Síða 1 af 1
umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 07.mar 2013, 13:35
frá gaz69m
vá hvað ég er orðin þreyttur á þessu allt verður að vera umhverfisvænt rugl ,
það er td bara einn aðili orðin með lakk leysir sem virkar á gamalt bílalakk , restin er eithvað umhverfisvænt sull sem virkar seint illa og aldrei . skil ekki þetta rugl með að maður þurfi eithvað umhverfisvænt sull hreinsiefni sem maður notar þá fleiri lítra af til að eithvað gerist á móts við það sem er minna umhverfisvænt en þarf að nota 10x minna af til að eithvað gerist .
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 07.mar 2013, 14:51
frá jongud
Leysir ekki bremsuvökvi upp lakk ?
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 07.mar 2013, 14:55
frá gaz69m
jongud wrote:Leysir ekki bremsuvökvi upp lakk ?
neib hann er orðin svo umhverfisvænn
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 07.mar 2013, 18:26
frá ssjo
Ég setti svona lífrænt ræktaðan málningarleysi á borðplötu sem var lökkuð með sterku PU lakki. Þetta efni friskaði aðeins upp á lakkið en það linaðist ekki einu sinni. Hvar fæst lakkleysir, helst með metýlklóríði?
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 09.mar 2013, 18:15
frá birgiring
Hvaða lakkleysir virkar??
Kv. B.I.
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 09.mar 2013, 19:55
frá Gunnar00
Reynið að verða ykkur út um flugvéla-málningu-leysi, eða einhvað því um líkt. hef heyrt að hann sé álíka þeim gömlu góðu.
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 11.mar 2013, 21:46
frá aggibeip
Ég hef prufað lakkleysi frá Megalab. Hann fæst hjá Kemi á sprayformi og líka held ég í dós til að pensla. Sá leysir virkaði bara alveg þokkalega á bílinn hjá mér og lakkið flagnaði af.
Ég hef einnig prufað lakkleysi sem ég keypti í húsasmiðjunni. Það var svipuð lykt af honum og af þessum Megalab leysi. Hann var í dós til að pensla. Sá virkaði bara svipað og Megalab leysirinn.
ATH: Ég notaði alveg vel þykkt lag af leysir í bæði skiptin. Þurfti samt að skrapa málninguna af inn á milli.
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 12.mar 2013, 08:35
frá jongud
aggibeip wrote:Ég hef prufað lakkleysi frá Megalab. Hann fæst hjá Kemi á sprayformi og líka held ég í dós til að pensla. Sá leysir virkaði bara alveg þokkalega á bílinn hjá mér og lakkið flagnaði af.
Ég hef einnig prufað lakkleysi sem ég keypti í húsasmiðjunni. Það var svipuð lykt af honum og af þessum Megalab leysi. Hann var í dós til að pensla. Sá virkaði bara svipað og Megalab leysirinn.
ATH: Ég notaði alveg vel þykkt lag af leysir í bæði skiptin. Þurfti samt að skrapa málninguna af inn á milli.
Það hefur þá líklega verið MEKLÓ uppleysir, hann fæst í Húsasmiðjunni. Það er oft gott að bera hann á og breiða síðan yfir til að efnin í honum gufi seinna upp, en hann á að duga á flestar málningar og lökk.
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 12.mar 2013, 11:23
frá gaz69m
mekló uppleysir er ekki lengur seldur vegna umhverfissjónarmiða
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 12.mar 2013, 12:01
frá birgthor
Já ég þoli þetta umhverfisbull ekki og sérstaklega ekki lengri lífaldur sem þessu fylgir. Alveg hörmung ;)
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 12.mar 2013, 13:16
frá gaz69m
birgthor wrote:Já ég þoli þetta umhverfisbull ekki og sérstaklega ekki lengri lífaldur sem þessu fylgir. Alveg hörmung ;)
hmm lífeyrissjóðirnir í fokki , elliheimilin í fokki , sjúkrahúsin í fokki , til hvers að vera að auka lífaldur fólks með umhverfisstefnu ,
en fólk á jú að nota almennilegan hlífðarbúnað við svona vinnu
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 17.mar 2013, 15:32
frá aggibeip
gaz69m wrote:mekló uppleysir er ekki lengur seldur vegna umhverfissjónarmiða
Þetta var ekki mekló leysirinn.. Það er u.þ.b. mánuður síðan ég keypti þennan sem ég notaði í húsó :)
Re: umhverfisvænt kjaftæði
Posted: 19.mar 2013, 13:58
frá íbbi
það er náttúran sem er verið að vernda, ekki fólkið
það fæst þrælöflugur málningaleysir í málningarvörum