Síða 1 af 1
Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 24.jan 2013, 15:21
frá Óskar - Einfari
Sælir félagar
Þegar að ég var að ferðast um Suður Ameríku fyrir nokkrum árum sá ég doldið af flutningabílum með einhverskonar utanáliggjandi úr/íhleypibúnað. Ég í einfeldni minni þá hugsaði með mér "hmm sniðugt, þeir eru með þetta til að jafn þrísting á fjallvegum" enda eru sumir vegirnir í Suður Ameríku mjög, mjög hátt uppi. Ég var svo mikill klaufi að taka ekki mynd af þessu þá. Nú er ég að ferðast um Mið Ameríku og er að sjá þennan sama búnað á sumum strætóum og rútum hérna á láglegndinu þannig að ég veit ekki alveg til hver þetta er notað. Allaveg, ég smellti mynd af þessu núna, spurning hvort að þetta nýtist okkur eitthvað hérna á klakanum. Ef þetta er gert fyrir bíla í atvinnuakstri hlýtur þetta að endast eitthvað.
Ég sá eiginlega mest af þessu í Mexico

Kv. frá Isla Del Flores, Guatemala
Óskar Andri
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 24.jan 2013, 15:35
frá Kiddi
Það er spurning hvort það sé hitabreytingin sem þeir séu að spá í (og hæðin)?
Ég sá svona búnað líka á rútum í Colorado um daginn.
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 24.jan 2013, 15:55
frá lecter
frekar held ég að hæðarmunur sé málið en til að komast upp úr mexico city td þarf að fara i 3000m hæð og bara að ef dekkið er að gefa sig þa er rútan ekki stop getur pumpað i og séð hvað er að gerast undir bilum ,,, áður en slys verður ,,,
en þetta er ekkert smá hæð ,, ég hef farið frá Mexico city til Acapulco ferðin niður að strönd tok 7-8 tima first upp úr dalnum upp fra borginni ,, þar voru bilaðir trukkar i öllum útskotum og menn að gera við,, svo er ekið niður svo bratt stundum að maður rann næstum úr sætinu svona var þetta i 7 tima allan timan á leið niður
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 24.jan 2013, 15:57
frá Svenni87
kannski eru þetta bara míglek dekk sem þarf stöðugt að bæta í ;)
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 24.jan 2013, 16:11
frá lecter
,,,,flottar frettir frá blóma eyju S ameriku ,,,, hér hjá mer er -15 og allur sjórin frosinn ,,,,
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 24.jan 2013, 21:00
frá Hfsd037
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 24.jan 2013, 23:42
frá Óskar - Einfari
Nei reyndar ekki... við erum að ferðsast frá Yucatan skaganum í Mexico niður til Costa Rica þannig að við förum ekkert niður til Suður Ameríku í þessari ferð :)
Maður er fyrst farinn að sjá einhverja skemmtilega jeppa hérna í Guatemala en algengasta breytingin er að hækka eitthvað smá á fjöðrun og setja einhverjar svona stuðaragrindur og spil á bílana.. gaman að sjá gamlar heillegar súkkur :)


