Síða 1 af 1

efi eða blöndungur

Posted: 30.jan 2013, 03:45
frá lecter
hvor eiðir meira ég hef skoðun á þvi ,,einginn munur ,,,

1, ef vélin hefur ekkert tog hjálpar efi henni ekkert
2, efi heldur bara betri gang köld ef insogið er bilað eða virkar ekki akkurat á blöndung

hver er ykkar skoðun

Re: efi eða blöndungur

Posted: 30.jan 2013, 11:36
frá Startarinn
Efi hjálpar ekkert uppá aflið finnst mér, en gefur meiri möguleika á tjúningum held ég, þ.e. að stilla eldsneytisblöndu og kveikjutíma á vissu snúningssviði eftir því hvernig vélin hagar sér.

Eina undantekningin sem ég hef heyrt á þessu er blöndungurinn sem Stjáni sýra hannaði, en þar þarf að hanna hvern blöndung fyrir sig eftir vélatýpu, þeir verða ekki færðir svo auðveldlega á milli tveggja gerða af vélum

Re: efi eða blöndungur

Posted: 30.jan 2013, 11:42
frá sukkaturbo
Blöndungur enda ég orðin gamall jeppamaður kveðja guðni

Re: efi eða blöndungur

Posted: 30.jan 2013, 12:43
frá jongud
EFI
Innspýtingarnar úða bensíninu í miklu smærri dropa en blöndungur getur nokkurntíma gert og þar með er bruninn miklu hreinni.
einföldustu EFI kerfi eru bara með fjóra skynjara,
súrefnisskynjara
snúningshraðaskynjara
TPS skynjara (inngjafarskynjara)
hitaskynjara á kælivatni.

Re: efi eða blöndungur

Posted: 30.jan 2013, 15:23
frá íbbi
innspýting allan daginn.. mér er hulin ráðgáta hvernig blöndungur gæti verið betri kostur

Re: efi eða blöndungur

Posted: 01.feb 2013, 12:38
frá Dodge
Innspíting tryggir alltaf betri nýtingu og hreinni bruna,, nema hún sé eitthvað ríkis aftermarket sorp.
Svo ekki sé minnst á gangöryggi í halla og hossum og þessháttar