Síða 1 af 1
patrol 3 litra
Posted: 05.feb 2013, 19:01
frá ofur patti
sælir allir er með patrol 2000 árg 3 litra hann hefur verið að slá út þegar ég hef gefið honum inn eða þegar hann er undir átaki fór með hann í tölvu og fundu menn ekki neitt að honum en menn töldu túrbinuna ónyta ekki er neitt hljóð í henni svo fékk ég mér túrbinuþristimælir og setti í hann þá sá maður hvað er að gerast þristingurinn fer stundum uppúr öllu valdi og þá slær hann út mælirinn synir mest 20 pund hann fer meira en það nálin á mælinum fer næstum hringinn hvað halda menn um þetta hvað er að þarf ég að kaupa aðra túrbinu og hvað má þetta blása endilega komið þið með uppástungur
Re: patrol 3 litra
Posted: 05.feb 2013, 19:04
frá hobo
Ég myndi byrja á að skoða wastegate ventilinn á túrbínunni hvort hann sé nokkuð fastur lokaður.
Re: patrol 3 litra
Posted: 05.feb 2013, 19:21
frá Magni
Ég hef nú heyrt það nokkrum sinnum að 3.0 patrol blási kringum 40 pund orginal. *Það er líklega kringum 18-20pund, mig misminnti eitthvað*
Re: patrol 3 litra
Posted: 05.feb 2013, 20:16
frá ofur patti
magni 81 getur þetta verið satt það er ótrúlega mikill þristingur vestegate ventillin er góður það er búið að keyra þessa vél 362 þúsund km kannski er ekkert vit að kosta nokkuð uppá vélina en hún virðist vera góð að öðru leiti ef væri farið í vélaskypti hvað væri auðveldast að fara í þá er verið að tala um disel
Re: patrol 3 litra
Posted: 05.feb 2013, 20:20
frá Eiður
mér skilst að bínan blási orginal 18psi... leyfi mér að þykja 40psi fjarstæðukennt
Re: patrol 3 litra
Posted: 05.feb 2013, 20:25
frá villi58
ofur patti wrote:sælir allir er með patrol 2000 árg 3 litra hann hefur verið að slá út þegar ég hef gefið honum inn eða þegar hann er undir átaki fór með hann í tölvu og fundu menn ekki neitt að honum en menn töldu túrbinuna ónyta ekki er neitt hljóð í henni svo fékk ég mér túrbinuþristimælir og setti í hann þá sá maður hvað er að gerast þristingurinn fer stundum uppúr öllu valdi og þá slær hann út mælirinn synir mest 20 pund hann fer meira en það nálin á mælinum fer næstum hringinn hvað halda menn um þetta hvað er að þarf ég að kaupa aðra túrbinu og hvað má þetta blása endilega komið þið með uppástungur
Þetta er flott bara keyra
Re: patrol 3 litra
Posted: 05.feb 2013, 21:08
frá Eiður
villi58 wrote:ofur patti wrote:sælir allir er með patrol 2000 árg 3 litra hann hefur verið að slá út þegar ég hef gefið honum inn eða þegar hann er undir átaki fór með hann í tölvu og fundu menn ekki neitt að honum en menn töldu túrbinuna ónyta ekki er neitt hljóð í henni svo fékk ég mér túrbinuþristimælir og setti í hann þá sá maður hvað er að gerast þristingurinn fer stundum uppúr öllu valdi og þá slær hann út mælirinn synir mest 20 pund hann fer meira en það nálin á mælinum fer næstum hringinn hvað halda menn um þetta hvað er að þarf ég að kaupa aðra túrbinu og hvað má þetta blása endilega komið þið með uppástungur
Þetta er flott bara keyra
maður græðir ekkert á því að fá allt of mikið loft inná vélina, aflið kemur frá olíuni og því óþarfi að láta heddið fjúka af EF hann er að blása of mikið
Re: patrol 3 litra
Posted: 06.feb 2013, 00:08
frá grimur
Málið er að hann fer að missa afl ef bínan er að puða alltof miklu auka lofti inná vél. Bæði gerir það ekkert gagn ef olíu vantar á móti og svo myndast mikill mótþrýstingur í greininni.
Re: patrol 3 litra
Posted: 06.feb 2013, 12:27
frá JLS
Ég lenti í að gera við 3 lítra patrol fyrir stuttu síðan, hann var stöðugt að fara í útslátt, var aflaus en reykti ekkert og var eðlilegur að öðru leyti. túrbó þrystingur inná intercooler fór nánast í 30 psi og ekkert óeðlilegt kom í ljós við aflestur fyrir utan overboost kóðann. En vandamálið var að EGR ventillinn var fastur opinn en mældist samt með eðlilega virkni, Lausnin var að loka EGR lögninni við soggrein og stilla túrbínuna niður í 18 psi sem er það mesta sem hún á að geta blásið, en það þarf að stilla "wastegate" dótið á túrbínunni þegar EGR inu er lokað, núlla svo tölvuna og bíllinn varð eins og nýr miðað við hvernig hann var. Best hefði verið að sjálfsögðu að setja nýjan EGR ventil en eigandinn hafði ekki áhuga á að fjárfesta í nýjum svona óþarfa búnaði :)