Síða 1 af 1
HLUTFALLAPÆLINGAR
Posted: 07.júl 2010, 11:32
frá KÁRIMAGG
VITA MENN EITTHVAÐ UM 4:56 VS 4:88 ?
ÞÁ Í SAMBANDI VIÐ STYRK.....
Re: HLUTFALLAPÆLINGAR
Posted: 07.júl 2010, 12:10
frá jeepcj7
Þessi hlutföll eru það svipuð að ég get varla ímyndað mér að það sé einhver teljandi munur þar á,en í hvaða bíl er þetta annars.
Re: HLUTFALLAPÆLINGAR
Posted: 07.júl 2010, 15:03
frá Kiddi
Í Dana 44 veit ég að 4.56 er eitthvað sterkara en 4.88 þar sem pinioninn er stærri um sig en ég veit ekki hvort það skipti nokkru...
Re: HLUTFALLAPÆLINGAR
Posted: 07.júl 2010, 17:18
frá KÁRIMAGG
[quote="jeepcj7" í hvaða bíl er þetta annars.[/quote]
þetta er í hilux með 305 sbc og 700 ssk
Re: HLUTFALLAPÆLINGAR
Posted: 07.júl 2010, 18:20
frá jeepcj7
Allavega orginal 4.88-1 í toyota er bara nokkuð hraust hlutfall svona miðað við stærð,en það er nú samt bara um 8" sem er ekki merkilegt ef menn nota stór dekk,stóra vél og stóra gjöf.En ég hef ekki trú á að það muni miklu á styrk milli 4.56 & 4.88. aftur á móti eru 5.29 og 5.71 hlutföllin í toy ekki til mikilla átaka eftir því sem ég hef séð.:)
Re: HLUTFALLAPÆLINGAR
Posted: 07.júl 2010, 18:28
frá Einar
Þumalputtareglan er að þeim mun lægri sem hlutfallið er þeim mun veikara er það. Ástæðan er að með lækkuðu hlutfalli minkar pinjóninn miðað við kamb og snertiflöturinn milli þeirra verður minni og álagið dreifist á minna svæði.
Re: HLUTFALLAPÆLINGAR
Posted: 07.júl 2010, 19:08
frá Stebbi
Eitthvað þarf nú að ganga á ef að 305 chevy á að brjóta 4.88 Toyota drifið.
Re: HLUTFALLAPÆLINGAR
Posted: 07.júl 2010, 22:38
frá KÁRIMAGG
KÁRIMAGG wrote:[quote="jeepcj7" í hvaða bíl er þetta annars.
þetta er í hilux með 305 sbc og 700 ssk[/quote]
Undir bílnum er 12 bolta GM hásingar (afturhásing með toyota liðhúsum framan)
Re: HLUTFALLAPÆLINGAR
Posted: 07.júl 2010, 23:51
frá jeepcj7
Þú ert ekki að brjóta rétt innstillt 4.88 hlutfall í 12 bolta GM nema með gífurlegum látum þetta er nærri 9" drif og alveg tröllsterkt.
Re: HLUTFALLAPÆLINGAR
Posted: 07.júl 2010, 23:55
frá ellisnorra
12bolti er 8.875" þannig að þú átt skilið thule ef þú brýtur það með 305
Re: HLUTFALLAPÆLINGAR
Posted: 08.júl 2010, 11:22
frá KÁRIMAGG
elliofur wrote:12bolti er 8.875" þannig að þú átt skilið thule ef þú brýtur það með 305
Ég tek þig á orðinu ef það tekst