Ísaga farið að okra á okkur...

User avatar

Höfundur þráðar
Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá Freyr » 07.jan 2013, 22:38

Sæl öll

Var að sjá í heimabankanum reikning frá Ísaga. Er með á leigu Mison 18 hylki sem ég leigði upphaflega hjá strandmöllen. þar borgaði ég um 10.000 á ári í leigu á hylkinu. Strandmöllen hætti rekstri og framseldi sín hylki og samninga til Ísaga og nú er kominn frá þeim reikningur fyrir leigu næsta árs. Upphæðin er 15.775 sem er um 60% hækkun frá fyrra ári.... Djöfull hvað þetta fyrirtæki fer í taugarnar á mér!

Þetta hefur verið rætt hér áður en nú spyr ég: Er einhver leið í boði til að vera með mison 18 hylki önnur en að leigja af þessu skítakompaníi?

Ætla að halda áfram að nota mison 18 svo allar ábendingar um kolsýru eru afþakkaðar.....




stebbiþ
Innlegg: 304
Skráður: 26.feb 2010, 17:14
Fullt nafn: Stefán Þ. Þórsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá stebbiþ » 07.jan 2013, 22:51

Sæll Freyr

Vísa í þennan þráð. Ég lenti í nákvæmlega sömu stöðu fyrir nokkrum vikum.
Ég skilaði hylkinu inn þar sem ég vil ekki eiga í viðskiptum við þetta einokunarfyrirtæki.

Kv, Stebbi Þ.

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá jeepson » 07.jan 2013, 22:59

En er ekki hægt að fá fyllingu hjá ísaga ef að þú ert með kút sem að þú átt sjálfur?? Varðandi kolsýruna þá fynst mér fínt að nota hana með fylltum vír. En ég kýs að nota fogon gasið með ófylltum vír. Við notum mikið fyltann vír í vinnuni og þá 1,2mm en erum svo með allavega 2 vélar með 0.8 og fogon gasinu.
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn

User avatar

LFS
Innlegg: 579
Skráður: 10.apr 2010, 11:39
Fullt nafn: lúðvik freyr sverrisson
Bíltegund: nissan patrol y60

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá LFS » 07.jan 2013, 23:31

eg er einmitt i somu pælingum eftir að hafa fengið reikning frá þeim hvar er hægt að kaupa eigin flösku og lata fylla a hana ?
1994 nissan patrol 2.8l 44"
1994 toyota hilux 2.4l 38"
1996 toyota tacoma 2.7l 32"
1987 jeep cherokee 4.0l 38"
1988 jeep wrangler 4.2l 31"
1982 chevrolet custom deluxe 6.2l 33"
1976 international scout 5.2l 38"


stebbiþ
Innlegg: 304
Skráður: 26.feb 2010, 17:14
Fullt nafn: Stefán Þ. Þórsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá stebbiþ » 08.jan 2013, 00:06

Þeir fylla bara á flöskur sem þeir eiga.

User avatar

bennzor
Innlegg: 36
Skráður: 30.nóv 2012, 22:24
Fullt nafn: Benedikt Bj. Kristjánsson
Bíltegund: '91 Explorer
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá bennzor » 08.jan 2013, 00:17

ég var í kútapælingum í byrjun sumars og þá vildi gastec selja kútana og sá um áfyllingar/skiptikúta, en þar sem ég beið með þetta þá man ég ekkert um verð eða stærðir


stebbiþ
Innlegg: 304
Skráður: 26.feb 2010, 17:14
Fullt nafn: Stefán Þ. Þórsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá stebbiþ » 08.jan 2013, 00:32

Eina undantekningin sem ég veit um hjá Ísaga, er þessi samningur við Gastec. Þeir fylla á þessar litlu 5 litra flöskur fyrir þá. Þú getur svo keypt flöskuna hjá Gastec fyrir 37000 kall og svo bara skipt fyrir nýja þegar þig vantar meira. Þannig borgarðu enga leigu en áfyllingin er jafndýr og á 20 lítra kút sem þú myndir leigja af Ísaga. Þetta borgar sig kannski fyrir þá sem sjóða mjög lítið og sjaldan.

