Síða 1 af 2

að sjóða framdrif ???

Posted: 04.apr 2013, 22:53
frá haffiamp
einungis vangaveltur í gangi, er með terrano og væri ekkert á móti "driflás" en hverjir eru gallar? kannski einhverjir kostir?

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 04.apr 2013, 23:01
frá StefánDal
Þetta er bara snilld og ekkert annað. Gerir bara svona og drífur allt!
Image

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 04.apr 2013, 23:02
frá -Hjalti-
viewtopic.php?f=5&t=12437

viewtopic.php?f=50&t=7046&p=33643&hilit=sj%C3%B3%C3%B0a+framdrif#p33632

Hef sagt það áður og segi það enn. soðið drif bara virkar og svíkur aldrei.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 00:37
frá villi58
Ég get ekki verið sammála svona gjörningi þetta er einfaldlega stór hættulegt, það er nú ekki þannig að annaðhvort er snjór eða autt. Ef menn meta líf sitt svona lítilfjörlegt og annara þá sjóða menn draslið fast, en þeir sem geta hugsað eitthvað gera þetta ekki. Sorry þetta er bara mín skoðun.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 07:04
frá -Hjalti-
villi58 wrote:Ég get ekki verið sammála svona gjörningi þetta er einfaldlega stór hættulegt, það er nú ekki þannig að annaðhvort er snjór eða autt. Ef menn meta líf sitt svona lítilfjörlegt og annara þá sjóða menn draslið fast, en þeir sem geta hugsað eitthvað gera þetta ekki. Sorry þetta er bara mín skoðun.

Menn verða auðvitað að keyra bara í takt við útbúnaðinn sem í bílnum er !
Sé ekki að þetta sé hættulegra en nó spin eða álíka læsingar úti á þjóðveg , þær læsingar smella inn oft fyrirvaralaust meðan soðna drifið er bara alltaf inni.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 07:22
frá haffiamp
keyra menn ekki bara í annari lokunni ef menn þurfa framdrif útá vegi? ég veit það vel að ef það er ekki hálka eða möl undir læstum bíl, þá er rosalega þvingandi að beygja...

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 07:24
frá sukkaturbo
Sæll búinn að gera þetta nokkrum sinnum. Þetta er leiðinleg lausn mikil þvingun. Hægt að aka með aðra driflokuna á tekur þó nokkuð í stýrið.kveðja guðni

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 07:41
frá -Hjalti-
Að keyra í annari lokuni er bara bull. Auðvitað er þvíngun í kröppum beygjum en það eru sjaldan svo krappar beygjur úti á vegum að þetta hafi svo mikið að seigja.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 08:50
frá Hfsd037
Maður hefur oft pælt í þessu en aldrei látið verða úr því þrátt fyrir að ég eigi annað aukadrif ef annað skyldi bresta.
Aðal áhyggjurnar sem ég sé fyrir mér varðandi að sjóða framdrifið er þegar maður þarf á leikninni að halda, til dæmis á þröngum stöðum í þröngum beygjum í þungu færi.
Svo er líka fínt að geta verið með lokurnar á á vafasömum stöðum sem maður kemst kannski langt á afturdrifinu en gæti þurft að nota framdrifið allt í einu í vafasamri brekku sem maður vill ekki þurfa að stoppa í, það gæti kostað bílinn að þurfa að fara út í miðri brekku til að láta lokurnar á, í staðin fyrir að henda honum bara í framhjóladrifið á staðnum og keyra upp :)
Ef ég færi út í læsingar þá mundi ég frekar splæsa í ARB að framan í staðin fyrir þurfa að fórna bílnum kannsi eitthverntímann útaf einhverri leti fyrir að hafað ekki nennt að láta lokurnar á því maður nennti ekki að keyra í þeim.

