Síða 1 af 1
musso ráð ??
Posted: 12.jan 2013, 18:14
frá mikki
er með musso 1998 2.9 turbo disel og mig langar að breyta honum ur sjalfskiptum i beinskiptan þar sem að skiptingin var að fara hja mer svo að eg spyr er það svaka vesen að gera það eða er það bara kassi skipta ut pedolunum og færa kuplinguna og það yfir eða verður að einhvað rafmagns vesen lika öll rað vel þegin
Re: musso ráð ??
Posted: 12.jan 2013, 19:41
frá Þorri
þetta þykir mér með eindæmum vitlaus aðgerð þar sem kassarnir í þessum bílum voru ekki uppá marga fiska. lagaðu frekar skiptinguna eða fáðu þér aðra og bættu auka kælirir við hana.
Re: musso ráð ??
Posted: 12.jan 2013, 20:44
frá bogith
Á skiptingu handa þér þ.a.s. bens skiptingu
Bogi 8643151
Re: musso ráð ??
Posted: 14.jan 2013, 02:23
frá mikki
er samt ekki annar hver musso sem snuðar leiðinlega a milli gira eða er það bara eg og allir að segja að þessar skiptingar seu bara rusl min til dæmis for við það að keyra i sandi ekkert þjösn og billinn atti ekki erfitt með að fara þetta
Re: musso ráð ??
Posted: 14.jan 2013, 08:54
frá Þorri
Vandamálið með þær er kælingin. Ég er með hitamælir á minni og áður en ég bætti kælir við hana þá varð hún óþægilega heit bara við það að hengja tjaldvagn aftan í hann og það var áður en ég stækkaði undir honum dekkin. Eftir að ég setti kælinn þá hefur hún ekki hitnað neitt óeðlilega. Ég notaði ál kæli úr Ford explorer og er með hitaneman í pönnunni setti hann það eftir að hafa ráðfært mig við Tyrfing á Ljónstöðum hann tók upp skiptinguna fyrir mig.
Re: musso ráð ??
Posted: 17.jan 2013, 03:35
frá Taui
Mitt ráð er að fá þér eitthvað annað en Musso :) Sorry en þó svo að það sé mjög gott að keyra þessa bíla þá eru þeir engan vegin að standa sig sérstaklega ekki við íslenskar aðstæður.
Re: musso ráð ??
Posted: 17.jan 2013, 05:06
frá mikki
þettA ER BARA MUSSO ÞAÐ ER RETT HJA ÞER EN EG FEKK ÞENNANN BIL NANAST GEFINS FRA BROÐIR MINUM OG LANGAR AÐEINS AÐ EYÐA I HANN OG GERA HANN GOÐANN ÞOTT AÐ ÞETTA SE MUSSO ÞA ER ÞETTA NU JEPPI SEM STENDUR A 35" SEM ER ALLT I LAGI OG ER AÐ VERÐA BEINSKIPTUR ER NANAST BUINN AÐ SKIPTA YFIR :d
Re: musso ráð ??
Posted: 17.jan 2013, 07:41
frá Hr.Cummins
Snuðandi og Höggvandi Benz skiptingar, er það eitthvað nýtt ?
Re: musso ráð ??
Posted: 17.jan 2013, 08:57
frá Þorri
Mitt ráð er að fá þér eitthvað annað en Musso :) Sorry en þó svo að það sé mjög gott að keyra þessa bíla þá eru þeir engan vegin að standa sig sérstaklega ekki við íslenskar aðstæður.
Í hvaða heimi býrð þú? Það er fullt af þessum bílum í umferðinni og margir þeirra keyrðir töluvert yfir 300 þúsund km.
Þeir ryðga t.d ekk nálægt því eins mikið og Toyota.
Mér hefur líka sýnst að ég sé ekkert meira að gera við en þeir sem eiga aðrar tegundir.
Re: musso ráð ??
Posted: 17.jan 2013, 13:06
frá íbbi
musso-arnir eru nú bara búnir að reyna vel. og löngu búnir að sanna sig.
þú færð stráheilan musso í góðu lagi fyrir minni pening en orðið lang flesta gangfæra bíla
Re: musso ráð ??
Posted: 17.jan 2013, 13:13
frá Hfsd037
Þorri wrote:Mitt ráð er að fá þér eitthvað annað en Musso :) Sorry en þó svo að það sé mjög gott að keyra þessa bíla þá eru þeir engan vegin að standa sig sérstaklega ekki við íslenskar aðstæður.
Í hvaða heimi býrð þú? Það er fullt af þessum bílum í umferðinni og margir þeirra keyrðir töluvert yfir 300 þúsund km.
Þeir ryðga t.d ekk nálægt því eins mikið og Toyota.
Mér hefur líka sýnst að ég sé ekkert meira að gera við en þeir sem eiga aðrar tegundir.
Ertu að miða mussoinn við 91 árgerð af toyotu? það er voða erfitt að finna það út hvað þú ert að tala það um, komdu með betri skýringar
Re: musso ráð ??
Posted: 17.jan 2013, 16:50
frá kjartanbj
Musso er gríðarlega vanmetin tegund, fólk heldur alltaf að þetta sé eitthvað drasl , en þetta eru vel búnir bílar sem eyða mjög litlu
myndi Aldrei skipta sjálfskiptingu út fyrir beinskiptingu , bara setja betri kæli í staðinn
gallinn við þessa bíla er frágangur á yfirbyggingu, vesen með hurðir og svona, Mótor og drifbúnaður hefur ekki verið vesen
Re: musso ráð ??
Posted: 17.jan 2013, 17:16
frá mikki
þetta eru finir bilar minn er að smella i 350þus km og gengur eins og klukka fyrir utan þetta með skiptinguna um daginn annars er eg drullu sattur með þennann bil :D