User avatar

Hr.Cummins
Innlegg: 703
Skráður: 06.jan 2013, 18:03
Fullt nafn: Viktor Agnar Guðmundsson Falk
Bíltegund: Dodge Ram 1500
Hafa samband:

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá Hr.Cummins » 09.jan 2013, 06:02

Ég er með samning hjá ÍSAGA og fékk einmitt 15.755kr reikninginn frá þeim...
Dodge Ram 1500 Cummins Compound Turbo Diesel:
[BBD 60# Valvesprings, 4k GSK, Raptor 150GPH LP, Marine HG, Maxed Out P-Pump, No Plate, Tuned AFC, 20° Timing, Colt BIG STICK]
[Custom 4,5" Downpipe, 5" Pipe & Dual 6" Stacks]

User avatar

Ingaling
Innlegg: 124
Skráður: 01.feb 2010, 18:45
Fullt nafn: Ingi Björnsson
Bíltegund: Toyota LC90
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá Ingaling » 09.jan 2013, 14:56

það fer eftir notkun hvort það borgi sig að kaupa kút hjá gasteck, en þeir selja 4kg kúta minnir mig á ca 35þús, meðan að kúturinn sem ég var með hjá strandmöllen er 25kg.
Toyota LC90 VX. 32"
Jeppi er ekki jeppi nema á honum standi Jeep..!

User avatar

Gilson
Innlegg: 70
Skráður: 21.aug 2012, 22:28
Fullt nafn: Gísli Þór Sigurðsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá Gilson » 09.jan 2013, 17:55

Ísaga er ógeðslegt einokunnar fyrirtæki og mér hefur alltaf verið illa við að versla þar, þvílíka bullið að vera að borga tugi þúsunda bara fyrir það eitt að hafa gashylki til umráða, og ekki er áfyllingin heldur ódýr.
Ég var mjög sáttur við þjónustu strandmollen og það er algjör synd að þeir séu farnir af markaðnum.

User avatar

Hr.Cummins
Innlegg: 703
Skráður: 06.jan 2013, 18:03
Fullt nafn: Viktor Agnar Guðmundsson Falk
Bíltegund: Dodge Ram 1500
Hafa samband:

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá Hr.Cummins » 16.feb 2013, 21:36

var að fá gíró fyrir mánaðarleigu... 3.370kr
Dodge Ram 1500 Cummins Compound Turbo Diesel:
[BBD 60# Valvesprings, 4k GSK, Raptor 150GPH LP, Marine HG, Maxed Out P-Pump, No Plate, Tuned AFC, 20° Timing, Colt BIG STICK]
[Custom 4,5" Downpipe, 5" Pipe & Dual 6" Stacks]


birgir björn
Innlegg: 75
Skráður: 31.jan 2010, 15:55
Fullt nafn: Birgir Björn Birgirsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá birgir björn » 17.feb 2013, 04:25

eg sagði ísaga bara að xxxxx sér og fékk mér mína eigin flösku sem eg læt filla á hjá næstu slökkvitækja þjónunstu fyrir minna enn 10 þús (stór flaska) og á hana sjálfur. að mínu mati er ekkert að kolsýru hún er kaldari ef eitthvað er og virkar fínt í boddý.


s.f
Innlegg: 308
Skráður: 08.feb 2010, 20:50
Fullt nafn: steinþór friðriksson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá s.f » 17.feb 2013, 08:41

birgir björn wrote:eg sagði ísaga bara að xxxxx sér og fékk mér mína eigin flösku sem eg læt filla á hjá næstu slökkvitækja þjónunstu fyrir minna enn 10 þús (stór flaska) og á hana sjálfur. að mínu mati er ekkert að kolsýru hún er kaldari ef eitthvað er og virkar fínt í boddý.


