Síða 1 af 1

Kösturum stolið!!

Posted: 10.des 2012, 21:38
frá Snorri Þór
Sælir drengir,

Lenti í því á laugardagsnótt að stolið var kösturunum af bíl hjá mér sem stóð fyrir utan verkstæði í Hveragerði. Bílnum var lagt þar kl.19 og fór ég frá verkstæðinu kl. 12 að miðnætti. Þegar að ég kom að honum morgunin eftir kl. 10 þá var búið að stela
þrem pörum af kösturum. Erfitt er að ná þeim af því að festingarnar eru bakvið stuðarann þannig að þeir hafa verið með verkfæri, þetta er ekki tekið af á 5 mín.

Eitt settið var IPF tveggja geisla með gulu riffluðu gleri, annað var Hella með parki í og það þriðja sem var uppá spoilernum voru IPF með glæru gleri.

Ef að einhver veit um svona til sölu eða hefur heyrt eitthvað endilega láta í sér heyra,
Takk
Snorri 691-7603

Re: Kösturum stolið!!

Posted: 10.des 2012, 21:43
frá Oskar K
Fylgjast með a´bland.is, alltaf eitthvað að koma upp þar sem maður er nokkuð viss um að sé illa fengið

Re: Kösturum stolið!!

Posted: 10.des 2012, 22:41
frá jeepson
Djöfull er það skítt að ekkert meigi vera í friði. Ég held að það sé bara best að menn punkti boltana sem að halda kösturunum. Mér hefur oft dottið það í hug. En það kemur á móti að maður nær þessu þá ekki svo glatt af ef að maður þarf að ná þessu af sjálfur.

Re: Kösturum stolið!!

Posted: 10.des 2012, 22:44
frá Óskar - Einfari
að hreinsa þrjú pör af kösturum af bílnum hefur nú tekið einhvern tíma.... þetta er hundfúlt!

Re: Kösturum stolið!!

Posted: 10.des 2012, 23:27
frá Snorri Þór
Hérna sjáiði mynd af þessu.

Image

Re: Kösturum stolið!!

Posted: 11.des 2012, 18:36
frá jeepson
Ég hefði nú tekið allan bílinn. En ég deili þessu á facebook á eftir. V>onandi fynnast þjófarnir.