Síða 1 af 1
Ak -> Rvk
Posted: 10.jan 2013, 21:06
frá Doddi23
Sælir
Er nokkur hér sem er á leiðinni frá Akureyri til Reykjavíkur á næstunni? Ég er að leita að einhverjum sem getur annað hvort tekið með sér 4stk 38" dekk eða kerru með dekkjunum í en þá þarf ég að finna drátt fyrir kerruna norður aftur.
Ef einhver hefur möguleika á að aðstoða mig í þessu þá væri það vel þegið.
Kv.
Doddi
843-6403
myrkvi06@gmail.com
Re: Ak -> Rvk
Posted: 10.jan 2013, 23:39
frá DABBI SIG
ég skal glaður skjótast um helgina ef þú borgar olíuna báðar leiðir :D
Re: Ak -> Rvk
Posted: 11.jan 2013, 00:30
frá Hr.Cummins
DABBI SIG wrote:ég skal glaður skjótast um helgina ef þú borgar olíuna báðar leiðir :D
x2 hehehe... ekki málið að grýta 4x 38" túttum í skúffuna :) hehehe
Re: Ak -> Rvk
Posted: 11.jan 2013, 11:30
frá Doddi23
DABBI SIG wrote:ég skal glaður skjótast um helgina ef þú borgar olíuna báðar leiðir :D
Ætli ég mundi þá ekki bara renna eftir þeim sjálfur ef mér fyndist í lagi að eyða 40.000kr bara í það að renna þjóðveginn fram og til baka :/
Re: Ak -> Rvk
Posted: 11.jan 2013, 11:35
frá Hfsd037
Prufaðu samferda.is, ég reddaði einu sinni dekkjum frá ak til rvk þannig, að vísu minni jeppadekkjum en það sakar ekki að prufa
Re: Ak -> Rvk
Posted: 11.jan 2013, 12:20
frá Hr.Cummins
Doddi23 wrote:DABBI SIG wrote:ég skal glaður skjótast um helgina ef þú borgar olíuna báðar leiðir :D
Ætli ég mundi þá ekki bara renna eftir þeim sjálfur ef mér fyndist í lagi að eyða 40.000kr bara í það að renna þjóðveginn fram og til baka :/
Ég fer nú aldrei með meira en 25þ í olíu báðar leiðir...
Er að keyra á WMO/WVO blöndu núna, svo að þá keyri ég frítt ;)
Re: Ak -> Rvk
Posted: 11.jan 2013, 23:44
frá Doddi23
Hr.Cummins wrote:Doddi23 wrote:DABBI SIG wrote:
Er að keyra á WMO/WVO blöndu núna, svo að þá keyri ég frítt ;)
Ja fyrst svo er þá er ég alveg sáttur við að "borga" eldsneytið fyrir þig ef þú skutlast eftir þeim fyrir mig ;)
Re: Ak -> Rvk
Posted: 12.jan 2013, 05:54
frá Hr.Cummins
Doddi23 wrote:Ja fyrst svo er þá er ég alveg sáttur við að "borga" eldsneytið fyrir þig ef þú skutlast eftir þeim fyrir mig ;)

Ég er ekki viss um að ég komist norður á WVO, en gæti sloppið á 50/50 Diesel WMO...
Hitamismunurinn sjáðu til... undir 5°C og þá virkar þetta Veggie stuff ekkert ;)
Re: Ak -> Rvk
Posted: 12.jan 2013, 14:19
frá fordson
"Er að keyra á WMO/WVO blöndu núna" hvað er WMO/WVO?
Re: Ak -> Rvk
Posted: 12.jan 2013, 17:49
frá Hr.Cummins
fordson wrote:"Er að keyra á WMO/WVO blöndu núna" hvað er WMO/WVO?
Waste Motor Oil, Waste Veggie Oil :)
Eða á Íslensku úrgangs mótorolía og steikingafeiti ;)
Re: Ak -> Rvk
Posted: 12.jan 2013, 18:45
frá fordson
já ok notaru ekki glussa líka? þekki einn sem notaði úrgangsglussa á terrano 2, blandaði fyrst 50/50 en síðan bara glussa og það voru engin vandamál fyrr en fór að frysta vel
Re: Ak -> Rvk
Posted: 12.jan 2013, 18:50
frá Hr.Cummins
fordson wrote:já ok notaru ekki glussa líka? þekki einn sem notaði úrgangsglussa á terrano 2, blandaði fyrst 50/50 en síðan bara glussa og það voru engin vandamál fyrr en fór að frysta vel
Eflaust er e'h úrgangsglussi í þessu, ég bara veit það ekki, þetta er allt sett saman í síló hjá mér og svo keyrt gegnum síunarkerfi....
þetta er svona 40% WMO og 60% WVO, svo set ég oftast 10% steinolíu í WMO/WVO mixtúruna hjá mér
Re: Ak -> Rvk
Posted: 12.jan 2013, 18:54
frá StefánDal
Þú verður að nota meiri íslensku á þessu spjalli og minna af svona fancy tækniorðum Viktor. Ég er allavegana svo vitlaus í svona tækni útlensku að ég þarf að nota google translate þegar ég skoða póstana þína;) Sem eru samt mjög skemmtilegir og fræðandi, þó þeir séu torlesnir:)
Re: Ak -> Rvk
Posted: 12.jan 2013, 19:14
frá jeepson
Við bræðurnir gerðum tilraunir með steikingar olíu í sumar og síuðum hana í gegnum lök. Svo var þessu blandað út með diesel olíu. Mér fanst 20l af steikingar olíu vera passlegt á móti 40l af diesel olíu. Brósi var grófari í þessu. og setti oft 50l steikingar olíu á móti 20l af diesel. Pattinn hans virtist finna minna fyrir þessu en pattinn minn. Og allir héldu að það væru grill á rúntinum og menn urðu bara svangir á því að rúnta með manni og sáu bara grill partý í hillingum hehe :D
Re: Ak -> Rvk
Posted: 12.jan 2013, 19:33
frá Hr.Cummins
Já, ég skal reyna mitt besta Stefán....
Þessi úrgangsmótorolía sem að ég nota drepur alveg kleinu/fröllufýluna, þetta lyktar meira eins og maður sé fyrir aftan bíl sem að er farinn á hringjum.....
Ég var meira að segja spurður um daginn hvað væri að frétta af ventlafóðringunum mínum, og þegar að ég svaraði að þær og hringirnir væru nýjir hristi gaurinn bara hausinn og labbaði inn... eins og hann væri að hugsa um að það hefði verið svínað vel á mér... s.s. ég hefði keypt köttinn í sekknum...
Re: Ak -> Rvk
Posted: 15.jan 2013, 15:04
frá Doddi23
Jæja þá eru vetrardekkin komin í hús, þá getur maður loksins farið að leika sér að einhverju viti :)
Re: Ak -> Rvk
Posted: 15.jan 2013, 15:53
frá kjartanbj
en þá vantar snjóinn :)