modda hann slatta mikið til að koma einhverjum túttum undir?
Re: Jeep Brute Double Cab 130.
Posted: 16.apr 2013, 12:32
frá Dodge
Ég átti 2007 með 2földu húsi og 4.7, hann var 2.320
Hvað moddun varðar þá er hann vissulega á klöfum að framan, en á ekki að þyngjast mjög mikið við að skifta í hásingu, en að aftan er hann nokkuð klár í allt.