Að geta keyrt með lokurnar á, á stöðum sem maður þekkir ekki getur skipt sköpum, algjört öryggisatriði

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 09:15
frá kjartanbj
Þetta er bara smekksatriði, eitthvað sem ég myndi persónulega aldrei gera, frekar að kaupa lás heldur en að gera bílinn svona leiðinlegan

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 12:05
frá Stebbi
kjartanbj wrote:Þetta er bara smekksatriði, eitthvað sem ég myndi persónulega aldrei gera, frekar að kaupa lás heldur en að gera bílinn svona leiðinlegan

Dittó á það, ef að menn nota bílinn bara sem torfærubíl eða ef þetta er turbolaus hilux sem ekkert getur hvort eð er þá eru um að gera að sjóða. En ef að menn nota bílinn innanbæjar á veturnar og nota hann til að ferðast á þá er ekki spurning um að splæsa í lás, góður diskalás að framan á alveg rétt á sér þó svo maður forðist þá að aftan.

Svo fer þetta lang mest eftir eigandanum hvað hann er tilbúin að sætta sig við.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 12:27
frá -Hjalti-
kjartanbj wrote:Þetta er bara smekksatriði, eitthvað sem ég myndi persónulega aldrei gera, frekar að kaupa lás heldur en að gera bílinn svona leiðinlegan

Fyndið þegar menn sem hafa enga reynslu af þessu eru farnir að tjá sig um þetta. Frekar vill ég hafa búnað sem bara virkar alltaf og klikkar ekki. Frekar en þessa lása sem virka bara þegar þeim hentar það eins og þú og margir aðrir hafa verið að berjast við. Og kosta svo hendi og fót að kaupa og viðhalda.

Maður finnur ekki fyrir þessu í snjó og hálku og það er ekkert mál að keyra í lokunum þó það sé autt , það þarf nánast 90 gráðu beygju til að ég finni fyrir læsinguni á auðu

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 13:37
frá kjartanbj
-Hjalti- wrote:

Veit alveg hvernig er að keyra með bílinn í framlás, framlasin hjá mér virkar og hefur alltaf gert og ekki þurft að eyða neinu í hann, og afturlasin kostaði 25þ kall að græja og hann bara virkar, alveg glatað að þurfa alltaf að vera skíthræddur um að brjóta eitthvað útaf maður er með soðið framdrif, og vera taka úr lokum og svona vesen, en eins og ég tók fram þarna er þetta bara smekksatriði, ég persónulega myndi aldrei gera þetta

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 14:44
frá rauðhaus
StefánDal wrote:Þetta er bara snilld og ekkert annað. Gerir bara svona og drífur allt!
Image

Ég er ekki viss um að það sé vænlegt til árangurs að sjóða saman kamb og pinjón

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 14:50
frá ivar
rauðhaus wrote:
StefánDal wrote:Þetta er bara snilld og ekkert annað. Gerir bara svona og drífur allt!
Image

Ég er ekki viss um að það sé vænlegt til árangurs að sjóða saman kamb og pinjón

Að gefinni reynslu er ég viss um að þetta sé álíka gáfulegt samt, þrátt fyrir öllu lakari árangur.
Var með þetta í bíl sem ég keypti... Hræðilegt!

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 14:53
frá rauðhaus
haha

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 15:45
frá sukkaturbo
Sælir þá er það ákveðið það er bara allt í lagi að aka með soðið framdrif og þeir sem það geta ekki eru bara ekki í lagi og ég er þá einn af þeim. kveðja guðni

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 15:50
frá lecter
ég er bara með nospin og nota ekkert annað ,,hefur ekki klikkað hjá mér i 30 ár ,,, finn ekkert fyrir að framan i vegar akstri það er ekkert að gripa i lás fyrr en ég braut afturdrifið en bara á framdrifinu fór hann að rikkja i stundum ef maður passar að gefa ekki inn i beigjum var þetta i lagi ,,, en her i noreigi getur verið upp i 20cm slidda á vegum svo 60km er bara algört hámark ef maður ætlar sér ekki bara beint útaf ,, með 44" dekk er eingin sýring i 20cm krapa á veiginum það er að koma um 50cm snjór niður á dag hér

kveðja frá norge

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 15:56
frá villi58
Fyrir utan slysahættu þá eru menn að fórna hellings gúmmíi, ég veit ekki betur en að menn hafi verið að bölva verðlaginu á dekkjunum og varahlutaverði, þá kanski farið þið að sjá hvað þetta er heimskulegt þegar þarf að fara að borga.
Ég spyr líka er þetta lölegt ?