hvað ertu með stóra flösku og hvar fégstu hana


fannar79
Innlegg: 71
Skráður: 07.sep 2010, 18:46
Fullt nafn: Fannar S Smárason

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá fannar79 » 17.feb 2013, 09:35

Ég verslaði töluvert af nítrói af þeim hér áður fyrr og þar sem ég bý á Egilsstöðum þá fékk ég sendan reikningin í pósti þar sem ég var í reiknings viðskiptum hjá þeim, en þar sem þeir voru með einokun á þessum tíma (fullt af ljótustu orðum sem ég kann) þá sendu þeir reikninginn sama dag og eindaginn var og höfðu gjaldagan daginn eftir og þegar að ég opnaði bréfið á þriðjadegi fyrir austan og fór og borgaði var ég kominn einn dag í vanskil og ofan á allt var ég kominn á válista vegna vanskila og þurfti að leggja inn á reikning hjá þeim til að fá gas hjá þeim eftir þetta. Ég hef ekkert verslað við þetta DRULLU kompaní (fyrirgefið orðbragðið) í 13 ár núna og ættla að reyna að hanga á því eins lengi og ég mögulega get..........................

Fannar S

User avatar

HaffiTopp
Innlegg: 929
Skráður: 02.feb 2010, 17:04
Fullt nafn: Hafþór Atli Hallmundsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá HaffiTopp » 17.feb 2013, 11:10

Reyndar er gjalddaginn yfirleitt alltaf hafður á undan eindaganum :D
En hvar kaupa menn sér flöskur undir kolsýru og hvaða mismunandi strærðir eru í boði?

User avatar

Hr.Cummins
Innlegg: 703
Skráður: 06.jan 2013, 18:03
Fullt nafn: Viktor Agnar Guðmundsson Falk
Bíltegund: Dodge Ram 1500
Hafa samband:

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá Hr.Cummins » 17.feb 2013, 13:07

Það verður meiri "innbrennsla" með Kolsýru, fínt í púst og kannski blikk...
Dodge Ram 1500 Cummins Compound Turbo Diesel:
[BBD 60# Valvesprings, 4k GSK, Raptor 150GPH LP, Marine HG, Maxed Out P-Pump, No Plate, Tuned AFC, 20° Timing, Colt BIG STICK]
[Custom 4,5" Downpipe, 5" Pipe & Dual 6" Stacks]


fannar79
Innlegg: 71
Skráður: 07.sep 2010, 18:46
Fullt nafn: Fannar S Smárason

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá fannar79 » 17.feb 2013, 14:28

HaffiTopp wrote:Reyndar er gjalddaginn yfirleitt alltaf hafður á undan eindaganum :D
En hvar kaupa menn sér flöskur undir kolsýru og hvaða mismunandi strærðir eru í boði?


Fyrirgefðu ruglinginn maður verður bara svo reiður ef einhver minist á ísaga að maður skrifar bara eihvrja vitleysu;)


bragig
Innlegg: 102
Skráður: 28.maí 2010, 19:21
Fullt nafn: Bragi Guðnason
Bíltegund: LC 80, Hilux xc

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá bragig » 17.feb 2013, 15:01

Þetta er ljóta ástandið. Kanski eina vitið að skila inn þessum blessuðu flöskum og læra að nota pinnasuðu. Slæmt þegar einokunarverslun færir okkur áratugi aftur í tímann.

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá jeepson » 17.feb 2013, 15:08

Hafa menn gert prufur á að nota metan sem suðugas?? Datt í hug að menn gætu farið að prumpa á flöskur og sjóða með metani haha :D
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn

User avatar

Gilson
Innlegg: 70
Skráður: 21.aug 2012, 22:28
Fullt nafn: Gísli Þór Sigurðsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá Gilson » 17.feb 2013, 16:00

Eldfim gastegund virkar tæpast sem hlífðargas...

