Síða 1 af 1

Mig vantar smá hjálp.

Posted: 24.mar 2013, 11:29
frá Hr hilux
Ég er mað Toyot hilux 95'' 2,4 bensín. 'Eg var að keyra í gær þegar hann drepur á sér og fer ekki í gang. Hann startar og starta en tekur ekki við sér Hann fær fullt af bensíni í velina þannig að ég held að þetta sé rafmagns teingt. Hann hefur látið svona mornana þegar það er ragt úti en alltaf samt farið í gang að lokum. Veit einhver hvað þetta er?

Re: Mig vantar smá hjálp.

Posted: 24.mar 2013, 11:37
frá hobo
Athugaðu hvort öll kertin neisti. Ef ekki, þá geturðu athugað hvort háspennukeflið fái sín 12V. Ef svo er þá eru líkur á að kertaþræðir séu ónýtir. Prófaðu að láta einhvern starta bílnum í myrkri og skoðaðu kertaþræðina á meðan, það er trix sem ég hef stundum notað og þá sést strax hvað er á seyði.
Það má gera þetta í hvaða röð sem mönnum sýnist.

Re: Mig vantar smá hjálp.

Posted: 24.mar 2013, 21:11
frá biturk
líklegast kertaþræði víst að þetta gerist aðallega þegar það er rakt úti

skoðaðu samt neista á kertunum og athugaðu hvort þau fái yfirhöfuð straum! getur líka mælt kertaþræðina, þeira eiga að gefa ákveðið viðnám ef þú mælir þá á milli enda með engum straum

Re: Mig vantar smá hjálp.

Posted: 25.mar 2013, 14:49
frá haffiamp
við pabbi vorum í veseni með toyota carinu sem prumpaði og lét illa í röku/blautu veðri og grunaði okkur auðvitað þræðina... einn dag neitaði hann að fara í gang, ég athugaði kertin í gamni mínu því það var það eina sem ég átti svona á sunnudegi og bíllinn lagðist við að skipta um þau, gömlu voru bara handónýt hehe

Re: Mig vantar smá hjálp.

Posted: 29.mar 2013, 10:22
frá Hr hilux
Takk fyrir hjálpina þetta var há spennukeflið sem er ónítt . En á einhver háspennukefli í 22re vélina.