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 16:22
frá gislisveri
Þetta er bara smekksatriði og ég sé ekki tilganginn í því að vera að rífast yfir því. Maðurinn vill sjálfsagt fá að heyra báðar hliðar og þær hafa sannarlega komið fram. Sleppum því að vera að hrauna hver yfir annan, það er nóg af latteullarsokkum í því verki (broskall).

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 16:42
frá jeepcj7
Það eru nokkrir ókostir við soðið framdrif eins og talsverð þvingun og það getur verið erfitt að beygja á auðu og þar frameftir götunum einnig er ekki nóg að taka úr framdrifi til að losna við þvingum heldur þarf líka að taka úr lokunum þannig að þetta er vonlaust nema að vera með lokur á bílnum.
Málið er aftur á móti að þetta er 100% læsing sem aldrei svíkur og utanvega er þetta alveg að svínvirka og kostar sama og ekki neitt.
Loftlás nýr í kominn er líklega ca.2-300 þúsund sem er aur sem ég persónulega myndi frekar eyða í dekk eða annað til að gera bílinn öruggari og áreiðanlegri í notkun,no spin er lítið ódýrara í innkaupum nýtt en er mikilu áreiðanlegri búnaður en loft eða rafmagn svo er hægt að nota diskalás en þeir sem hafa notað svoleiðis vita að þeir virka því miður bara stundum og oftast ekki.
Minn persónulegi draumur sem framlás er torsen snigillás og líklega nospin aftan eða torsem líka þar en þetta er bara frekar dýrt dót svo að líklega enda ég með suðu að framan og disk aftan því að hvort tveggja er til og nóg af stöðum til að eyða peningunum í sem til falla.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 16:58
frá hobo
Ég hef einu sinni bölvað því að vera með soðið framdrif. Það var í Illahrauni í júlí í fyrra, þá voru um 10 stórir skaflar sem maður komst ekki yfir nema með öll 4 hjólin virk. Og þess á milli var auður slóðinn með sínum hægri og vinstri beygjum. Þá þurfti maður að stökkva út helmingi oftar en skaflarnir voru.
Reyndar var það ekki svo erfitt þar sem ég er ekki í hjólastól.
En fyrir utan þetta atvik hefur þetta reynst mjög vel, bara snilld í snjónum og kostaði 0 kr.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 17:12
frá -Hjalti-
kjartanbj wrote:
-Hjalti- wrote:
kjartanbj wrote:Þetta er bara smekksatriði, eitthvað sem ég myndi persónulega aldrei gera, frekar að kaupa lás heldur en að gera bílinn svona leiðinlegan

Fyndið þegar menn sem hafa enga reynslu af þessu eru farnir að tjá sig um þetta. Frekar vill ég hafa búnað sem bara virkar alltaf og klikkar ekki. Frekar en þessa lása sem virka bara þegar þeim hentar það eins og þú og margir aðrir hafa verið að berjast við. Og kosta svo hendi og fót að kaupa og viðhalda.

Maður finnur ekki fyrir þessu í snjó og hálku og það er ekkert mál að keyra í lokunum þó það sé autt , það þarf nánast 90 gráðu beygju til að ég finni fyrir læsinguni á auðu

Veit alveg hvernig er að keyra með bílinn í framlás, framlasin hjá mér virkar og hefur alltaf gert og ekki þurft að eyða neinu í hann, og afturlasin kostaði 25þ kall að græja og hann bara virkar, alveg glatað að þurfa alltaf að vera skíthræddur um að brjóta eitthvað útaf maður er með soðið framdrif, og vera taka úr lokum og svona vesen, en eins og ég tók fram þarna er þetta bara smekksatriði, ég persónulega myndi aldrei gera þetta