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá jeepson » 17.feb 2013, 16:03

Gilson wrote:Eldfim gastegund virkar tæpast sem hlífðargas...


Þetta átti að vera svona 5aura brandari :)
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn


joias
Innlegg: 633
Skráður: 15.feb 2010, 21:15
Fullt nafn: Jóhann Lúðvíksson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá joias » 17.feb 2013, 19:39

hahaha

Ef það er eitthvað sem fattlausir eru snillingar í þá er það að eiðileggja brandara :)
Prodject Toylett Hilux Longcap eða hvað á að kalla það...


birgir björn
Innlegg: 75
Skráður: 31.jan 2010, 15:55
Fullt nafn: Birgir Björn Birgirsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá birgir björn » 17.feb 2013, 19:51

eg fékk flöskuna nú bara gefins. enn slökkvitækja þjonustan á eskifyrði getur reddað þessu fínn kall sem á hana. hann var tilbuin að smíða fyrir mig flösku sem eg á svo fyrir 20 og fylla hana í kjölfarið fyrir 5 þus
s.f wrote:
birgir björn wrote:eg sagði ísaga bara að xxxxx sér og fékk mér mína eigin flösku sem eg læt filla á hjá næstu slökkvitækja þjónunstu fyrir minna enn 10 þús (stór flaska) og á hana sjálfur. að mínu mati er ekkert að kolsýru hún er kaldari ef eitthvað er og virkar fínt í boddý.


hvað ertu með stóra flösku og hvar fégstu hana


dabbigj
Innlegg: 157
Skráður: 01.feb 2010, 17:22
Fullt nafn: Davíð Geir Jónasson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá dabbigj » 17.feb 2013, 20:16

joias wrote:hahaha

Ef það er eitthvað sem fattlausir eru snillingar í þá er það að eiðileggja brandara :)

þetta er nú bara brandari útaf fyrir sig


sean
Innlegg: 146
Skráður: 27.sep 2010, 15:54
Fullt nafn: Gunnar Sean Eggertsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá sean » 17.feb 2013, 23:34

Hvernig er það ef þið eruð með strandmöllen kút, heldur ísaga áfram að rukka fyrir kútinn þ.e tók ísaga yfir alla samninga sem menn gerðu við strandmöllen


birgir björn
Innlegg: 75
Skráður: 31.jan 2010, 15:55
Fullt nafn: Birgir Björn Birgirsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá birgir björn » 17.feb 2013, 23:51

sean wrote:Hvernig er það ef þið eruð með strandmöllen kút, heldur ísaga áfram að rukka fyrir kútinn þ.e tók ísaga yfir alla samninga sem menn gerðu við strandmöllen

já og hækkaði verðið


valberg86
Innlegg: 22
Skráður: 22.nóv 2012, 22:41
Fullt nafn: Guðjón Valberg Björnsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá valberg86 » 19.feb 2013, 00:10

eftir minni bestu vitund þá mega þeir ekki ógilda samninga sem eru í gangi og gera nýja nema að fá undirskrift hjá leiguhafa, s.s. þá mega þeir ekki hækka leiguna nema að vera búnir að gera nýjan samning við viðkomandi aðila þar sem að það er samningur í gangi fyrir með verð og lengd.

User avatar

gislisveri
Stjórnandi
Innlegg: 1067
Skráður: 30.jan 2010, 23:08
Fullt nafn: Gísli Sverrisson
Bíltegund: Suzuki Fox
Staðsetning: Mosó
Hafa samband:

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá gislisveri » 19.feb 2013, 01:24

jeepson wrote:
Gilson wrote:Eldfim gastegund virkar tæpast sem hlífðargas...


