Síða 1 af 1
Lágheiði á morgun 30.03.13
Posted: 30.mar 2013, 19:09
frá sukkaturbo
Sælir félagar ætlum á Lágheiðina á morgun um kl.13.00 til að viðra heimdragana. 54" ford kemur á staðinn. Svo verð ég á mínum 80- Cruser og ætla að prufa sköllóttu Gránd Háku dekin mín. Þau eru svo þunn að ég sé gullfiskana sem synda um í vatninu sem er inn í þeim í hláku. Sjáumst kveðja formaður jeppaklúbbsins Sést heim til Mömmu. guðni á sigló
Re: Lágheiði á morgun 30.03.13
Posted: 30.mar 2013, 20:19
frá sukkaturbo
Sælir til að lýsa því hversu öruggt er að vera í Sést heim til mömmu jeppaklúbbnum þá voru við að leika okkur á Ofur Foxinum á 46" og Patrol á 46" og vorum búnir að hleypa úr niður í 2 pund og komnir í skriðgírana og var færið orðið mjög þungt. Skyggni var ekki mikið eða um 200 metrar. Allt í einu er bankað á gluggan á Pattanum. Hætt var þegar við að spóla og glugginn skrúfaður niður. Þar stóð þá eiginkona bílstjórans og var hún kominn með kaffi á geymir og smurt brauð handa okkur því hún hafði séð úr eldhúsglugganum hjá sér að færið var orðið erfitt og við komnir út fyrir malbikið. Hún kom á Volvonum X-90 og hafði lagt bílnum þarna skammt frá og rölt til okkar um 100m með barnið á handleggnum og nestið í hinni hendinni. Menn voru mjög fegnir að fá nestið og var gert 1/2 tíma hlé á akstrinum áður en farið var í næsta punkt. Kveðja Formaðurinn
Re: Lágheiði á morgun 30.03.13
Posted: 30.mar 2013, 20:50
frá tikkat3
ég mæti á gamla lux kv.steini
Re: Lágheiði á morgun 30.03.13
Posted: 30.mar 2013, 22:36
frá LFS
eg mæti á minum :)
Re: Lágheiði á morgun 30.03.13
Posted: 31.mar 2013, 07:50
frá sukkaturbo
Sælir þá er allir félagarnir í Mömmudeildinni búnir að skrá sig. Ég kem með bleyjur handa nýliðum ef þeir skildu þora að koma. Nei bíddu það vantar 1 þrír eru komnir við eru jú 5.kveðja formaðurinn
Re: Lágheiði á morgun 30.03.13
Posted: 31.mar 2013, 18:09
frá sukkaturbo
Fórum á heiðina í dag á fjölda bíla af öllum stærðum færið nokkuð erfitt fannst mér. Þar á meðal var 54" Ford. Ég verð að segja það að svona bílar eiga ekki að vera innan um 38 og 46 tommu bíla því þeir ryðga bara niður á því að bíða eftir þeim. Ég tók í svona bíl í dag hjá Jörgen vini mínum,eftir að hafa verið með tunguna niður á maga í mínum 80 Cruser í nokkra 1/2 tíma.Ég nenni ekki að segja ykkur frá þeirri upplifun sem ég upplifði það er bara bara bara. kveðja guðni
Re: Lágheiði á morgun 30.03.13
Posted: 31.mar 2013, 19:56
frá sukkaturbo
Sælir tók tvær myndir eina af fordinum sem snýr í mig óæðri endanum og eigandinn orðin dauðleiður á að bíða eftir hópnum. Ég ætla að grobba mig smá en ég þvældist alltaf þarna einhverstaðar í skorningunum fyrir aftan hann og hinir félagarnir voru ansi langt fyrir aftan og þóttust vera að grilla og sprengja vatnskassa. Flott veður og þungt færi í brekkum. Þetta er paradís jeppa og sleða mannsins rétt við útidyrnar og 20 lítrar af eldsneyti duga í dags erfiða ferð. kveðja guðni
Re: Lágheiði á morgun 30.03.13
Posted: 31.mar 2013, 22:17
frá siggi64
Fínar myndir,mættu vera fleiri"snildar jeppaklúbbur á ferð og flott nafn á honum (var gamli luxin lang síðastur...
Mbk Siggi K
Re: Lágheiði á morgun 30.03.13
Posted: 31.mar 2013, 23:30
frá tikkat3
siggi ég var buinn með einn kaffibrusa þegar þessir komu upp á heiði gamlu lux vill ekki vera síðastur neitt altaf firstur hehe
Re: Lágheiði á morgun 30.03.13
Posted: 31.mar 2013, 23:34
frá lecter
strákar hvað varð um alla bilana sem voru smiðaðir 1982-87 sem voru á unimog hásingum ,, einn komst á 48" dekk minnir mig
þetta voru ca 3-4 Bronco 74 1 blazer 74 Ford pick up 2 allavega 1 chevy pick up einn suburban einn econoline
svo virðast þessir bilar allir hafa horfið
þessir bilar drifu rosalega i erfiðu færi og manni fanst ekkert stoppa þessa bila
svo einmitt 30 árum siðar eru aðal jepparnir i dag nákvæmlega eins á unimog hasingum og um 50" dekk gleymdist allt sem við gerðum i 30 ár
74 Blazerinn var kallaður Vestfjarðarskelfirinn flott nafn haha hann var á 44" diesel turbo,,,, ein saga með
Lögregglan hringir i eigandan einn morgun til að athuga hvort hann hafi farið yfir Breyðadalsheiði daginn áður i snjó stormi sem skall á ,, ja ja eg var eini sem komst yfir það var sko ekkert mál fyrir trukkinn minn ... ja okkur datt það i hug þú þarft að koma niður á stöð til að gera skýrslu ,, nú ,,,,, ja það voru 3 bilar skildir eftir á heiðinni og þú hefur ekið yfir þá
Re: Lágheiði á morgun 30.03.13
Posted: 31.mar 2013, 23:38
frá -Hjalti-
lecter wrote:strákar hvað varð um alla bilana sem voru smiðaðir 1982-87 sem voru á unimog hásingum ,, einn komst á 48" dekk minnir mig
þeir ryðguðu og var hent. Alveg sama og mun gerast fyrir alla F250/350 bílana á endanum þegar eitthvað betra kemur á sjónarsviðið