Já en hvað ætli kosti að koma sér upp lás ?? það er verið að spurja um það Kjartan , það var lás í bílnum hjá þér, og miðavið verðlag í dag þá eru menn ekkert að skella sér bara á svona dót. það má gera helling fyrir verðið á Loftlás... Og taka áhættu á að brjóta eitthvað ?? Svona splitt lásar eru líklega veikasti hlekkurinn í drifinu.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 17:25
frá jeepcj7
Ef maður skoðar at síðuna er verðið á bara loftlásnum sjálfum frá 195-225 þúsund og þá er eftir að versla loftdælu og koma draslinu í leggja slöngur og rafmagn þannig að nýr loftlás með öllu í kominn er líklega ekki undir 400 kalli ef þetta er gert á verkstæði.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 17:46
frá lecter
ja og stilla nýa drifið inn aftur með nýum legum vinna bara þar er 20,000 legur 20-30,000

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 18:23
frá Fordinn
Hef átt bæði gamla bronco og econoline báðir 38" og voru soðnir að framan, báðir þessir bílar notaðir daglega vinna, snatt og allt það.

Lenti aldrei í veseni útaf því að drifin voru soðin .... keyrði innanbæjar bara i annari lokunni ef það var ekki allt á kafi i snjó.

þannig að! þetta er alveg hægt og þolandi, madur veit af ókostunum og hættunum og ef madur keyrir eftir því verða engin vandamál. að borga fyrir loftlása i dag er orðið jafnvel bílverðið..... þetta er bilun strákar...

þegar ég var 14 ára á átti pabbi gamla bronco á 40" dekkjum, eitt sinn fór ég á honum að vitja um minka gildrur og þurfti að setja i framdrifið, sem var soðið.... svo fer móðir mín til vinnu á honum og hún byrjaði á því að keyra útaf med látum heima við bæ, svo þegar hun var að fara frá vinnu þá skautaði hún næstum beint á ljósastaur,

þannig að það er ábyrgðarhluti líka að ef aðrir noti bílinn viti hvernig þetta virkar og fari sér ekki að voða.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 20:24
frá Ingójp
Eitt sem ég vill bæta í umræðuna er þessi spurning Notar konan þín bílinn? Ef svarið er já þá myndi ég bara sleppa þessu

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 20:25
frá Stebbi
Fordinn wrote:.......þannig að það er ábyrgðarhluti líka að ef aðrir noti bílinn viti hvernig þetta virkar og fari sér ekki að voða.

Eins líka þegar bíllinn er seldur að gera kaupanda grein fyrir hættunum sem fylgja þessu ef maður er ekki með á nótunum. Og að hann geri það sama þegar bíllinn selst svo áfram.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 20:30
frá jeepson
Ingójp wrote:Eitt sem ég vill bæta í umræðuna er þessi spurning Notar konan þín bílinn? Ef svarið er já þá myndi ég bara sleppa þessu

HAHA já þú hefur víst slæma reynslu af því að hleypa konuni á jeppann :D En Ég er búinn að eiga einn jeppa með soðið framdrif og ég yndi frekar leita af notuðum loftlás eða skoða að kaupa þetta að utn heldur en að sjóða þetta. Soðið drif á ekki heima í jeppum að mínu mati. En þetta er auðvitað smekksatriði.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 20:40
frá -Hjalti-
jeepson wrote:

Nú já , heimskuleg rök !
Eiga semsagt stór og breið dekk , boddyhækkanir , Hásingarvæðingar og annað ekki heima í jeppum afþví að þær breitingar gera jeppa verri í akstri á þjóðvegum ?
Ég hélt að við værum að breita þessum bílum til snjóaksturs.
Þetta er fyrsta breyting sem ég geri við alla mína jeppa. Hef ekki ennþá lent í þeim aðstæðum þar sem þetta hefur valdið mér vandræðum.
En ég er heldur ekki að keyra með frammdrifið í gangi allan veturinn eins og sumir þó það sé spáð örfáum snjókornum.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 20:56
frá Styrmir
Smá pæling Hjalti þar sem þú virðist nota framdrifið sjaldan eða aldrei nema í snjó. Hvað ertu búinn að fara með mörg afturdrif?

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 20:59
frá -Hjalti-
Styrmir wrote:Smá pæling Hjalti þar sem þú virðist nota framdrifið sjaldan eða aldrei nema í snjó. Hvað ertu búinn að fara með mörg afturdrif?

