Ranger diesel


Höfundur þráðar
Karvel
Innlegg: 171
Skráður: 02.feb 2010, 19:15
Fullt nafn: Smári Karvel Guðmundsson

Ranger diesel

Postfrá Karvel » 21.feb 2013, 23:15

Hvernig hafa nýlegu Ranger bílarnir verið að standa sig ? s.s árg 01+ ,með 2.5L TD

Image


Isuzu


Gunnar00
Innlegg: 222
Skráður: 29.mar 2012, 19:14
Fullt nafn: Gunnar Bjarki Hjörleifsson
Bíltegund: Land Cruiser 70

Re: Ranger diesel

Postfrá Gunnar00 » 21.feb 2013, 23:49

félagi minn á einn '02 minnir mig 2.5 td. hann lætur vel af honum, sagði reyndar að það fór hjólalega hjá honum að aftan, og það var einhvað spes lega sem þurfti og kostaði helling. sel það ekki dýrara en ég keypti :)

User avatar

íbbi
Innlegg: 1453
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: Ranger diesel

Postfrá íbbi » 22.feb 2013, 03:18

vorum að selja mazda B2500 þegar ég vann hjá ræsir, sami bíll, stóðu sig mjög vel almennt, ryðga dáldið, og mig minnir að það hafi verið e-h gírkassaproblem á einhverjum árgerðum
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.

User avatar

Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Re: Ranger diesel

Postfrá Tómas Þröstur » 22.feb 2013, 10:20

Ég á einn 33" breyttan sem hefur komið ágætlega út. Líkar vel við vélina og - þrátt fyrir allt - klafasystemið að framan. Nokkuð góður í stýri með því þrátt fyrir alla þá galla sem fylgja klafabílum að öðru leyti. Miksaði 38" Hilux kanta á hann en set 38 tomuna undir frekar sjaldan ( eini 38 tommu EURO Rangerinn í þorpinu). Drifhlutföll eru ca. 4,6 og 1st. minnir mig 4,7. Ekki hægt að fá lægri hlutföll en heildarniðurgírun orginal er svipuð og í beinskiftum USA Ranger með 5,13 hlutföllum. Stefni kannski á að setja undir frístandandi aukamillikassa einhvern tíman og færa afturhásingu um 8-10 cm. Þeir eru líka burðarmiklir miðað við stærð.
Viðhengi
Flísar 861.jpg
Vonarskarð 298.jpg
Flísar 240.jpg

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Ranger diesel

Postfrá Stebbi » 22.feb 2013, 23:37

Tómas Þröstur wrote: Nokkuð góður í stýri með því þrátt fyrir alla þá galla sem fylgja klafabílum að öðru leyti.


Fyrir bíl sem fer sárasjaldan á 38" myndi ég segja að sjálfstæð fjöðrun að framan væri bara það besta sem hægt væri að fá.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

HaffiTopp
Innlegg: 929
Skráður: 02.feb 2010, 17:04
Fullt nafn: Hafþór Atli Hallmundsson

Re: Ranger diesel

Postfrá HaffiTopp » 23.feb 2013, 00:53

Væri nú gaman að vita hvernig klafabíla Tómas Þröstur hefur prófað fyrst hann ber þeim búnaði svona illa söguna.

En Ranger/Mazda "svona pallbíll" er ágætis hræ en þó ekki til að ferðast langa vegalengd. Þá myndi gamall HiLux fara betur með mann. Vélin rótvinnur og eyðir um 9-11 á hundraðið. Leiðinlegir og klossaðir gírkassarnir í þessu, illa hljóðeinangrað og ef er látið standa lausagang í vindi (að vetri til) þá koðnar niður í miðstöðinni og öllum verður skítkalt í bílnum. Klafarnir að framan eru mjög svagir og engu líkara en hann sé of mjúkur að framan.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 42 gestir