KV.
Óskar Andri
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 25.jan 2013, 00:06
frá Magni
Skítt með þennan úthleypibúnað ;) hehe ég væri til í að vita meira um þetta ferðalag. Eruði í bakpokaferðalagi? einhverjar fleiri myndir?
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 25.jan 2013, 01:07
frá Óskar - Einfari
já við erum að þvælast með bakpoka ég og unnustan. Verðum á ferðalagai í 6 vikur (erum reyndar búin með 2,5 vikur núna). Við fórum árið 2010 til Suður Ameríku og skoðuðum menningarminjar um Incana. Við heilluðumst það mikið af því svæði að við ákváðum að skoða menningarminjar Mayana líka sem að við erum að gera núna. Konan er voð dugleg að blogga... getur séð það hér, við setjum inn myndir öðruhverju en nettengingarnar eru stundum svo daprar að þetta eru bara sýnishorn :)
http://oskaroginga.blogspot.com/
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 25.jan 2013, 03:28
frá ellisnorra
Þetta er magnað ferðalag hjá ykkur! Gaman að láta draumana rætast svona :) Ég er á næturvakt og ætla að dunda mér við að lesa um þetta athyglisverða ferðalag ykkar frameftir nóttu :)
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 25.jan 2013, 07:23
frá gislisveri
Flott framtak Óskar, endilega dældu í okkur myndum.
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 25.jan 2013, 07:54
frá Magni
Óskar - Einfari wrote:já við erum að þvælast með bakpoka ég og unnustan. Verðum á ferðalagai í 6 vikur (erum reyndar búin með 2,5 vikur núna). Við fórum árið 2010 til Suður Ameríku og skoðuðum menningarminjar um Incana. Við heilluðumst það mikið af því svæði að við ákváðum að skoða menningarminjar Mayana líka sem að við erum að gera núna. Konan er voð dugleg að blogga... getur séð það hér, við setjum inn myndir öðruhverju en nettengingarnar eru stundum svo daprar að þetta eru bara sýnishorn :)
http://oskaroginga.blogspot.com/
Þetta er flott hjá ykkur. Ég kíki á þetta blogg við tækifæri. Það væri flott að fá einhverjar myndir líka. Ég og konan hefur einmitt alltaf langað til Suður Ameríku. Við fórum vorið 2011 í 5 vikna bakpokaferðalag um suð-austur Asíu og erum því komin með ferða bakteríuna :) Gangi ykkur vel.
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 25.jan 2013, 10:09
frá íbbi
magnað ferðalag.
bestu lukku með restina af því :)
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 25.jan 2013, 14:47
frá lecter
endilega farið varlega þið eruð ,,,peningur ,,, ég vinn stundum i Mexico i supplay skipum sem eru i mexico flóanum ,,
ég for 2 ferðir á siðasta ári ,,, og við vorum með vopnaðaða verði til og frá skipinu og á kvöldin var bannað að fara af hótelinu ,, þar sem okkur gat verið rænt .. td þegar við lentum á flugvellinum i Tampico spurði ég afhverju svona margir hermenn og lögregla væri svona sýnileg ,er eithvað i gangi,, , túlkurinn sagði já hvernig sérðu það ,, ég sagði að ég hef verið oft áður i mexico ,,, (ég átti konu frá mexico i 16 ár og 2 börn með henni ) ... til gamans tók ég mynd af einum lögreglu bilnum af þvi að hann var með gat á hurðini eftir byssu kúlu ,,, svo seinna for ég til veracruz þar fundust 30 hauslaus lik á ströndini þegar við vorum búinn að vera þar i viku og einn morguninn þurftum við að klofa yfir lik á gangstettinni við hotelið á leið út i bil það var bara ekki búið að taka likið svo snemma morgunns ,,, svo til ykkar einga sénsa ekkert úti eftir 6 þó að myrkur kemur kl 8
en endilega smakkið Mole kjúlla i súkkulaði sósu og 40 mismunandi krydd
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 25.jan 2013, 16:40
frá hobo
Ég fór einu sinni í rútuferð frá Cancun að skoða Chichen Itza píramídana. Mjög flott. En varðandi þennan dropasteinshelli sem þið skoðuðuð, ég skoðaði líka helli í þessarri ferð en aðalmálið þar var að fyrst komum við að einmana eldgömlu tréi, svo sá maður ræturnar hverfa ofan í svarta holu. Svo vorum við leidd aðeins frá og að tröppum sem lágu ofan í jörðina og opnaðist þá þessi svaka geimur og þá sá maður ræturnar örugglega 15m lóðrétt ofan í tæra uppsprettu. Það hefur verið eitthvað annað eða hvað?
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 25.jan 2013, 18:50
frá Hfsd037
Magni81 wrote:Skítt með þennan úthleypibúnað ;) hehe ég væri til í að vita meira um þetta ferðalag. Eruði í bakpokaferðalagi? einhverjar fleiri myndir?
X2
þetta er eitthvað sem maður væri til í að prufa :)
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 26.jan 2013, 00:41
frá Óskar - Einfari
Hérna eru nokkrar myndir í víðbót af bílum í Playa del carmen, cancun og golfbílastemningunni í Isla Holbox.

Playa del carmen

Playa del carmen

Flottar veltigrindur á tveimur pikkum í cancun, gerðar úr rörafittings :)

Isla Holbox

Isla Holbox
Kv.
Óskar Andri
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 27.jan 2013, 16:05
frá lecter
svona fyrir ykkur sem ekki hafa komið til Mexico ,, og langar að upp lifa stemningu ,music, storkostlegt manlif og menningu ,frábærann mat, og drikk ,
http://www.youtube.com/watch?v=UCEmgURjRBo
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 30.jan 2013, 17:20
frá Óskar - Einfari
Erum komin til Antigua í Guatemala núna. Er aðeins farinn að sjá þennan úrhleypibúnað aftur. Sá þetta í gæt á litlum rútukálfi. Maður er aðeins farinn að sjá breytta bíla hérna samt ekkert stærra en 35". Sá einn V6 Hilux hérna á 35" með einhverri bolt on klafasíkkun. Sá einn Suzuki Samurai hérna merktur 1.9TD... vissi ekki að þeir hefðu verið til með dieselvélum :)




Kv.
Óskar Andri
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 30.jan 2013, 17:46
frá lecter
næst getur þú spurt afhverju þetta er notað mér finst liklegt að þetta se framleitt i mexico
findu út nafnið á þessu
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 30.jan 2013, 22:19
frá jobbi46
Takk fyrir flottar myndir og góða ferð.
Eru menn ekki orðnir tvífarar. :)
Dótið er frá Braz. :
http://www.capanema.com.br/
Re: Úrhleypibúnaður í Mið og Suðurameríku
Posted: 31.jan 2013, 01:32
frá Óskar - Einfari
Vorum aðeins á rölti í dag hérna í Antigua, smellti nokkrum myndum af bílum sem mér þóttu áhugaverðir :)

Guatemala Chicken Bus, flestir eru orðnir doldið hressilega sjúskaðir en einn og einn lýtur vel út

LandCruiser Pallbíll

LandCruiser Pallbíll

Unimog

Unimog
Kv.
Óskar Andri