Síða 1 af 1

Jeep cherokee diesel

Posted: 16.aug 2010, 21:36
frá joias
Veit einhver hvernig 2,5L diesel vélarnar eru í cherokee. Er þetta drasl eða eru þetta góðar vélar. Og hvernig eru þá gírkassarnir, eru þeir allt í lagi?

Re: Jeep cherokee diesel

Posted: 16.aug 2010, 22:36
frá Lada
Þessar vélar heita Detroit Diesel ef ég man rétt. Ég var einhvern tímann að spá í svona bíl og talaði við strákana í H. Jónsson við Skemmuveg og þeir voru ekkert voða hrifnir af þessum vélum og áttu enga varahluti í þær. Annars mæli ég með því að þú hringir bara í þá eða kíkir í heimsókn spjallir við þá, þeir vita allan fjandann um ameríska bíla.

Re: Jeep cherokee diesel

Posted: 16.aug 2010, 23:58
frá Einar
Árgerðir 1984-1993 voru með 2.1 L Renault turbodiesel 4 sílendra vélum sem höfðu vafasamt orð á sér.
Árgerðir 1994-2001 voru með 2.5 L Ítölskum VM Motori turbo-intercooler 4 sílendra vélum sem að voru held ég taldar í lagi en ekki sérlega skemmtilegar.
Eignarhald á VM Motori hefur verið á einhverju flakki og á tímabili átti Detroit Diesel Corporation þá, en þar var aldrei nein sameining og Cherokee hefur aldrei verið með Detroit Diesel vélum.
Arftaki Cherokee frá 2002, Jeep Liberty (sumstaðar seldur sem Cherokee) hefur verið með 2.8L VM Motori vélum.
Stóri bróðir Grand Cherokee notaði sömu 2.5L VM Motori vélar milli 1995 og 1998 en stærri 3.1L vél frá þeim milli 1999 og 2001 en síðan 2002 hafa þeir notað dieselvélar frá Mercedes Benz.

Re: Jeep cherokee diesel

Posted: 17.aug 2010, 00:31
frá joias
Þetta er einmitt árg. 95

Er semsagt ekkert mikið bilunarvesen á þeim? Og að hvaða leiti eru þetta ekki skemmtilegar vélar?

Veit einhver hvernig gírkassar eru við þessar vélar og hvernig þeir eru í endingu? Eitthvað bilunarvesen á þeim?

Re: Jeep cherokee diesel

Posted: 17.aug 2010, 10:19
frá Jens Líndal
Það sem ég hef lesið mig til um VM Mótorana er að þeir séu reyndar frekar skemtilegir, séu sprækir og togi vel, en þeir hafa verið með mikið heddvesen sem þú getur lesið þér til allstaðar á netinu um, og það er víst ódýrt að skifta um hedd á patrol miðað við að fara í hedd á VM. eftir því sem mér skilst á mínum lestri varðandi VM vélina er að það er eitt stakt hedd fyrir hvern cylinder og þar af leiðandi 4 hedd á vél. Og það myndast víst lofttappi í hverju heddi fyrir sig því vatnsgangurinn á þeim er ekki tengdur samanmilli hedda og fara þau af þeim sökum.