Þetta átti að vera svona 5aura brandari :)


Ég reyndi að sprengja blöðru fulla af metangasi um daginn, það var alls ekki tilkomumikið. Það brann bara hægt og rólega. Töluvert meira fútt í Acetylen, svona ef menn eru í sprengjutilraunum í vinnunni. En þetta er allt að sjálfsögðu gert í þágu vísindanna.


birgir björn
Innlegg: 75
Skráður: 31.jan 2010, 15:55
Fullt nafn: Birgir Björn Birgirsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá birgir björn » 19.feb 2013, 02:53

valberg86 wrote:eftir minni bestu vitund þá mega þeir ekki ógilda samninga sem eru í gangi og gera nýja nema að fá undirskrift hjá leiguhafa, s.s. þá mega þeir ekki hækka leiguna nema að vera búnir að gera nýjan samning við viðkomandi aðila þar sem að það er samningur í gangi fyrir með verð og lengd.

reyndu að seigja þeim það. gas og súr er best í spreingjurnar :d


valberg86
Innlegg: 22
Skráður: 22.nóv 2012, 22:41
Fullt nafn: Guðjón Valberg Björnsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá valberg86 » 20.feb 2013, 01:47

birgir björn wrote:
valberg86 wrote:eftir minni bestu vitund þá mega þeir ekki ógilda samninga sem eru í gangi og gera nýja nema að fá undirskrift hjá leiguhafa, s.s. þá mega þeir ekki hækka leiguna nema að vera búnir að gera nýjan samning við viðkomandi aðila þar sem að það er samningur í gangi fyrir með verð og lengd.

reyndu að seigja þeim það. gas og súr er best í spreingjurnar :d


hahah satt er það :P

User avatar

Polarbear
Póststjóri
Innlegg: 874
Skráður: 31.jan 2010, 23:15
Fullt nafn: Lárus Rafn Halldórsson
Bíltegund: Toyota

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá Polarbear » 20.feb 2013, 10:13

hafið þið eitthvað vellt því fyrir ykkur afhverju strandmöllen hætti í samkeppni? varla vegna þess að þetta var svo ábatasöm viðskipti? Kanski er raunkostnaður við svona hylkjaleigukerfi bara svona mikill að það er ekki hægt að hafa þetta ódýrara? með þessu leigu kerfi eru þessir menn líka að fara eftir lögum um hylkin, en þau þarf að þrýstiprófa reglulega eins og kafarakútana. það er enginn smáræðis þrýstingur á þessu.

Ég vill allavega ekki trúa því fyrirfram að ÍsAGA sé að okra á þessu. þeir eru jú í bissness, og það er enginn í bissness til að tapa á honum. Til þess að trúa því að þetta sé okur þarf maður að sjá eitthvað annað fyrirtæki geta boðið sömu þjónustu á verulega lægra verði.... og það virtist strandmöllen ekki geta gert. Allavega ekki til lengri tíma litið.

Nú fylgdist ég t.d. ekki með þegar Strandmöllen hóf að bjóða þessa þjónustu. Lækkaði eitthvað leiguverðið hjá Ísaga á meðan strandmöllen var á markaðnum? ef svo er, hækkaði það aftur þegar strandmöllen gafst upp?

nei bara svona til að koma með annan vinkil í þessa umræðu... ég er ekkert tengdur Ísaga


cecar
Innlegg: 19
Skráður: 08.okt 2010, 21:33
Fullt nafn: Frank Höybye

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá cecar » 20.feb 2013, 11:05

Ég hef verið að selja kolsýrukúta þegar að ég á þá til, stundum nýja og stundum notaða með 5-6 kg innihaldi.

