Síða 1 af 1

turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 20:08
frá elfar94
http://www.youtube.com/watch?v=DcCyFMVrG6A veit einhver hvaða skiptingu/kassa þessi er með? 2.0 saab mótor og amerískar hásingar.

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 20:11
frá SævarM
held að maggi hafi verið með 904 skiptingu í honum og er held ég enn með í nýja bílnum

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 20:23
frá elfar94
ég er að gæla við þá hugmynd að verða mér úti um svona mótor í löduna hjá mér og er þar af leiðandi að reyna að grafa upp allar upplýsingar um þennan bíl :) en þurfti ekki einhverjar milliplötur og svona eða?
og úr hvernig bíl er mótorinn upphaflega?

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 20:47
frá gabrielkarason
ég held nú að bílinn hafi verið til sölu eða þá að hann sjé seldur, frændi minn hann maggi breytti bílnum get talað við hann um hvaða kassi var í honum

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 20:53
frá jeepcj7
Ef ég man þetta rétt þá er skiptingin hjá Magga með sama bellhouse og 60 gráðu v6 chevy (2.8) og kemur úr 84-86 model af cherokee frekar sjaldgæft dót,mig minnir að saabinn hafi passað við þetta pattern en svo minnir mig að hann hafi þurft að mixa saman einhverja flexplötu til að þetta gengi upp.
Þú finnur svona vélar í saab 900 og 9000 og skiptingarnar sem ganga við þetta ef mig minnir rétt með bellpatternin eru til bæði þessar 904 frá dodge og svo td.200 og 700 skiptingar frá GM.

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 21:02
frá ellisnorra
Fyrir tæpum áratug var hér á götunum gamall 87 9000 saab, með þessari 2.0 vél sem heitir B202.

Image

Hann fór kvartmíluna á 12.1sec@115miles

Image

Dynotestaður 298kw sem er um 405 hestöfl. Keyrður á autronic tölvu með stærri túrbínu. Engar breytingar á vél.

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 21:10
frá ellisnorra
Betra er að finna 9000 bíl ef þú ætlar að ná þér í slátur vegna þess að í 900 bílnum er gírkassinn undir mótornum, og um leið olíupannan! Mótorinn snýr öfugt í þeim, kúplingin fyrir framan, vatnsdælan (venjulegi framendinn) fyrir aftan mótor og eins og áður sagði, gírkassinn undir mótornum :) Mjög spes :)
En 9000 bíllinn er bara venjulegur, mótorinn snýr bara eins vitlaust og í flestum bílum í dag (þversum).
Maggi er hættur að nota saab og kominn í hondu 2 lítra, hann fékk tvo b202 mótora hjá mér sem getur vel verið að hann eigi ennþá.
En það þarf kunnáttu og þolinmæði að tjúna svona, búðu þig undir það!

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 21:15
frá ellisnorra
Núna er Maggi kominn með grind og snýr öllu öfugt og hérna sést mótor og skipting

Image

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 21:18
frá elfar94
væri frábært ef þú gætir athugað hvort hann ætti enn b202 og hvað hann myndi þá vilja fá fyrir einn slíkan, og takk fyrir svörin

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 21:23
frá ellisnorra
Sendi þér símanúmerið hans í ES

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 21:28
frá kjellin
Sà ekki baldur um ad gera nyja tölvu í bílinn og sà um alt turbo ?

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 21:34
frá ellisnorra
Jú ég held að sá mikli meistari sjái um að þetta skili sér þokkalega áfram.

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 21:35
frá Púmba Þ
elliofur wrote:Fyrir tæpum áratug var hér á götunum gamall 87 9000 saab, með þessari 2.0 vél sem heitir B202.

Image

Hann fór kvartmíluna á 12.1sec@115miles

Image

Dynotestaður 298kw sem er um 405 hestöfl. Keyrður á autronic tölvu með stærri túrbínu. Engar breytingar á vél.

ég tel mig nú vita um þennan bíl út á túni í dag

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 23:19
frá lecter
,

Re: turbo jimny

Posted: 26.feb 2013, 23:50
frá juddi
Hérna er snildar uppskrift af turbo Jimny

http://auszookers.com/forum/viewtopic.php?f=5&t=11310&start=90

Re: turbo jimny

Posted: 28.feb 2013, 02:00
frá Valdi B
já baldur sá eða sér um allt rafmagnstengt held ég í bílnum hjá magga, ég þarf einmitt að fá hann í að setja standalone kerfi í bíl hjá mér fyrir sumarið og stilla :)

hann er rosalegur í svona dóti, búinn að gera suzuki vitara turbo og gamlann polaris indy 650 3 cyllendra turbo hehe :D

Re: turbo jimny

Posted: 28.feb 2013, 10:18
frá kjellin
svo á hann nátturlega eclipsinn líka, ,,, en ég held að það endi túrbo í flestu semað hann eignast.