Freyr wrote:Sæll
Verklegur bíll. Ég ætla að gerast mjög djarfur m.v. fyrri svör og biðja um einhverjar meiri upplýsingar um trukkinn;-) Svosem hvað var gert í sambandi við drifbúnað, hásingafærslur, hækkun, þyngd eftir breytingar o.s.frv....?
Kveðja, Freyr
Sæll Freyr
Drifbúnaður er D60 framhásing( sérsmíðuð frá Ljónstöðum) og AAm 11,5" að aftan, í hásingunum er 513 hlutfall og ARB lásar, það eru 2 stk np203 lógírar og nota ég lofttjakka til að skipta þeim, orginal millikassi,. Framhásing er færð fram um 8 cm og afturhásing um 15cm. Bíllinn er ekkert hækkaður á grind en hækkun á stífuturnum er um 14 cm. Ég hef ekki farið með bílinn á vigt eftir breytingar en stefni að því að það verði gert öðru hvoru megin við næstu helgi, ég geri ráð fyrir að klára bílinn í vikunni.
Í bílnum er 6,7 lítra Cummins og 6 gíra skipting, það er tölvukubbur í honum og var ég að keyra hann á 400hp fyrir breytingar, get sett hann í 520hp þegar mikið liggur við. Þessi breyting er í raun 54" breyting þ.e. hann er með brettakanta, stýrisvél ,lógíra, og búið að klippa úr honum fyrir 54". Það sem ég þarf að gera til að klára þann pakka er að setja undir hann Unimog hásingar og hækka hann betur,
Ástæðan fyrir því að ég fór í 47" dekk er einföld , langaði að prófa það og hafði reyndar keyrt bíl sem var þannig breyttur og líkaði vel við það. Á myndunum sem eru af bílnum hér að ofan þá er hann þar á dekkjum sem eru 47X17X17 ég á önnur dekk sem eru 47" á hæð 21 " á breydd og 20" felgumiðja sem verða notuð sem vetrardekk. Það er verið að smíða fyrir mig felgur fyrir þessi dekk.
Kveðja,
Gunnar