Ég nota frammdrifið í hálku og snjó úti á þjóðveg eða ef færið er þungt innanbæjar, en aldrei á beru malbiki eða á sumrin.
en ég hef brotið eitt útaf átökum í snjó , tvö sem ég verslaði notuð og voru illa inn stillt og eitt sem ég tapaði allri olíu af.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 21:11
frá haffiamp
Ingójp wrote:Eitt sem ég vill bæta í umræðuna er þessi spurning Notar konan þín bílinn? Ef svarið er já þá myndi ég bara sleppa þessu

nei hún gerir það ekki, allavega ekki í þannig færð... tek það fram að maður er bara að spá með þetta, gaman að sjá álit manna og alveg greinilegt að annaðhvort elska menn þetta eða hata

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 21:15
frá jeepson
-Hjalti- wrote:
jeepson wrote:
Ingójp wrote:Eitt sem ég vill bæta í umræðuna er þessi spurning Notar konan þín bílinn? Ef svarið er já þá myndi ég bara sleppa þessu

HAHA já þú hefur víst slæma reynslu af því að hleypa konuni á jeppann :D En Ég er búinn að eiga einn jeppa með soðið framdrif og ég yndi frekar leita af notuðum loftlás eða skoða að kaupa þetta að utn heldur en að sjóða þetta. Soðið drif á ekki heima í jeppum að mínu mati. En þetta er auðvitað smekksatriði.

Nú já , heimskuleg rök !
Eiga semsagt stór og breið dekk , boddyhækkanir , Hásingarvæðingar og annað ekki heima í jeppum afþví að þær breitingar gera jeppa verri í akstri á þjóðvegum ?
Ég hélt að við værum að breita þessum bílum til snjóaksturs.
Þetta er fyrsta breyting sem ég geri við alla mína jeppa. Hef ekki ennþá lent í þeim aðstæðum þar sem þetta hefur valdið mér vandræðum.
En ég er heldur ekki að keyra með frammdrifið í gangi allan veturinn eins og sumir þó það sé spáð örfáum snjókornum.

Ég er heldur ekki að keyra með framdrifið á þó svo að það sé spáð örfáum snjókornum. En boddý hækun hásingavæðing og þetta hefur ekkert með mína skoðun á þessu máli.. :)

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 21:22
frá siggi.almera
eg er með soðið og mer fynnst það bara allt i lagi svo er þetta bara smekkur manna

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 21:30
frá Fordinn
Mér finnst nú líklegt að flestir vildu geta keypt sér bara góða lása.... enn miðað við verðið á þessu i dag er alveg eðlilegt að menn reyni að fara ódyrari leiðina útúr svona....

Ég mun sennilega bara fá mér no spin að framan og aftan í fordinn hja mér sem ég á núna... mer finnst verðið á þessum loftlásum fáranlegt og auk þess finnst mer eins og sumir séu alltaf i vandræðum með þetta loft dót..... hitt virkar þó alltaf, nema þegar það brotnar =)

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 21:45
frá Startarinn
Strákar er ekki kominn tími á að hætta að rífast, það eru flest rök komin með og á móti og greinilegt að annar hópurinn nær ekki að sannfæra hinn.

Mér sýnist Hafþór vera kominn með flestar þær upplýsingar sem hann bað um, ekki breyta þessu í Bland.is

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 21:46
frá Polarbear
Startarinn wrote:Strákar er ekki kominn tími á að hætta að rífast, það eru flest rök komin með og á móti og greinilegt að annar hópurinn nær ekki að sannfæra hinn.

Mér sýnist Hafþór vera kominn með flestar þær upplýsingar sem hann bað um, ekki breyta þessu í Bland.is

gæti ekki verið meira sammála.

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 21:50
frá -Hjalti-
Startarinn wrote:Strákar er ekki kominn tími á að hætta að rífast, það eru flest rök komin með og á móti og greinilegt að annar hópurinn nær ekki að sannfæra hinn.

Mér sýnist Hafþór vera kominn með flestar þær upplýsingar sem hann bað um, ekki breyta þessu í Bland.is

Like :)

Re: að sjóða framdrif ???

Posted: 05.apr 2013, 22:44
frá Svenni30

Amen