breyting á lc 90


Höfundur þráðar
TOBBASON
Innlegg: 23
Skráður: 04.jan 2012, 18:01
Fullt nafn: Arnar Freyr Þorbjarnarson

breyting á lc 90

Postfrá TOBBASON » 25.mar 2013, 19:18

sæli eg er að velta fyrir hvor einverjir ykkar hafið verið að setja patrol hæasingar undir bílana ykkar?? eg svo er þá þætti mer gamann að vita hvernig þið græjuðuð stírið og millikassa??



User avatar

StefánDal
Innlegg: 1238
Skráður: 23.mar 2010, 21:21
Fullt nafn: Stefán Hrannar Dal Björnsson
Bíltegund: Isuzu Trooper

Re: breyting á lc 90

Postfrá StefánDal » 26.mar 2013, 00:08

Það eru nokkrar leiðir færar. Mér skilst að það sé hægt að nota gír og millikassa úr V6 Hilux og 4runner. Þá geturu notað hásingu sem er með drifið hægra meginn, 8" Toytota eða Patrol td. En ég held að það þurfi að fara útí breytingar á olíupönnuni við þetta.
Annars veit ég ekki meira um þetta en ég hef heyrt og það er kannski ekkert marktækt.
Einhverjar upplýsingar eru hérna á jeppaspjallinu og kannski eitthvað á f4x4.is
viewtopic.php?f=26&t=4977


tobbi23
Innlegg: 26
Skráður: 16.jan 2012, 10:50
Fullt nafn: Þorbergur Jónsson

Re: breyting á lc 90

Postfrá tobbi23 » 01.apr 2013, 16:47

Ég var að klára hásingavæðingu á svona bíl. setti 60 cruiser hásingu undir hann, sama hlutfall og lét svo renniverkstæði ægis færa drifkúluna v/m. það þarf að snúa olíupönnunni og ýmislegt möndl í kringum þetta. ég notaði stýrismaskínuna úr 60 krúsernum.

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: breyting á lc 90

Postfrá Startarinn » 01.apr 2013, 19:58

Það eru 2 svona útbúnir bílar á Króknum, annar þeirra er ennþá í smíðum, ég held að þeir hafi báðir farið í að skipta um millikassa.

Ég veit ekki hvaða leið þeir fóru með stýrisdótið
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"

User avatar

Hfsd037
Innlegg: 968
Skráður: 20.aug 2010, 08:26
Fullt nafn: Hlynur Freyr Sigurðsson
Bíltegund: Toyota Hilux 3.0

Re: breyting á lc 90

Postfrá Hfsd037 » 01.apr 2013, 20:02

Sælir, ég ætla í Patrol hásingar og 44" með haustinu sjálfur, endilega póstaðu myndum af breytingunni
Btw, þá er ég með sömu vél og þú, þeas ef þú ert með 1kz-t, þarftu ekki bara 4runner kassa?
Toyota Hilux D/C '00 38" Í notkun
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur

User avatar

HaffiTopp
Innlegg: 929
Skráður: 02.feb 2010, 17:04
Fullt nafn: Hafþór Atli Hallmundsson

Re: breyting á lc 90

Postfrá HaffiTopp » 01.apr 2013, 20:24

Það er einmitt sídrifsmillikassinn og veikt framdrifið sem fælir mann soldið frá þessum bílum, ekki mjög góð blanda ef framdrifið fer. Hvernig millikassa setja þeir í þessa bíla á Króknum og hvernig er þá tengimöguleikinn græjaður? Verður takkinn til að fasttengja það bara látinn fá nýtt hlutverk?


Benedikt Egilsson
Innlegg: 33
Skráður: 15.júl 2011, 00:51
Fullt nafn: Benedikt Egilsson

Re: breyting á lc 90

Postfrá Benedikt Egilsson » 01.apr 2013, 22:55

sælir

ég á einn þessara á Króknum
mín leið í þessu var
gírkassi 4runner bensín (R150F) og kúplingshús af original kassanum
2stk tannhjólamillikassar úr Hilux settir saman með plötu frá Marlin og settir svo aftan á gírkassa með annari plötu frá Marlin.
þá er skaftið "réttu" megin og komin milligír..
4.7:1 í öðrum og 2.28:1 í hinum
LC60 framhásing-LC80 afturhásing 4.88 hlutföll
44" DC og endalaus hamingja..

Unnar bróðir er hinsvegar með mjög svipaðan bíl nema á Patrol hásingum og original gírkassa
og virkar bara vel

kveðja Benni

User avatar

Hfsd037
Innlegg: 968
Skráður: 20.aug 2010, 08:26
Fullt nafn: Hlynur Freyr Sigurðsson
Bíltegund: Toyota Hilux 3.0

Re: breyting á lc 90

Postfrá Hfsd037 » 02.apr 2013, 03:57

Benedikt Egilsson wrote:sælir

ég á einn þessara á Króknum
mín leið í þessu var
gírkassi 4runner bensín (R150F) og kúplingshús af original kassanum
2stk tannhjólamillikassar úr Hilux settir saman með plötu frá Marlin og settir svo aftan á gírkassa með annari plötu frá Marlin.
þá er skaftið "réttu" megin og komin milligír..
4.7:1 í öðrum og 2.28:1 í hinum
LC60 framhásing-LC80 afturhásing 4.88 hlutföll
44" DC og endalaus hamingja..

Unnar bróðir er hinsvegar með mjög svipaðan bíl nema á Patrol hásingum og original gírkassa
og virkar bara vel

kveðja Benni



Hljómar vel, áttu myndir af þessum gæðingum?
eru eitthverjir kostir og gallar sem báðir jepparnir hafa fram yfir hvorn annan, hásingalega séð?
Hvaða hlutföll er bróðir þinn með og hvernig eru þau að koma út?
Toyota Hilux D/C '00 38" Í notkun
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur


cruser 90
Innlegg: 122
Skráður: 25.júl 2010, 23:59
Fullt nafn: Jóhann V Helgason

Re: breyting á lc 90

Postfrá cruser 90 » 02.apr 2013, 13:24

skoðaðu þetta viewtopic.php?f=9&t=6505
Jóhann V Helgason S:8408083


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur