Stýrisdempari með gormi


Höfundur þráðar
villi
Innlegg: 445
Skráður: 01.feb 2010, 00:55
Fullt nafn: Vilhelm Snær Sævarsson
Bíltegund: Ford F250 7.3
Staðsetning: patreksfjörður

Stýrisdempari með gormi

Postfrá villi » 01.feb 2013, 00:29

Hefur einhver prufað svona stýrisdempara

http://www.ebay.com/itm/TOYOTA-80-100-S ... a6&vxp=mtr



User avatar

karig
Innlegg: 335
Skráður: 01.feb 2010, 11:48
Fullt nafn: Kári Gunnarsson
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Varmahlíð

Re: Stýrisdempari með gormi

Postfrá karig » 01.feb 2013, 09:10

Hvað er trixið við gorminn??? Væntanlega virkar hann bara þegar demparinn gengur saman en gerir ekkert í sundurslaginu??

User avatar

Doddi23
Innlegg: 194
Skráður: 14.jún 2012, 21:59
Fullt nafn: Þórður Már Björnsson
Bíltegund: Jepp Cherokee 91 4,0
Staðsetning: Rvk

Re: Stýrisdempari með gormi

Postfrá Doddi23 » 01.feb 2013, 09:32

karig wrote:Hvað er trixið við gorminn??? Væntanlega virkar hann bara þegar demparinn gengur saman en gerir ekkert í sundurslaginu??


Lesa aðeins það sem stendur fyrir neðan myndirnar ;)

The tough steel coil sping works on the "return-to-center" principle. When compressed, the spring pushes back to the neutral position. When extended, the spring pulls back to the neutral position. Compared to any single or dual dampers, it is the only product that provides a self-centering action.

Gormurinn virkar í báðar áttir og er hannaður til að hjálpa til við að koma og halda bílnum í beinni keyrslu stefnu (miðstöðu).

User avatar

karig
Innlegg: 335
Skráður: 01.feb 2010, 11:48
Fullt nafn: Kári Gunnarsson
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Varmahlíð

Re: Stýrisdempari með gormi

Postfrá karig » 01.feb 2013, 10:03

þar lá að......


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: Stýrisdempari með gormi

Postfrá lecter » 01.feb 2013, 10:33

mér lýst vel á þetta gæti hjálpað i slitnum götum ég er að aka hér i noreigi og það er komið niður úr 2 lögum förin eru svo bjúp meira en 10cm djúp ,, já miklu verri götur i norge en heima á Islandi

og mikklu betra ástand á götum á islandi en i norge

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Stýrisdempari með gormi

Postfrá Kiddi » 01.feb 2013, 12:16

Ég myndi aldrei hleypa þessu nálægt mínum jeppa... það er nógu erfitt fyrir stýrisdemparann að dempa sveiflurnar sem koma frá dekkjunum. Algjör óþarfi að mínu mati að bæta við gorm sem myndar nýjar sveiflur til viðbótar!
Svo ég tali nú ekki um að það meikar ekkert sens að vera að spenna einhvern gorm til og frá til þess að beygja og auka þannig kraftinn sem þarf til þess að beygja.
Spindilhallinn á alveg að duga til að dekkin fari aftur í miðju.


grimur
Innlegg: 891
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Stýrisdempari með gormi

Postfrá grimur » 01.feb 2013, 23:54

Sammála Kidda.
Krafturinn í svona dæmi er líka núll í miðstöðunni, eykst svo eftir beygju. Virkar semsagt ekkert næst miðstöðunni.

Snákaolía.

User avatar

Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Re: Stýrisdempari með gormi

Postfrá Brjótur » 02.feb 2013, 15:23

Sælir sma innlegg herna :) eg er aður buinn að benda a koni styrisdemparann sem er ætlaður i Patrol fyrir 1998 hann er alveg rosalega stifur að yta honum saman og hann er alltaf að yta ut , þannig að það er atak i baðar attir en ekki dauður i miðju eins og aðrir styrisdemparar frabær dempari :)

kveðja Helgi

User avatar

StefánDal
Innlegg: 1224
Skráður: 23.mar 2010, 21:21
Fullt nafn: Stefán Hrannar Dal Björnsson
Bíltegund: Toyota Hilux

Re: Stýrisdempari með gormi

Postfrá StefánDal » 02.feb 2013, 15:45

Já ég myndi halda að þetta ætti að auka slit á stýrisbúnaði. Á ekki vel breyttur jeppi að "miðjustilla" sig sjálfur?

User avatar

Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Re: Stýrisdempari með gormi

Postfrá Brjótur » 02.feb 2013, 17:09

Sælir einhver misskilningur herna eg er ekki að meina að billinn miðjustilli sig sjalfur enda ekki hægt með dempara sem er alltaf að yta i sundur, en það er akkurat það goða við þennan dempara þvi dempari dauður a miðjunni gefur sjens a hreyfingu en ekki þessi, og þetta kemur breytingunni ekkert við það er alveg sama hversu vel breyttur billinn er það þarf alltaf demparann
en eg er ekki kanski ekki eins hlynntur þessum með gorminn, hallast a að vera sammala Kidda með hann

kveðja Helgi


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: Stýrisdempari með gormi

Postfrá lecter » 02.feb 2013, 17:36

kaupið þennan dempara og prufið áður en þið dæmið hann ég efast ekkert um að hann gerir það sem hann á að gera ,,, ég hef smá hugmynd um að hann gæti safnað is i gorminn i miklu frosti og krapa

User avatar

dazy crazy
Innlegg: 251
Skráður: 13.feb 2011, 15:12
Fullt nafn: Dagur Torfason
Bíltegund: Kangoo og Ferguson
Staðsetning: Skagafjörður

Re: Stýrisdempari með gormi

Postfrá dazy crazy » 02.feb 2013, 22:43

Sé nú ekki alveg af hverju þetta ætti ekki að virka, og það væri hægt að minnka spindilhallan aðeins á móti.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Google [Bot] og 21 gestur