Kveðja Frank
Slökkvitæki ehf
Helluhrauni 10, Hafnarfirði,
Austurveigi 52, Selfossi.
S: 565-4080
Image
Síðast breytt af cecar þann 20.feb 2013, 11:14, breytt 1 sinni samtals.


birgir björn
Innlegg: 75
Skráður: 31.jan 2010, 15:55
Fullt nafn: Birgir Björn Birgirsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá birgir björn » 20.feb 2013, 11:08

Polarbear wrote:hafið þið eitthvað vellt því fyrir ykkur afhverju strandmöllen hætti í samkeppni? varla vegna þess að þetta var svo ábatasöm viðskipti? Kanski er raunkostnaður við svona hylkjaleigukerfi bara svona mikill að það er ekki hægt að hafa þetta ódýrara? með þessu leigu kerfi eru þessir menn líka að fara eftir lögum um hylkin, en þau þarf að þrýstiprófa reglulega eins og kafarakútana. það er enginn smáræðis þrýstingur á þessu.

Ég vill allavega ekki trúa því fyrirfram að ÍsAGA sé að okra á þessu. þeir eru jú í bissness, og það er enginn í bissness til að tapa á honum. Til þess að trúa því að þetta sé okur þarf maður að sjá eitthvað annað fyrirtæki geta boðið sömu þjónustu á verulega lægra verði.... og það virtist strandmöllen ekki geta gert. Allavega ekki til lengri tíma litið.

Nú fylgdist ég t.d. ekki með þegar Strandmöllen hóf að bjóða þessa þjónustu. Lækkaði eitthvað leiguverðið hjá Ísaga á meðan strandmöllen var á markaðnum? ef svo er, hækkaði það aftur þegar strandmöllen gafst upp?

nei bara svona til að koma með annan vinkil í þessa umræðu... ég er ekkert tengdur Ísaga

ætli menn hérna geri sér ekki grein fyrir þvi í hverju þetta felst og taki viðmið af þvi


stebbiþ
Innlegg: 304
Skráður: 26.feb 2010, 17:14
Fullt nafn: Stefán Þ. Þórsson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá stebbiþ » 20.feb 2013, 11:56

Man eftir því að ég hringdi í Ísaga til að kanna verð á sambærilegri flösku (20L) á sama tíma og ég gekk frá samningi við Strandmöllen, fyrir nokkrum árum. Þá munaði bara um 400-500 kr á verðinu á ársleigu (dýrara hjá Ísaga).

Kv, stebbi þ.


joias
Innlegg: 633
Skráður: 15.feb 2010, 21:15
Fullt nafn: Jóhann Lúðvíksson

Re: Ísaga farið að okra á okkur...

Postfrá joias » 20.feb 2013, 12:46

Ég er með 3 kúta sem ég tók hjá Strandmöllen. Það munaði talsvert bæði á hylkjaleigunni og áfyllingunni miðað við ISAGA hvað Strandmöllen var ódýrara.
Ég skal ekki segja til um ástæðuna fyrir því að Strandmöllen hélt þetta ekki út. Þetta var náttúrulega útibú frá Danmörku, er það ekki annars? Markaðssetningin hefur kannski ekki gengið nógu vel, það er alveg ótrúlegt hvað fólk getur verið vanafast. Þó að einhvern nýr komi inná markaðinn með betra verð, þá er ekkert endilega mikið verslað við hann. Þeir sem að sáu um Strandmöllen hér á Íslandi hafa kannski ekki verið nógu grimmir að troða sér á markaðinn og stóri bróðir úti ekki fundist þetta ganga nógu hratt fyrir sig að skapa sér stöðu hér og þess vegna lokað.
En þetta eru nú bara vangaveltur hjá mér.

Ég er samt sem áður ansi hræddur um að ÍSAGA hafi verðið ekki eins lágt og þeir geta meðan þeir eru einir á markaðnum. Ef það er engin samkeppni, þá er enginn hvati til að halda sér á mottunni í verðlagningu. Þá hættur mönnum til að hafa verðið í hærri kanntinum og græða meira á meðan fólk getur ekki leitað annað.
Prodject Toylett Hilux Longcap eða hvað á að kalla það...


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 18 gestir