Síða 1 af 1
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 06.feb 2013, 18:31
frá jeepson
Nei hættu nú alveg. Maður verður að fara að hafa rafmagns girðingu utan um jeppann og helst jarð sprengjur í kringum hann líka.
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 06.feb 2013, 18:35
frá ellisnorra
Það er flott maður! Þá eykst framboðið á þessu og verðið lækkar!!!
KALDHÆÐNI!
Var stolið undan bílnum hjá þér Vopni? Vonum að það sé bara einangrað tilfelli...
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 06.feb 2013, 18:37
frá Haffi
jeepson wrote:Nei hættu nú alveg. Maður verður að fara að hafa rafmagns girðingu utan um jeppann og helst jarð sprengjur í kringum hann líka.
Eða fá sér 2-way þjófavörn og hafa hana ofurnæma!
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 06.feb 2013, 18:38
frá Ingójp
Nei andskotinn er ekki hægt að hafa neitt í friði lengur
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 06.feb 2013, 19:31
frá Hrannifox
nei hvuuur fjandinn! hvað er í gangi með þetta litla land
einsgott að ég sé með vacum læsingu og eingan hvarfa
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 06.feb 2013, 19:39
frá jeepson
Hrannifox wrote:
einsgott að ég sé með vacum læsingu og eingan hvarfa
Já segðu.
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 06.feb 2013, 19:53
frá Ingójp
Svo tekst þessum aulum einnig alltaf að skemma svo mikið þegar þeir eru að þessu
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 06.feb 2013, 20:12
frá sukkaturbo
Sælir ég á ekki til orð um svona athæfi maður verður hund reiður að lesa svona. Er þetta íslenskt eða erlent athæfi? Skiptir ekki máli nógu slæmt samt.kveðja guðni
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 06.feb 2013, 20:23
frá Hfsd037
Jájájá það er ekkert annað, hvar var jeppinn lagður?
Eru margir 90 bílar á selfossi?
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 06.feb 2013, 22:07
frá JLS
Ég man eftir þegar ég var polli eftir umræðum sem pabbi átti við félaga sína, en þær snerust einmitt um svona þjófnaði, en það var víst furðulega algengt nítján hundruð sextíu og eitthvað og framyfir nítjánhundruð og áttatíu að skiftingum, millikössum og drifum var stolið úr bílum. Einnig man ég eftir manni sem talaði um að hann fór í bíó með einhverja dömu sem hann var að reyna við, en eftir bíó þá er farið í bílinn og hann ræstur en skiftistöngin var úr sambandi, og þegar betur var að gáð þá var skiftingin horfin ásamt skafti og tilheyrandi.
Ég er nú svo lánsamur að hafa ekki orðið fyrir barðinu á svo býræfnum óþjóðalýð né veit ég um einhvern sem hefur lent í þessu.
En að fólk leggist svona lágt til að verða sér úti um varahluti er óskiljanlegt.
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 07.feb 2013, 02:59
frá lecter
alltaf hund fúlt svona ,, en hefði getað verið verra ... hér var stolið startara úr econoline 7.3 standard bil heima i inkeirstlu fyrir utan húsið i vogum ,,,
hjá mér var stolið 40 feta gám sem var fullur af vélum og verkærum ,,um 30 tonn hann var farinn einn daginn
bara gámalyftu bill gat tekið það ca 8 milljónir i gámnum hann fanst ekki
svo var brotist inn hjá mér af fyrverandi starfmanni og stolið verkfærum og tækjum fyrir 5 milljónum ég varð´að loka verkstæínu og flytja til noreigs en ég var ekki tryggður ,,
nú við sáum strax hver þetta var og fórum til Lögregglu svörin sem ég fekk voru ,,, við erum i sumarleyfi svo seigir hann öruglega nei ,,, þarna var ekki nóg að vita hver stal verkstæðinu ,,lögregglan gerði ekki neitt
og ég fekk ekkert af tækjunum sem var heilt dekkja verkstæði heil bónstöð og heilt bilaverkstæði allt ný tæki ,,, en ég var i 300m2 og upp i 6 menn i vinnu
svo fann ég mannin logs sjálfur og elti hann heim þá reyndi hann að keyra yfir mig og ég lenti á rúðuni á bilum hans en hann er proflaus á bil mömmu sinnar gler fór i augun á honum þegar rúðan brotnaði og ég fekk kæru á mig sem likamsárás
svona er island i dag vinur
svo skilur fólk ekkert i að spretti upp handrukkarar og véljólaklúbbar til að finna og rukka fólk ,,
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 07.feb 2013, 03:59
frá joisnaer
manni líður nú alltaf illa nú orðið við að skilja jeppan eftir úti, ótrúlegt hvað eigur manns fá ekki að vera í friði nú til dags.
