Síða 1 af 1

2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 15:19
frá Jóhann
Sælir félagar nú er pústið hrunið og þarf að smíða nýtt hvar eru menn að fá bestu þjónustuna og verðin í svona vinnu?

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 15:30
frá sukkaturbo
Sæll hafðu samband við BJB Pústþjónustuna Sími 565 1090 og fáðu tilboð í verkið og líka pústþjónustu Einars Sími 564-0950.kveðja guðni

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 16:09
frá ellisnorra
Ég hef líka tekið að mér að smíða svona púst, umfjöllun um það ásamt myndum hér viewtopic.php?f=50&t=14332

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 16:42
frá Jóhann
Sæll Elli
Hvar ert þú staðsettur ertu í bænum ?

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 16:53
frá ellisnorra
Ég er nú bara allsekkert staðsettur í bænum :)
Ég er uppí Borgarfirði, ca 100km frá þessu mekka alheimsins sem Reykjavík virðist vera.

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 18:28
frá Tyrirun
Hann var mjög sanngjarn í Skógarhlíðinni í gamla Norðurleiðahúsinu, smíðaði 2,5 púst fyrir mig

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 19:39
frá Jóhann
Borgarfyrði já sæll pínu lengra en að fara í bæinn, er í Grindavík

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 19:54
frá Jóhann
Hvernig er það er leifilegt að pústið komi út undan bílnum fyrir framan afturhjól hægramegin?

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 20:05
frá Stóri
ef að það vísar niður að götu þá má það.... semsagt ekki beint útá gangstétt.

Kristófer

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 20:47
frá lecter
,

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 20:52
frá -Hjalti-
lecter wrote:sæll ég er með 2 jeppa með pústið út á hlið það er bara ekki hægt að vinna við bilinn þeim meigin án óþæginda frá pústinu ,, og i hægu færi eða þegar ekið er hægt kemur oft pústið inn ef rúða er opin

ég mæli með að fara alla leið aftur fyrir bilinn

2,5" púst er fint hvort sem er diesel eða v8 bensin

eg hef verið með 2,5" einfalt púst i ramcarger v8 318 það kom fint út einnig i 80cruser og 2,8patrol

eg var oft spurður hvaða vél væri i Ramcargernum sándaði þyngra eins og bb


Ég er með púst sem kemur út bílstjóramegin fyrir framan afturhjól og ég hef aldrei orðið var við það að það pústi inn um opna rúðu.. Í mörgum bílum er bara ekki val um annað en að vera með sílsapúst vegna aukatanka og annara hluta.

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 20:58
frá arni87
Ég er með pústið yfir grind og út rétt framan við afturdekk hægramegin og verð ekkert var við að það sé þar.

En það er tekið þannig hjá mér þar sem pústið brotnaði fyrir ofan hásingu í beiju og þegar ég spurði á pústverkstæðinu hvað það kostaði frá flangs og aftur þá var það um 20 þúsund, en einn starfsmaðurinn þar benti mér á að hin leiðin yrði ódýrari og kostaði "bara" 13 þúsund, þetta er um meters löng leið, og fannst mér verðið rán, en komst ekkert annað sökum vinnu og varð að fá skoðun á bílinn.

Re: 2,5" púst

Posted: 25.feb 2013, 21:01
frá Jóhann
Það er einmitt vegna aukatankanna sem það er að kvarla að mér aðsetja það út fyrir framan hjól en pústið er hægrameginn hjá mér þess vegna var ég ekki viss hvort það mætti.