Síða 1 af 1

TH 400 hitavandamál

Posted: 11.aug 2010, 12:36
frá Blazer K5
sælir

Er búin að vera í miklum vandræðum með 400 skiptingu í stóra blazer 1986 módel. hann er með 6.2 turbodiesel

málið er það að það kemur eingin vökvi upp í kælirörin fyrir skiptinguna sem veldur því að hún hitnar bara og hitnar.
allir gírar virka fínt og hún skiptir sér bara mjög þétt og fínt, allavega ekkert hægt að kvarta yfir því. hef prófað að blása í rörin til að athuga með stíflu, er það er
ekki. reyndar þegar maður blæs í rörið þá sullast stundum upp úr kvarðarörinu, hélt að það ætti að koma út um öndunargatið.
dettur í hug að einhver göng séu brotin eða eitthvað álíka inní húsinu.

allavega myndi ég þiggja öll ráð og ábendingar um hvað gæti verið að

Re: TH 400 hitavandamál

Posted: 11.aug 2010, 18:17
frá ellisnorra
Er þetta önnur skipting heldur en þið tókuð upp?

Re: TH 400 hitavandamál

Posted: 11.aug 2010, 22:39
frá Blazer K5
Jú þetta er sú sem við tókum upp.
við viljum nú meina að við ættum ekki að hafa klúðrað neinu þar sem að allt virkar fínt, þeas skiptingar og svoleiðis.
þetta er sennilega það sama og hefur verið að þegar hún steiktist.