Persónulega hef ég ekki lent í því að neinu hafi verið stolið úr eða af jeppanum hjá mér, en maður er alltaf með hjartað í buxunum þegar maður fer eitthvað frá.
þótt ég búi fyrir austan.
Skelfilegt hvernig þetta blessaða litla land okkar er að fara
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 07.feb 2013, 10:02
frá kjellin
svopni wrote:Já enda er maður með myndavélar og kerfi þar sem að verðmæti eru geimd. Það er það eina sem virkar.
það var nú brotist inn í aðstöðu semað við félagarnir vorum að leigja þrátt fyrir mjög gott myndavéla eftirlit, en það eina sem tekið var, var harðidiskurinn úr tölvunni semað geimdi myndir, en allt annað látið í friði sem betur fer,
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 07.feb 2013, 10:45
frá gaz69m
eru þið ekki að grínast djöfulls rugl , eru menn virkilega svo bíræfnir að skrúfa hluti úr jeppum úti á bílaplani hjá manni
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 07.feb 2013, 12:07
frá lecter
já econoline startaðí bara ekki einn daginn fyrir utan bilskúrinn hjá manninum ,, hepni að rafmagnið + fór ekki utan i grindina eða i jörð þá hefði billinn brunnið
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 07.feb 2013, 12:20
frá lecter
en þó að maúr fái sér myndavelakerfi á fær maður ekki hlutina aftur nema þú finnir út sjálfur hver þetta er og mætir með her manna með þér á svæðið þar sem maðurinn er þú getur ekkert notað lögreggluna nema tilkynna inbrot fyrir tryggingarfélagið þitt
þegar stolið var á vekstæðinu hjá mér var eg kominn með trygginu en verðið var svo hátt að ég var að biða eftir betra tilboði ég held að iðngjaldið hafi verið um 200,000 á ári með öllu bruni ,inbrot, skemdir bilar
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 07.feb 2013, 13:48
frá Heiðar Brodda
félagi minn lenti í því að það var búið að skrúfa nýju afturljósin af hilux num hans og setja sprungin og gömul mött í staðinn kv Heiðar
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 07.feb 2013, 18:35
frá jeepson
Ísland. Paradís glæpamanna.
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 07.feb 2013, 20:35
frá dabbigj
Versta sem ég hef heyrt af var hjá fyrirtæki á Völlunum í Hafnarfirði, það var brotist inn hjá þeim og loftpressunni stolið ásamt nokkrum handverkfærum en aðal verðmætin í loftpressunni, svo fá þeir bætur frá tryggingafélaginu og versla nýja og mun öflugari loftpressu. Þá er brotist aftur inn og gömlu skilað.
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 11.feb 2013, 01:09
frá Oskar K
dabbigj wrote:Versta sem ég hef heyrt af var hjá fyrirtæki á Völlunum í Hafnarfirði, það var brotist inn hjá þeim og loftpressunni stolið ásamt nokkrum handverkfærum en aðal verðmætin í loftpressunni, svo fá þeir bætur frá tryggingafélaginu og versla nýja og mun öflugari loftpressu. Þá er brotist aftur inn og gömlu skilað.
bwhahahahahaha snilld
Re: Að stela læsingarmótorum!
Posted: 11.feb 2013, 10:27
frá juddi
Sem sagt þjófarnir hafa þekt vel til á verkstæðinu