Síða 1 af 1

þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 09.feb 2013, 00:57
frá íbbi
þekkir einhver nánar sögu eða ástand hans

http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1

Re: þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 09.feb 2013, 02:18
frá Gilson
5.8 l stóð í fréttablaðinu um daginn, sem gerir þetta líklega að 351 w eða c.

Re: þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 09.feb 2013, 11:58
frá íbbi
hef séð hann á fleyri stöðum auglístan með 5.4l

en það er mikið til af báðum mótorum,

þekkir einhver til bílsins? ég get mér til að þetta sé gamall ferðaþjónustubíll, hann virkar mjög vígalegur fyrir peningin

Re: þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 09.feb 2013, 13:31
frá Hagalín
Gætir haft samband við Mountaineers. Þeir áttu þennan bíl síðast og held ég fari með rétt mál að þeir settu vélina í einnig sem er eftir því sem ég best veit 351.

Re: þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 09.feb 2013, 14:45
frá juddi
351 er 5.8 svo þetta er nýrri mótor lýklegast Ford Triton

Re: þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 09.feb 2013, 23:10
frá RangerTRT
þetta er að öllum líkindum 351W (5.8L), en ekki 5.4 triton, og þar af leiðandi gamla vélinn. sem er reyndar mun hentugri búnaður. og svo lyggja 5.4 triton ekki mikið á lausu

Re: þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 09.feb 2013, 23:28
frá Kiddi
Hvað er það sem gerir 351 hentugri en 5.4?

Re: þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 09.feb 2013, 23:36
frá bennzor
Kiddi wrote:Hvað er það sem gerir 351 hentugri en 5.4?

Einfaldari, ef eitthvað klikkar er lang-oftast hægt að redda sér einhvernveginn þótt maður sé staðsettur lengst útí rassgati
án þess þó að þekkja 5.4 eitthvað þá hefði ég haldið að það væri betri kosturinn, kröftugri, eyðslugrennri og léttari (geri ég ráð fyrir) þótt það fylgi henni hellings rafmagn

Re: þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 09.feb 2013, 23:41
frá Doddi23
Ég prófaði þennan í Október þá var hann á annari bílasölu og var sett 1490þ á hann (ég prófaði hann eiginlega bara útaf V8 vélinni). Ég man reyndar ekki lengur hvaða vél var í honum en hún er allavega með innspíttingu og öllu því rafmagns dóti sem því fylgir. En hvað um það, bíllinn er frekar ryðgaður og er V sílsinn nánast horfinn úr honum og svo er smærra ryð hér og þar í honum en ekkert meira sem var mjög alvarlegt. Kúplinginn í honum er stórundarleg, ég mundi giska á að hún sé einfaldlega bara búin. Rafgeymarnir eru ónýtir, ég þurfti að kapla hann í gang, keyrði hann svo í ca 20 mín og gat svo ekki startað honum aftur eftir það. Hann er sárþjáður af jeppaveiki, sem getur náttúrulega þessvegna bara legið í að það þurfi að huntera dekkin en getur líka verið eitthvað mikklu meira. Þetta er fyrverandi ferðaþjónustu bíl og er því mikið keyrður og farið að sjá svolítið á honum að innan mest samt bara eðlilegt slit.Eftir að hafa prufað hann þá datt mér ekki í hug einu sinni að bjóða í hann á því verði sem hann var en hef aðeins verið að hugsa um hann undanfarið eftir að hann lækkaði í verði. Enda kannski ekki skrítið þar sem þetta er fyrsti Patrolinn sem ég hef prufað sem virkar eitthvað ;)

Re: þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 10.feb 2013, 02:18
frá Gunnar00
Pabbi átti þennan á sínum tíma, þá var hann með diesel, milligír og læti, stuttu eftir að hann selur hann til mountaineers fer vélin og þá er sett í hann ford v8, þá minnir mig að gírkassin hafa gefið sig og mixaður var í hann annar. þetta er allt eftir minni svo ég staðfesti ekki neitt, ef einhver vill þá get ég bjallað á hann og spurt hann útí hann.

Re: þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 11.feb 2013, 22:59
frá RangerTRT
Kiddi wrote:Hvað er það sem gerir 351 hentugri en 5.4?



svona eiginlega allt nema kanski með eiðsluna.. enn er fyrirferðaminni, léttari ódýrari, minna af ramagns búnaður (351w ef þú ert með inspýtinga mótor) allt til í þetta fyrir líð fé,
og bara mikið einfaldari búnaður til að "mixa" i hvað sem er, og hægt að finna allar pplýsingar um þetta dót á netin. enn annas er 5.4 alveg snildar vélar ef menn nenna að víra allt þetta rafmangs búnað saman

Re: þekkir einhver þennan? patrol með 5.4l

Posted: 12.feb 2013, 00:54
frá ToyCar
Þetta er 351W EFI sem kom úr F250 eða F350.
Kjartan Gutti setti þennan mótor í bílinn fyrir ferðaþjónustuna þegar Patrol vélin hrundi.