Síða 1 af 1

Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 12.jan 2013, 22:52
frá Dodge Ram
[img]
Dodge%20Ram%20breytingar%20202.JPG
Dodge%20Ram%20Breytingar%20201.JPG
Dodge%20Ram%20breytingar%20200.JPG
[/img]

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 12.jan 2013, 23:00
frá olafur f johannsson
þetta er bara glæsilegur bíl hjá þér Gunni

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 12.jan 2013, 23:29
frá Garðar
mjög flottur. Mér finnst hann samsvara sér mjög vel.

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 12.jan 2013, 23:30
frá arni_86
Alveg virkilega flottur thessi. Vel gert!

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 12.jan 2013, 23:33
frá jeepson
Flottur.

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 12.jan 2013, 23:40
frá Magni
Geggjaður jeppi!

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 13.jan 2013, 00:33
frá siggi.almera
flottur og fallegur litur

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 13.jan 2013, 15:02
frá MattiH
Hrikalega flottur...

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 13.jan 2013, 17:50
frá TWIN 2
þessi er geggjaður. flottur litur

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 13.jan 2013, 18:10
frá jeepcj7
Sjúklega flottur bíll og liturinn frábær.

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 13.jan 2013, 18:26
frá GFOTH
Flottur

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 13.jan 2013, 22:32
frá Freyr
Sæll

Verklegur bíll. Ég ætla að gerast mjög djarfur m.v. fyrri svör og biðja um einhverjar meiri upplýsingar um trukkinn;-) Svosem hvað var gert í sambandi við drifbúnað, hásingafærslur, hækkun, þyngd eftir breytingar o.s.frv....?

Kveðja, Freyr

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 13.jan 2013, 23:54
frá AgnarBen
.... og af hverju valdirðu 47" dekk undir hann ?

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 14.jan 2013, 04:16
frá Dodge Ram
Freyr wrote:Sæll

Verklegur bíll. Ég ætla að gerast mjög djarfur m.v. fyrri svör og biðja um einhverjar meiri upplýsingar um trukkinn;-) Svosem hvað var gert í sambandi við drifbúnað, hásingafærslur, hækkun, þyngd eftir breytingar o.s.frv....?

Kveðja, Freyr

Sæll Freyr

Drifbúnaður er D60 framhásing( sérsmíðuð frá Ljónstöðum) og AAm 11,5" að aftan, í hásingunum er 513 hlutfall og ARB lásar, það eru 2 stk np203 lógírar og nota ég lofttjakka til að skipta þeim, orginal millikassi,. Framhásing er færð fram um 8 cm og afturhásing um 15cm. Bíllinn er ekkert hækkaður á grind en hækkun á stífuturnum er um 14 cm. Ég hef ekki farið með bílinn á vigt eftir breytingar en stefni að því að það verði gert öðru hvoru megin við næstu helgi, ég geri ráð fyrir að klára bílinn í vikunni.
Í bílnum er 6,7 lítra Cummins og 6 gíra skipting, það er tölvukubbur í honum og var ég að keyra hann á 400hp fyrir breytingar, get sett hann í 520hp þegar mikið liggur við. Þessi breyting er í raun 54" breyting þ.e. hann er með brettakanta, stýrisvél ,lógíra, og búið að klippa úr honum fyrir 54". Það sem ég þarf að gera til að klára þann pakka er að setja undir hann Unimog hásingar og hækka hann betur,

Ástæðan fyrir því að ég fór í 47" dekk er einföld , langaði að prófa það og hafði reyndar keyrt bíl sem var þannig breyttur og líkaði vel við það. Á myndunum sem eru af bílnum hér að ofan þá er hann þar á dekkjum sem eru 47X17X17 ég á önnur dekk sem eru 47" á hæð 21 " á breydd og 20" felgumiðja sem verða notuð sem vetrardekk. Það er verið að smíða fyrir mig felgur fyrir þessi dekk.

Kveðja,
Gunnar

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 14.jan 2013, 06:12
frá StebbiHö
Til hamingju með breytinguna á þessum Gunni, hann kemur alveg djö vel út!!!, Og eins og sagt var hér að ofan, liturinn á þessum er flottur.

Kv, Stebbi

Re: Dodge Ram 47" breyttur

Posted: 26.okt 2013, 16:28
frá Dodge Ram
Góðan dag

Ég er að leita að plasthúsi á þennan bíl. Hann er með 6 feta skúffu.Ef það er einhver sem á slíkt hús þá má sá hinn sami senda mér upplýsingar á gr@mitt.is. Það væri gott að fá myndir af húsinu.

Kveðja,
Gunnar Rúnarsson
840-7909